Fréttablaðið - 16.05.2003, Qupperneq 8
8 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
ÍTALÍA, AP/BBC Fjörutíu árum eftir
að hugmyndin kom upp fyrst hafa
Ítalir loks hafist handa við að hefta
ágang sjávar á eina fallegustu borg
Ítalíu.
Feneyjar eiga sér langa og við-
burðaríka sögu. Þessi fallega borg
sem kölluð hefur verið perla Adría-
hafsins hefur á síðustu áratugum
verulega látið á sjá, bæði vegna
landsigs eyjanna sjálfra en líka
vegna ágangs sjávarfalla. Hefur
þetta orðið svo mikið vandamál að á
flóði er erfitt að finna þurran blett
á stóru svæði. Svo dæmi sé tekið
flæðir að meðaltali eitt hundrað
sinnum á ári yfir aðaltorg borgar-
innar, Markúsartorgið.
Í borg sem fær 80% tekna sinna
vegna þjónustu við ferðamenn er
þetta óásættanlegt og eftir tæplega
40 ára bollaleggingar um aðgerðir
hefur Silvio Berlusconi forsætis-
ráðherra loks sett af stað verkefni
sem verkfræðingar vona að geti
stöðvað ágang sjávar og gefið Fen-
eyjum tímabundna von.
Um er að ræða „Móses“-verk-
efnið en það gengur út á að byggð-
ar verða flóðavarnir í mynni Fen-
eyja, þar sem flóinn mætir Adría-
hafinu. Nokkur allstór hlið úr stáli
verða fest við sjávarbotninn og í
hvert sinn sem flæðir að yfir
ákveðin hættumörk, eru hliðin reist
með lofti og stöðva því flæðið.
„Feneyjar eru stórkostlegar,
perla Ítalíu,“ sagði Berlusconi í
tilefni þess að verkefnið er hafið.
„Nú hefjum við raunverulegar
björgunaraðgerðir sem íbúarnir
hafa beðið lengi eftir.“
Ekki hafa allir beðið lengi.
Margir íbúar og náttúruverndar-
sinnar óttast að aðgerðirnar
breyti flóanum í mengaða tjörn
þar sem engin sjávarföll hreinsa
lengur næsta umhverfi borgar-
innar. Aðrir gagnrýnendur kalla
þetta peningasóun vegna þess að
aðgerðirnar breyti engu um land-
sigið á eyjunum sem muni fyrr
eða síðar sökkva Perlu Ítalíu. ■
MÓTMÆLA MÓSES
Ekki er sátt um aðgerðir til bjargar
Feneyjum.
Risaverkefni loks hafið á Ítalíu:
Móses til bjargar Feneyjum
KOSNINGAÚRSLITIN „Samfylkingin
náði ekki að leggja áherslu á neitt
eitt málefni,“ sagði innanbúðar-
maður í Samfylkingunni við
Fréttablaðið að afstöðnum kosn-
ingunum. „En á móti kemur að
hugsanlega náði flokkurinn að
sýna ákveðna breidd í málflutn-
ingi sínum.“
Þegar staða Samfylkingarinn-
ar er metin, taka flestir undir að
flokkurinn hafi unnið sigur í kosn-
ingunum og náð að skapa sér sess
sem stór jafnaðarmannaflokkur,
hvort sem hann verður varan-
legur eða ekki. Hins vegar fylgja
yfirleitt í ummælum fólks
ákveðnir fyrirvarar á sigrinum.
Fyrirvararnir eru tveir. Samfylk-
ingin náði ekki að fella ríkis-
stjórnina og Samfylkingin náði
ekki að koma Ingibjörgu Sólrúnu
á þing. Að þessu leyti var Sam-
fylkingin óheppin, því spennan í
þessum efnum varði allt til loka-
talningar atkvæða.
Sú skoðun virðist vera nokkuð
ríkjandi að sigur Samfylkingar-
innar hefði getað orðið stærri.
Margir furða sig á málefnaáhersl-
unum. „Áherslan á jafnréttismál
var óþörf,“ sagði einn. „Konur
streymdu til Samfylkingarinnar
og því engin ástæða til að leggja
áherslu á þessi mál.“ „Ingibjörg
Sólrún hefði átt að vaða beint í
hörðu málin,“ sagði annar, „og
sýna kjósendum að þar væri hún
fyllilega jafnvíg körlunum.“
Einn viðmælandi blaðsins
sagði áhersluna á Ingibjörgu Sól-
rúnu hafa farið fyrir brjóstið á
sumum gömlum og rótgrónum
frambjóðendum. „Það er þarna
fólk sem hefur mikið persónulegt
fylgi,“ sagði hann. „Því fannst
fram hjá sér gengið.“ Aðrir tala
hins vegar um að áherslan á Ingi-
björgu hefði mátt vera markviss-
ari.
