Fréttablaðið - 16.05.2003, Qupperneq 38
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Stöðugleiki
Sportleg í sumar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
11
46
05
/2
00
3
Smáralind
mán.-fös. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
Glæsibæ
mán.-fös. kl. 10-18
lau. kl. 10-16
OPIÐ
www.utilif.is
Smáralind - Glæsibæ
Sími 545 1550 og 545 1500
Ótrúlegt úrval af sumarfatnaði á frábæru verði.
Bolir, verð frá 2.490 kr.
Buxur, verð frá 4.990 kr.
Stöðugleiki er vandasamt hug-tak. Ef maður er alltaf jafn lat-
ur, alltaf jafn óreglusamur, alltaf
jafn blankur, alltaf jafn ósann-
gjarn, alltaf jafn reiður, alltaf jafn
fúll og alltaf jafn leiðinlegur, er
með góðum rökum hægt að halda
því fram að stöðugleiki ríki í fari
manns. Það væri stöðugleiki let-
innar, óreglunnar, blankheita,
ósanngirni, reiði, fúllyndis og leið-
inda. Maður væri samur við sig.
Mjög stöðugur, sem slíkur. En leið-
inlegur.
ÞETTA ER dálítið svona með ís-
lenska stöðugleikann. Svo lengi
sem það er stöðug skuldaaukning í
sjávarútvegnum, stöðugt meiri fá-
tækt, stöðugt lakara velferðar-
kerfi, stöðugt hátt matvælaverð,
stöðugt meira launabil, stöðugar
gengissveiflur, stöðugt háir vextir
og stöðug verðtrygging, þá ríkir
stöðugleiki. Allt gerist þetta nefni-
lega með mjög stöðugum hætti.
Háir vextir, til að mynda, og verð-
trygging gera það til dæmis að
verkum að fólk sem skuldar sekk-
ur almennt stöðugt dýpra.
BARA SVO LENGI sem það
gerist stöðugt, þá er allt í lagi. Það
má alltaf stóla á stöðugleikann. Á
Íslandi er hægt að stóla á það að
hundruð milljarða muni flæða yfir
landið bráðum. Þá verður stöðug
þensla og stöðug ruðningsáhrif. Ég
er stöðugt stressaður yfir þessu.
Það er ekki nóg með að mér líði
eins og skriða sé á leiðinni og ég
geti orðið undir henni og drepist.
Ég er líka stöðugt stressaður yfir
því að eftir að skriðan er afstaðin
munu allir hafa náð að krækja sér
í góðan skerf af öllum þessum pen-
ingum, henda einni fötu í gull-
strauminn, nema ég.
ÉG ER STÖÐUGT blankur. Sem
minnir mig á eitt. Það er í raun ein
gleggsta birtingarmynd stöðug-
leikans að lán sem maður tekur
standa alltaf alveg í stað. Krónu-
talan hreyfist aldrei. Ekki bofs.
Hún stendur grafkjur, sama hvað
maður borgar. Þetta kemur mér
stöðugt á óvart. Ef maður tekur
milljón að láni, skuldar maður
alltaf milljón. Það er ekki bara
stöðugleiki. Það er magnaður stöð-
ugleiki.