Fréttablaðið - 16.05.2003, Page 20
22 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
TÁKN UM ENDURUPPBYGGINGU
Þessar tvær kirkjubyggingar standa við
Kurfürstendamm. Gamla kirkjan hrundi
nánast til grunna eftir sprengjuárás Banda-
ríkjamanna í seinni heimstyrjöldinni. Í stað
þess að rífa hana var byggð önnur nýtísku-
legri við hliðina. Er þetta táknrænt fyrir
Berlín og þá enduruppbyggingu sem átt
hefur sér stað í borginni.
FERÐALÖG Berlín hefur skipað sér
sæti með London, París og Róm
sem ein mest heimsótta stórborgin
í Evrópu. Í dag býðst Íslendingum
að fljúga beint til borgarinnar í
gegnum ferðaskrifstofuna Terra
Nova Sol með þýska flugfélaginu
Aero Lloyd.
Berlín er vissulega stórborg og
nær yfir 890 ferkílómetra svæði.
Til samanburðar er hún níu sinnum
stærri en París. Góðar samgöngur
eru í Berlín og nokkuð auðvelt að
átta sig á neðanjarðarlestarkerfinu.
Hagstætt er að verða sér úti um al-
menningssamgöngukort, „Welcome
Card“ sem dugar ótakmarkað í öll
samgöngutæki í 72 klukkustundir.
Í Berlín úir og grúir af alls kyns
veitingastöðum sem marga hverja
er hægt að sækja hvenær sem er
sólarhringsins. Gæta verður að því
að ekki eru allir veitingastaðir með
kreditkortaviðskipti. Verðlag í
Berlín er nokkuð gott, hvort sem er
á mat eða drykk. Þá er mjög gott að
versla og finna má allar helstu
tískufataverslanirnar á aðalversl-
unargötunni Kurfürstendamm. Á
þeirri götu er einnig hið gríðarstóra
vöruhús KadeWe.
Berlín er sérstök að því leyti að
garðar, vötn og síki ná yfir 30%
borgarinnar. Það er fátt yndislegra
en að sigla um síkin í góðu veðri og
skoða Berlín frá öðru sjónarhorni.
Margir möguleikar eru í boði því
siglingaleiðir ná yfir 180 kílómetra
svæði.
Nýbyggingar á einskismannslandi
Eftir hrun Berlínarmúrsins 1989
hefur uppbygging verið jöfn og
þétt í borginni. Árið 1991 varð
Berlín að nýju höfuðborg Þýska-
lands og átta árum síðar var lokið
við að flytja alla stjórnsýslu lands-
ins frá Bonn. Byggingarfram-
kvæmdir hafa verið gríðarlegar í
Berlín á undanförnum árum.
Helstu ummerki þess má sjá á Pots-
damer Platz þar sem nýtískulegar
byggingar tróna hlið við hlið. Þetta
torg, sem á fjórða áratugnum hafði
orð á sér fyrir að vera mesta um-
ferðartorg Evrópu, breyttist í ein-
skismannslands eftir að Berlínar-
múrinn var reistur.
Lítið stendur eftir af múrnum
sem áður skildi að íbúa Berlínar.
Það sem eftir stendur prýðir nú
graffitílist eftir unga listamenn,
verk sem eiga það sameiginlegt að
vera táknræn um aðskilnað austurs
og vesturs.
Tvennt af öllu
Vegna fyrrum aðskilnaðar má
finna tvennt af öllu í Berlín. Þar á
meðal eru háskólar, óperuhús og
dýragarðar. Annar þeirra, Zoolog-
ischer Garten, er sá elsti í Þýska-
landi og þriðji elsti í Evrópu.
Berlín er mikil menningarborg
og á degi hverjum er hægt að velja
á milli fimmtánhundruð menning-
arviðburða. Í borginni eru eitt-
hundrað og sjötíu söfn og sýning-
arsalir. Hægt er að kaupa sér að-
gang inn á safn í eigu ríkisins fyr-
ir sex evrur og gildir miðinn ótak-
markað þann daginn í önnur söfn í
eigu ríkisins.
Hvort sem menn vilja fara til
Berlínar til að upplifa þýska
stemningu með samblandi af öli og
súrkáli, versla, stunda næturlífið,
sækja sýningar eða upplifa hina
fjölbreyttu menningu og sögu
borgarinnar er óhætt að fullyrða
að Berlín veldur ekki vonbrigðum.
kolbrun@frettabladid.is
Berlín – borgin
sem aldrei sefur
Sífellt fleiri leggja leið sína til Berlínar. Ferðaskrifstofan Terra Nova Sol
býður nú beint leiguflug til þessarar borgar sem iðar af lífi.
FRÁ BERLÍN
Stórhýsin við Potzdamer Platz voru byggð á árunum 1993 til 1998. Um tíma voru um 100
byggingarkranar notaðir við byggingarvinnu og var torgið eitt stærsta byggingarsvæði í
Evrópu. Á Potzdamer Platz er stærsta spilavíti í Þýskalandi, 8.000 fermetrar að stærð.
Í TALI OG TÓNUM
Safnið „Story of Berlin“ leiðir fólk í gegnum sögu Berlínarborgar með gagnvirkum hætti.
Safnið er við Kurfürstendamm, aðalverslunargötu Berlínar. Það er vel þess virði að heim-
sækja safnið og ekki má láta hjá líða að fara niður í kjarnorkubyrgið í kjallaranum. Byrgið
er í fullri starfsemi og getur hýst rúmlega 3.500 manns í 14 daga. Með hljóðupptökum er
fólki gefinn kostur á að upplifa hvernig það er að lenda í miðri sprengjuárás.
KURFÜRSTENDAMM
Verslunargatan Kurfürstendamm iðar af lífi. Við hana eru helstu tískufataverslanirnar og
hönnuðir. Veitingastaðir eru á hverju götuhorni og götulistamenn sýna listir sínar. Verslun-
armiðstöðin KaDeWe er við enda götunnar. Eins má finna verslunarmiðstöðvar á
Friedrichstrasse og Potsdamer Platz. Verðlagið á kvenfatnaði er þokkalegt og verð á
barnafötum afar hagstætt.
KOSS DAUÐANS
Það stendur ekki mikið eftir af Berlínarmúrnum. Hann prýða nú graffitiverk sem gaman er að sjá. Í þessu verki sjást Brjésnév, fyrrum Sovét-
leiðtogi og Honecker aðalritari austur þýska kommúnistaflokksins, kyssast. Verkið kallar listamaðurinn, Christian „Lake“ Wahle, Koss dauðans.
Gifssteinar fyrir
milliveggi og aðra
breytingarvinnu.
www.gifsverk.is
Claire Lenet frá Ella Baché býður ykkur í
ókeypis prufutíma í Sonocare hjóðbylgju-
meðferð að eigin vali fyrir andlit eða lík-
ama. Tímapantanir föstudag 16. maí.
Ella Baché
Sonocare hjóðbylgjumeðferð
Snyrtistofan
Jóna
Sími 554 4414
Snyrtistofan
Greifynjan
Sími 587 9310