Fréttablaðið - 16.05.2003, Qupperneq 24
LISTIR Spennan fyrir útskriftarsýn-
ingu Listaháskóla Íslands er árlega
mjög mikil enda varla hægt að
finna betri ávísun á frumlega
skemmtun allt árið um kring. Hún
gæti heldur ekki verið á betri tíma.
Vor er í lofti og sköpunarorkan í há-
marki. Ungir listamenn í blóma fá
svo loks tækifærið sem þau hafa
beðið eftir og viðurkennir Hjálmar
H. Ragnarsson, rektor Listaháskól-
ans, að nemendurnir komi honum
alltaf á óvart.
„Ég, sem tónlistamaður, læri
mjög mikið af hugsunarhætti þessa
fólks. Þetta er afar örvandi. Ég hitti
líka fólk úr öðrum listgreinum sem
fer á sýninguna. Fólki finnst sýn-
ingin gefa sér ofboðslega mikið.“
Alls eiga 56 nemendur verk á
sýningunni, 28 í hönnun og 28 í
myndlist. Í ár er útskriftarsýningin
haldin í fyrsta skipti í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu.
„Hún hefur hingað til verið í
húsnæði skólans á Laugarnesi. Það
hefur gefið færi á mjög frjálslegri
framsetningu. Sýningin hefur því
oft verið ótamin og allt að því leik-
húsleg. Nú erum við í rými sem
gerir öðruvísi kröfur og um meiri
atvinnumennsku. Í þeim skorðum
sem nemendum eru settar í ár felst
bæði krafa um ögun og um leið
tækifæri til þess að sýna sig með
allt öðrum hætti. Þeir fá núna tæki-
færi til þess að sýna sig á þeim víg-
velli sem þeir eiga eftir að sýna á í
framtíðinni. Þannig geta þeir líka
mælt sig við það besta sem er í
gangi í dag.“
Hjálmar segir að ferlið sé
þannig að nemendur þurfi að láta
vita vel fyrir jól hvað þeir hugsi sér
að vinna sem lokaverk-
efni. Auk þess að setja
upp verk sín á sýningunni
þurfa nemendur að skila
BA-ritgerð sem á að vera
eins konar leiðarvísir inn í
hugarheim þeirra. Hann
segir það algengt að lista-
mennirnir velji sér miðil
fyrir útskriftarsýninguna
sem þeir svo haldi sig við í sínum
störfum.
„Þarna er auðvitað afar kraft-
mikið fólk. Það er á þeim árum sem
sköpunarkrafturinn er sem villtast-
ur. Það er mjög mikið sótt í þessa
krakka. Ég gekk með borgarstjóra í
gegnum sýninguna um daginn.
Hann var markaðsfræðingur ársins
í fyrra. Hann leyndi ekki aðdáun
sinni á þeirri hönnun sem hann sá á
sýningunni. Hann taldi strax þrjá,
fjóra sem hann hefði ráðið í vinnu
ef hann væri enn á þeim nótunum.“
Sýningin stendur til fimmtu-
dagsins 29. maí og er opið til kl.
17.00 alla daga. Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimill. Á morgun, laug-
ardag, halda nemendur úr fata-
hönnunardeild skólans tískusýn-
ingu í portinu.
biggi@frettabladid.is
26 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Daglegt flug
til Kaupmannahafnar
Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar alla daga.
Skoðaðu og bókaðu á IcelandExpress.is eða komdu á söluskrifstofuna
Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga.
Lág fargjöld. Engin bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Stórhöfða 17, v. Gullinbrú · 577 5555
· 577
556
6
6 vikna átak með einkaþjálfara
Þú verður í fínu formi í sumar
Skráning og upplýsingar hjá:
Smára einkaþjálfara í síma 896-2300 / 588-2366
Siggu Dóru einkaþjálfara í síma 692-3062
Veggsport í síma 577-5555
Einkaþjálfari aðeins með þér
3 x í viku í Veggsport
Úti ganga - skokk - hlaup
1 x í viku, val eftir getu og áhuga
Úlfarsfell ganga - skokk - hlaup
1 x í viku, val eftir getu og áhuga
JÓNA BJÖRK
„Sum börn kunna að fljúga“, olía á striga.
Villtur
sköpunarkraftur
GUÐRÚN LÁR
„Vor/Sumar 2003“
LÓA HLÍN
„Allt í sóma í Oklahóma“
Hin árlega útskriftarsýning Listaháskóla Íslands er nú haldin í fyrsta
skipti í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Alls eiga 56 nemendur verk á sýningunni.
SÓLVEIG RUNÓLFSDÓTTIR
„Loki“
ÍRIS EGGERTS
„Aðlögun“
SÓLVEIG EGGERTS
„I’d like to buy the world a coke“.
HILDIGUNNUR BIRGISDÓTTIR
„Kambsvegur 21“
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT