Fréttablaðið - 06.05.2003, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Mikið verður notalegt þegar allirverða aftur eins og þeir eiga að
sér að vera. Þegar syngjandi, föður-
leg ljúfmenni með fagurgala á vör
verða aftur pirruð og hrokafull, snúa
rassi í kjósendur og fara sínu fram.
Þegar óraunhæfum loforðum verður
troðið upp á háaloft þar sem þau eiga
heima, geislabaugum og vængjum
pakkað ofan í pappakassa og vand-
ræðalegar og fokdýrar auglýsingar
hætta að skemma fyrsta kaffibollann
á morgnana.
„ÍSLENSKT þjóðfélag gengur mjög
vel. Það liggur við manni finnist það
stundum ganga of vel. Við veltum um
í vellystingum,“ sagði skondinn mað-
ur að norðan um helgina. Og annar,
enn nú skondnari, bað söfnuð sinn að
afhenda óvitum ekki eldspýtur. Á
meðan lepja tuttugu þúsund fátæk-
lingar dauðann úr skel hér á einu rík-
asta skeri jarðar. Þeir eru tölulegar
staðreyndir. Þeir sitja ekki í umræðu-
þáttum og karpa um landsmálin. Þeir
eru ekki á snarpri göngu með storm-
inn í fangið líkt og einhverjir fram-
bjóðendur. Þeir eru á langri og enda-
lausri göngu með fárviðrið í fangið.
Á SÖMU STUNDU velta ein-
hverjir sér í óheyrilegum vellysting-
um og tapa áttum. Marmaraklósett og
kirsuberjainnréttingar liggja í haug-
um við hallir og bíða flutnings í
Sorpu – brilljant lausnir og litir gær-
dagsins. Á Kópaskeri er hægt að fá
hús fyrir milljón. Þar horfir fólk til
hafs – til fisksins sem það má ekki
veiða. Þvaður, hrópa kvótakóngar og
hóta að flytja til útlanda verði kerfinu
breytt – kerfinu sem hentar þeim svo
ósköp vel. Gaman væri að vita hverj-
ir borga í kosningasjóði.
ATKVÆÐIÐ er falt fyrir fallegt
bros, pylsu með öllu, klapp á bak,
barmmerki, blöðrur, kaffi og kleinur,
brandara og ropvatn. Atkvæðið er
falt fyrir heilan dag í hoppukastala,
trúðadans, nammi, lúðrablástur og
óttablandinn áróður. Launin verða
endalaus ferð í rússíbana stöðugleik-
ans. Þar ganga konur um beina og
þiggja ölmusu fyrir. Einhverjir sitja
þægilega og fá belti til að spenna.
Aðrir standa óbundnir aftast í vagnin-
um og falla í frjálsu falli úr hæstu
hæðum í kröppustu beygjunum.
ÞAÐ VERÐUR notalegt þegar allt
er orðið eins og það á að vera og
stöðugleikinn einn ríkir.
Kæri fram-
bjóðandi
Traust
forysta
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Reiknaðu lánamöguleika þína
Á kosningavef Framsóknarflokksins www.xb.is
getur þú reiknað út lánamöguleika þína miðað
við þær tillögur sem Framsóknarflokkurinn
leggur fram fyrir þessar kosningar.
www.xb.is
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framsóknarflokkurinn ætlar að auðvelda fólki enn frekar kaup á eigin húsnæði.
Framsóknarflokkurinn ætlar að hækka hámarkslán Íbúðalánasjóðs í áföngum á næsta kjörtímabili upp í
90% af kaupverði venjulegs íbúðarhúsnæðis. Þannig geta allir notið hagkvæmustu kjara við íbúðakaup.
Þetta teljum við framsóknarmenn mögulegt vegna þeirra breytinga sem við höfum hrint í framkvæmd
á íslenskum fjármálamarkaði á síðasta kjörtímabili. Þær breytingar gera okkur nú kleift að búa til enn
skilvirkara og neytendavænna íbúðalánakerfi um leið og lagður er grunnur að stöðugleika til lengri tíma.
90%
lán til húsnæðiskaupa