Staða Samfylkingarinnar á
komandi kjörtímabili er nokkuð
óljós. Þingflokkurinn er stór og
öflugur en það hljóta að verða von-
brigði að sitja ekki í stjórn. „Það
verður erfitt fyrir Samfylkinguna
að vera önnur fjögur ár í stjórnar-
andstöðu,“ sagði einn viðmælandi.
Í stjórnarandstöðu er erfiðara fyr-
ir stjórnmálaflokk að tileinka sér
meiri aga og ábyrgð í málflutningi,
auk þess sem seta í stjórnarand-
stöðu til langs tíma er einfaldlega
þreytandi. Annar viðmælandi inn-
an Samfylkingarinnar kvaðst
ósáttur við það að forysta flokks-
ins hefði ekki gengið frá stjórnar-
myndun strax í aðdraganda kosn-
inganna. „Jón Baldvin hefði fyrir
löngu verið farinn með koníaks-
flösku í heimsókn til einhvers
hinna og gengið frá málinu.“
gs@frettabladid.is
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Skiptar skoðanir eru um það innan Samfylkingarinnar hvort áherslan á hennar persónu
hafi fyllilega heppnast.
FYLGI SAMFYLKINGARINNAR
EFTIR KJÖRDÆMUM
1999 2003
Reykjavík norður 29% 36,3%
Reykjavík suður 29% 33,3%
Suðvesturkjördæmi 28,1% 32,8%
Norðvesturkjördæmi 25,1% 23,2%
Norðausturkjördæmi 18,2% 23,4%
Suðurkjördæmi 28,5% 29,7%
Stórsigur, en þó ekki
Kosningabarátta Samfylkingarinnar þykir hafa verið ómarkviss. Eftir stendur þó að Íslendingar
hafa eignast stóran jafnaðarmannaflokk sem er til alls vís.
DAGOBERTO RODRIGUEZ
Kúbverski embættismaðurinn Rodriguez
talar við bandaríska fjölmiðla.
Kúba og Bandaríkin:
Samskiptin
versna
MILLIRÍKJADEILA Ástandið versnar
enn á milli stjórnvalda í Washington
og á Kúbu eftir að Bush ákvað að
bæta sjö Kúbverjum, sem starfa í
Washington, við hina sjö starfs-
menn Sameinuðu þjóðanna sem
þegar höfðu verið reknir úr landi.
Þetta er mesti fjöldi Kúbverja
sem bandarísk stjórnvöld hafa sent
úr landi á einu bretti. Utanríkisráð-
herra Kúbu sagði að nú ætti eftir að
ákveða viðbrögð við þessu „upp-
hlaupi“ Bandaríkjamanna. ■
Laxveiðitímabilið:
Bjartsýni
ríkjandi
LAXVEIÐI Laxveiðimenn líta björtum
augum á sumarið framundan. „Þeg-
ar vorar vel hjálpar það ánum og
laxinum. Það er talin ávísun á að
laxinn gangi snemma og að veiðin
byrji vel,“ segir Bergur Þ. Stein-
grímsson, framkvæmdastjóri
Stangveiðifélags Reykjavíkur. Seg-
ir hann mikinn hug í stangveiði-
mönnum, en laxveiðitímabilið byrj-
ar 1. júní þegar Norðurá í Borgar-
firði verður opnuð. Menn hafa þó
nokkrar áhyggjur af snjóleysi.
„Hættan er að árnar verði vatns-
lausar þegar líða fer á sumar,“ seg-
ir Bergur.
„Veiði fór vaxandi á síðasta
ári og í þeirri sveiflu má búast
við því að hún verði ekki lakari í
ár,“ segir Guðni Guðbergsson,
fiskifræðingur á Veiðimála-
stofnun. ■
SKOTTULÆKNINGAR
Þeir sem fyrir slíkum falsloforðum
standa hljóta því að bera nokkra
siðferðilega ábyrgð gagnvart fólki
í neyð vegna alvarlegra sjúkdóma.
Landlæknir í bréfi til forsvarsmanna
sértrúarsöfnuða. DV, 14. maí.
SKOTTUGUÐFRÆÐI
Þessar yfirlýsingar landlæknis um
það að Guð lækni ekki menn eru
bara fáránlegar.
Gunnar Þorsteinsson kenndur við
Krossinn. DV, 14. maí.
NÝTT SJÓNARHORN
Og ef þú, lesandi góður, ert á leið-
inni í leikhúsið á næstunni, þá
mundu að það er fólk hér í þessu
ágæta landi sem er rangeygt og
bíður eftir því að komast í aðgerð.
Daníel Þorkell Magnússon, kennari
með tennisolnboga og framstæðar tenn-
ur. Fréttablaðið, 12. maí.
Orðrétt
Thymematernity
Verslun fyrir barnshafandi konur
Hlíðasmára 17, s. 575-4500
Sendum í póstkröfu um allt land.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
Full búð af nýjum sumarvörum
...gallabuxur...quartbuxur....sundföt....kjólar......bolir....
...og bumbukremið !!!
Kynnum nýja
undirfatalínu...seamless
30% afsláttur
af völdum vörum.