Fréttablaðið - 16.05.2003, Page 11
Það er til heilla þegar þjóðumtekst að fóstra góða foringja í
stjórnmálum. Með allri virðingu
fyrir jöfnuði er það oftast svo að
þegar hópur stendur frammi fyrir
óunnu verki fer best á því að einn úr
hópnum taki að sér forystuhlutverk-
ið. Ekki til að knýja fram sinn vilja
eða feta þá leið sem hann telur besta
heldur til að lesa í væntingar hóps-
ins og byggja upp sátt um hvaða leið
er valin. Stundum byggja þjóðir upp
sterka foringja sem duga árum sam-
an. Algengast er að þjóðir skipti
reglulega um foringja. Þeim sem
áður hentaði til ákveðinna verka er
skipt út fyrir annan sem þykir henta
betur til næstu verka.
Eftir kosningarnar er staðan sú
að nánast allir stjórnmálaforingjar
okkar eru hálf lasnir. Flestir urðu
fyrir skráveifum í kosningabarátt-
unni og uppgjöri hennar; kosningun-
um. Enginn óx í kosningunum.
Það er helst Halldór Ásgrímsson
sem stækkaði þótt flokkurinn hans
hafi minnkað. Það leit svo illa út um
tíma að það að komast í gegnum
kosningarnar er nokkurs konar sig-
ur. En þrátt fyrir að kosningarnar
hafi fest lykilhlutverk Framsóknar-
flokksins í íslenskum stjórnmálum í
sessi er ólíklegt að Halldóri takist að
vinna úr stöðunni. Til þess skortir
hann vilja til að stofna til ríkis-
stjórnar með öðrum en sjálfstæðis-
mönnum. Hann virðist sem fyrr
vera í hlutverki Hjalta Úrsus;
mannsins sem var alltaf númer tvö.
Kosningarnar voru mesta áfall
sem Davíð Oddsson hefur orðið fyr-
ir á stjórnmálaferli sínum. Flokkur-
inn hans er nú næstum jafn lítill og
eftir stórt tap í kosningum 1978. Það
tap kom í kjölfar mikilla erfiðleika í
efnahags- og atvinnumálum. Í dag
er flest í góðu lagi. Tapið núna er því
innanhússvandi sjálfstæðismanna
og þar sem flokkurinn tapar mestu í
kjördæmi formannsins er ekki hægt
annað en eigna Davíð sjálfum stærs-
ta hlutann af tapinu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
lagði allt undir í þessari kosninga-
baráttu. Samfylkingarfólk hafði
beðið þess að hún mætti til leiks. En
þar sem hún getur aðeins einu sinni
leikið þann leik varð uppskeran að
verða ríkuleg. Enda voru vænting-
arnar miklar: Samfylkinguna upp að
Sjálfstæðisflokki, fall ríkisstjórnar-
innar, Ingibjörgu sem forsætisráð-
herra. Þrátt fyrir góða kosningu
gekk þetta ekki eftir. Eina markmið-
ið sem náðist var að nú geta sjálf-
stæðismenn ekki talað eins og þeir
einir endurspegli sjónarmið stórs
hóps landsmanna. En áhrifin af
þessu munu framkallast hægt og
bítandi. Eftir stendur Ingibjörg án
þingsætis, án embættis borgarstjór-
ans í Reykjavík og án formlegrar
stöðu sem forystumaður Samfylk-
ingarinnar.
Steingrímur J. Sigfússon er lask-
aður eftir kosningarnar. Þrátt fyrir
vísbendingar á kjörtímabilinu
reyndist flokkur Vinstri grænna
vera smáflokkur sem vegna einarðr-
ar stefnu í flestum málum höfðar að-
eins til lítils hluta þjóðarinnar.
Styrkurinn er ekki nægur til að
knýja á um afgerandi stefnubreyt-
ingar í ríkisstjórn ef flokkurinn
kæmist í þá stöðu. Vegna stefnu
sinnar og styrks eru Vinstri grænir
dæmdir til stjórnarandstöðu.
Guðjón A. Kristjánsson má vel
við una eftir kosningarnar. Honum
tókst að búa til stærri þingflokk
kringum andúð á kvótakerfinu en
Kvennalistanum tókst á sínum tíma
að safna saman um kvenfrelsissjón-
armið. Hins vegar er flokkur Guð-
jóns of smár til að ná fram miklum
breytingum. Án efa hefði flokkurinn
orðið stærri ef Guðjóni hefði tekist
að gera hann að heildstæðan með
stefnu í öllum málum. Það verk bíð-
ur Guðjóns – eða komandi forystu-
manna flokksins.
Þannig er nú landslagið; dálítið
mishæðótt en engir tindar. Það eitt
er náttúrlega breyting frá síðustu
árum. Kannski var þjóðin orðin leið
á sterkum foringjum og vildi annars
vegar veita þeim ráðningu og hins
vegar ekki of mikið brautargengi. ■
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
■ skrifar um eftirmála kosninganna.
12 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Það er óneitanlega sérkenni-legt að horfa upp á Samfylk-
inguna hella sér út í ótímabæran
formannsslag nokkrum dögum
eftir kosningar, þar sem flokkur-
inn vann ágætan kosningasigur.
Það er enn sérkennilegra í ljósi
þess að flokkurinn stendur nú á
hliðarlínunni í stjórnarmyndun-
arviðræðunum og vill vera lík-
legur ríkisstjórnarflokkur og val-
kostur til samstarfs.
Svo virðist sem forystumenn
flokksins hafi ekki verið búnir að
koma sér upp
neinni áætlun um
hvað skuli gera ef
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir kæm-
ist ekki inn á þing,
svo ótrúlegt sem
það nú er. Það er
einfaldlega veikt,
jafnt inn á við sem
út á við, ef einn
helsti foringi
flokksins og sá
sem hampað er í
einhverri mestu foringjadýrkun
sem sést hefur hjá jafnaðar-
mönnum á Íslandi, heldur áfram
að vera bónapartískur leiðtogi án
nokkurrar formlegrar stöðu í
flokknum.
Á sama tíma sýnist hinn eigin-
legi formaður einungis formleg-
ur foringi, en ekki sá sem horft
er til sem óskoraðs leiðtoga.
Forystuparið
Þessi staða vekur jafnframt
upp þá spurningu hvort forystu-
par Samfylkingarinnar sé í raun
jafn snjallir taflmenn og menn
hafa talið þau vera. Þau mis-
reiknuðu gjörsamlega að eigin
sögn pólitískar afleiðingar þess
að Ingibjörg Sólrún settist í 5.
sætið í Reykjavík norður.
Í dag hælir Ingibjörg sér
meira að segja af þessum mis-
reikningi og segir að það hafi
komið í ljós að þetta hafi aldrei
verið nema varaþingmannssæti
eins og hún hafi alltaf sagt. Hún
er með öðrum orðum enn að gefa
til kynna að viðbrögð Vg og
Framsóknar hafi á sínum tíma
verið móðursýkisleg, sem er afar
sérkennilegt af foringja sem er
að biðla til þessara sömu aðila um
stjórnarsamvinnu.
En næsti leikur forystupars-
ins var að gera Ingibjörgu að for-
sætisráðherrahefni og aðalfram-
bjóðanda Samfylkingarinnar á
landsvísu. Segja má að það hafi
verið þvingaður leikur hjá Sam-
fylkingunni sem gekk bærilega
upp.
En undrun sætir að nokkrum
manni detti í hug að hægt sé að
leggja nýjan foringja til hliðar
eins og hverja aðra hilluvöru eft-
ir að hafa vakið hann upp með
jafn viðamikilli flugeldasýningu
og gert var með Ingibjörgu Sól-
rúnu. Það kemur því á óvart, að
hin vandræðalega staða for-
ingjaparsins eftir kosningarnar
skuli koma Össuri og Ingibjörgu
Sólrúnu á óvart, og að þau skuli
ekki vera tilbúin með næstu leiki.
Uppákoma af þessu tagi spillir
fyrir Samfylkingunni, því al-
mennt gildir að flokkur sem býr
við áberandi heimilisvandamál
er minna spennandi samstarfsað-
ili en flokkur án slíkra vanda-
mála. Það er því aðkallandi fyrir
Samfylkinguna að leysa þetta
mál með einhverjum hætti strax.
Á áhorfendapöllum
Stjórnarmyndunarviðræður
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks
virðast ganga vel ef marka má
fréttir. Við öðru er varla að búast
– ekki svona fyrstu vikuna eða
svo í það minnsta. Í stefnumiðum
og samskiptum þessara flokka
eru margir snertifletir og ýmsar
ójöfnur og óþægilegir núnings-
fletir hafa slípast af í löngu sam-
starfi. Yfirgnæfandi líkur eru því
á að þessir flokkar nái saman.
Það breytir ekki því að kosn-
ingarnar um helgina hafa breytt
miklu og það eru uppi miklar
væntingar um breytingar, bæði í
stjórnarflokkunum sjálfum og
ekki síður úti í þjóðfélaginu.
Stóra breytingin er að mörg rík-
isstjórnarmynstur eru nú í spil-
unum, ýmist tveggja flokka,
tveggja og hálfs flokks eða
þriggja flokka stjórnir.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
hér í Fréttablaðinu í gær að
stjórnarandstaðan væri í hlut-
verki áhorfandans og hlyti að
virða þær reglur að blanda sér
ekki í stjórnarmyndunarviðræð-
ur annara flokka.
Hins vegar gildir um þetta
rétt eins og íþróttakappleiki, að
það getur skipt máli hvernig
áhorfendur hegða sér. Það getur
jafnvel skipt sköpum. Enda gefur
Steingrímur Framsóknar-
maddömmunni kurteisislega
undir fótinn og gerir lítið úr
hugsanlegum vandkvæðum við
það að búa til önnur stjórnar-
mynstur en það sem nú er uppi í
hinum formlegu viðræðum.
Þannig gerir hann sitt til að
halda vakandi og á dagskrá val-
kosti sem hugsanlega geti truflað
yfirstandandi viðræður og haft
áhrif á framvinduna. Ummæli
formanns Vg eru því eðlileg og
sjálfsögð í þessari stöðu og mun
líklegri til að hafa áhrif á gang
leiksins en vandræðaleg innan-
hússátök og foringjaslagur á
áhorfendapöllum Samfylkingar-
innar. ■
Hugleiðing-
ar öryrkja
K.E. skrifar:
Það er sárt að vera talinn aum-ingi í þjóðfélaginu eingöngu
vegna þess að maður er öryrki. Ör-
yrkjar lifa við eða undir fátækra-
mörkum. Ég
vildi óska þess að
þeir, sem ekki
viðurkenna að
fátækt er stað-
reynd, reyndu
sjálfir að lifa á
þeim bótum sem
öryrkjar fá
hvern mánuð.
Ástæðan fyrir
því að ég skrifa
eru mínar eigin
aðstæður. Ég hef
um 85.000 kr. á
mánuði og af því þarf ég að greiða
af tveimur lánum, samtals 44.000
krónur. Hvern mánuð þarf ég að
greiða 1.200 kr. lyfjakostnað og
6.000 krónur í tannviðgerðir sonar
míns. Ef ég leigði lítið herbergi
myndi það kostar 25.000 krónur.
Eftir stæðu 8.800 krónur sem ég
ætti til að kaupa fæði, klæði og
aðrar nauðþurftir. Myndir þú, les-
andi góður, eða þið sem teljið enga
fátækt til á Íslandi, lifa á þessu?
Ekki frekar en ég.
Þegar ég skrifa þetta hef ég
ekki borðað í fjóra daga, aðeins
drukkið vatn og kaffi. Þá er nætur-
staður minn ein hilla í iðnaðarhús-
næði.
Á sínum tíma leitaði ég til
Helga Hjörvar, þáverandi for-
manns félagsmálaráðs, en mætti
einungis dónalegu viðmóti. Þá
sendi ég Ingibjörgu Sólrúnu,
þáverandi borgarstjóra, bréf sem
aldrei var svarað og núverandi
borgarstjóri segir þetta mál ekki
koma sér við. Ég vona að þeir sem
hafa með húsnæðismál að gera lesi
þetta og fari að hugsa sinn gang.
Ég hef borgað mína skatta og
skyldur í 27 ár og tel mig hafa
áunnið mér rétt á aðstoð í ljósi
þess hvernig komið er fyrir mér. ■
Um daginnog veginn
BIRGIR
GUÐMUNDSSON
■
stjórnmálafræðingur
skrifar um uppákomur
í Samfylkingunni og
stjórnarmyndun.
Furðulegur
formannsslagur
■ Bréf til blaðsins Lasnir foringjar
Ómar R. Valdimarsson
ritstjóri pólitík.is
Snyrtilega gert
Mér fannst þetta ákaflega snyrtilega gert hjá honum.
Þjóðin hefur lengi beðið eftir að hann gangi í hjónaband
og það var stórkostlegt hjá honum að slaufa afmælis-
deginum með þessum hætti. 25. maí næstkomandi verða
liðin þrjú ár frá því hann opinberaði trúlofun sína, þetta
var heldur löng trúlofun. Brúðkaupið hefði mátt vera
fyrr en honum tókst að gera þetta innan ágætra tíma-
marka. ■
Elín María Björnsdóttir
umsjónarmaður Brúðkaupsþáttarins Já
Hefði viljað brúðkaup
„Ég hefði viljað fá Ólaf Ragnar og
Dorrit í Brúðkaupsþáttinn Já, ég stend enn og bíð.
Mér finnst hann hefði mátt gefa okkur smá brúðkaup.
Þetta er nú einu sinni aðalsbrúðkaup og ekki á hverju
degi sem slíkt gerist hér á Íslandi. Mér finnst að fólk
eigi ekki að vera trúlofað lengur en ár. Samkvæmt ís-
lensku hefðinni á fólk að ganga í hjónaband innan árs
frá því að trúlofun er gerð opinber, hann er fyrir
löngu búinn að fara fram úr þeirri hefð. Mér finnst
það gleðilegt og alveg kominn tími til þess að þau
Dorrit og Ólafur giftust. ■
Sveik Ólafur Ragnar þjóðina um brúðkaup?
Skiptar skoðanir
■ Af Netinu
Sami söngurinn
„...einungis fjórir af 22 þing-
mönnum íhaldsins eru konur.
Þessi staðreynd veldur
þó forystu Sjálfstæðisflokksins
litlu hugarangri. Þar á bæ
hefja menn ætíð sama sönginn
um að flokkurinn hafi gert Auði
Auðuns að ráðherra fyrir rúmum
þremur áratugum og fyrir það
megi konur prísa sig sælar.“
STEFÁN PÁLSSON Á VEFNUM MURINN.IS
Framsóknarsigur
„Sigurvegarar í kosningu eru
þeir sem mynda stjórn, hvort
sem fylgið jókst, dróst saman
eða stóð í stað.“
HALLDÓR N. LÁRUSSON Á VEFNUM HRIFLA.IS
Vönduð-Glæsileg
Nýjar glæsilegar myndir inná heimasíðu okkar
www.borgarhus.is
Uppl. í síma 894-3555
■
Það breytir ekki
því að kosning-
arnar um helg-
ina hafa breytt
miklu og það
eru uppi miklar
væntingar um
breytingar,
bæði í stjórnar-
flokkunum
sjálfum og ekki
síður úti í þjóð-
félaginu.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff giftu sig á afmælisdag forsetans, þann 14. maí.