Fréttablaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 24 Íþróttir 18 Sjónvarp 26 KVÖLDIÐ Í KVÖLD JÁTNINGAR Erfitt að standa með eiginmanninum TÓNLIST Loftskip rokksins FIMMTUDAGUR 5. júní 2003 – 127. tölublað – 3. árgangur bls. 4 KYNNI Hraðstefnumót verkfræðings bls. 32 Varnarsamstarf til umræðu VARNARMÁL Elisabeth Jones, aðstoð- arutanríkisráðherra Bandaríkj- anna, fundar með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ás- grímssyni utanríkisráðherra um framtíð varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. Ráðherranefnd til Raufarhafnar ATVINNUMÁL Nefnd sem Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, og Árni Magnússon fé- lagsmálaráðherra skipuðu til að fjalla um vanda íbúa Raufarhafnar kemur til viðræðna við heimamenn í dag. Fjármálin rædd RÁÐHERRAFUNDUR Fjármálaráðherr- ar aðildarríkja Eystrasaltsráðsins halda árlegan fund sinn í Eldborg við Bláa lónið í dag. Þeir ræða hvernig stjórnvöld geta örvað hag- vöxt án þess að það leiði til þenslu og áhrif stækkunar Evrópusam- bandsins á gengisþróun. STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V SJÁVARÚTVEGUR Úrskurður fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins um að úthlutun byggða- kvóta á Orkneyjum og Hjalt- landseyjum sé ólögleg hefur ekki áhrif hér, segir Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. Hann segir sjávarútvegsmál ekki heyra undir samninginn um Evrópska efna- hagssvæðið og því sjái hann það ekki í hendi sér að úrskurðurinn hafi áhrif á Íslandi. „Ég get samt ekki svarað því endanlega,“ segir Árni. „Þetta mun hins vegar örugglega hafa töluverð áhrif innan Evrópusam- bandsins og gæti þess vegna gert það hér því við tökum mið af því sem gerist þar. Við munum fara yfir þetta mál á næstu dögum.“ Árni segist ekki hafa vitað af þessu máli en úrskurðurinn komi ekki á óvart. Gríðarlega vanda- samt sé að úthluta byggðakvótum eins og reynslan hérlendis hafi sýnt. Aðspurður segir Árni að þetta mál sé ekki vatn á myllu andstæð- inga um inngöngu Íslands í Evr- ópusambandið. „Ég held að þetta hafi engin sérstök áhrif á það enda er sú umræða ekki í þeim farvegi núna.“ Sveitarstjórnirnar í Orkneyj- um og á Hjaltlandseyjum keyptu kvóta og leigðu hann síðan til sjó- manna á eyjunum á hagstæðu verði, þar sem þeir höfðu sjálfir ekki efni á að kaupa kvóta. ■ Evrópusambandið bannar leigu byggðakvóta: Hefur ekki áhrif hér REYKJAVÍK Austlæg átt 3-8 m/s og þurrt að kalla. Skýjað með köflum en skúrir síð- degis. Hiti 8 til 15 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Rigning 7 Akureyri 3-8 Skýjað 9 Egilsstaðir 3-8 Skúrir 8 Vestmannaeyjar 3-8 Bjartviðri 8 ➜ ➜ ➜ ➜ + + BYGGÐAMÁL Síðasta áratuginn hef- ur forræði yfir örlögum margra sjávarþorpa færst úr heimabyggð í hendur stjórnenda stórra sjávar- ú t v e g s f y r i r - tækja í öðrum sveitarfélögum sem orðið hafa til við samruna í sjávarútvegi . Stórfyrirtæki á borð við Sam- herja og Brim, móðurfélag útgerðarfélags Akur- eyringa, Haralds Böðvarssonar og Skagstrendings, hafa eignast ráð- andi hlut í sjávarútvegsfyrirtækj- um þorpa sem eiga allt sitt undir sjósókn. Vandi Raufarhafnar er til marks um þetta. Þar ráða heima- menn yfir 405 tonnum af 1.650 tonnum veiðiheimilda sem skráð- ar eru í sveitarfélaginu. Stærstur hluti veiðiheimildanna, 980 tonn, er á forræði Útgerðarfélags Ak- ureyringa og landað annars stað- ar. „Það skiptir höfuðmáli hvar eignarhaldið liggur,“ segir Krist- inn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks og fyrrum stjórnarformaður Byggðastofnun- ar. „Ef þú býrð á Akureyri viltu byggja upp þar. Hins vegar er vel hægt að reka fiskvinnslu með hagnaði í Raufarhöfn.“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, segir að kvótakerfið með frjálsu framsali veiðiheimilda sé undirliggjandi og ein meginorsök öryggisleysis sem velflest minni sjávarpláss á Ís- landi búi við. „Þannig verður það áfram þangað til aðgangur að auð- lindinni verður með einhverjum hætti byggðatengdur.“ „Mér sýnist að vandinn sem þar er við að glíma sé ekki síst að ekki hafi verið rekstrargrundvöll- ur fyrir þeirri starfsemi sem þar hefur farið fram,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks. Hann segir að burtséð frá eignarhaldi sé ljóst að ekkert fyrirtæki þoli til lengdar taprekstur eins og þann sem Jök- ull var rekinn með. „Það er búið að stela af þeim þúsund tonna kvóta og þeir sem eftir eru virðast notfæra sér rétt- inn til að framselja kvótann,“ seg- ir Magnús Þór Hafsteinsson, vara- formaður Frjálslynda flokksins, sem kennir kvótakerfinu um hvernig komið er fyrir Raufar- höfn. meira á bls. 10 Örlög sjávarþorpa í höndum stórfyrirtækja Ákvörðunarvald um rekstur sjávarútvegsfyrirtækja og þar með örlög sjávarþorpa hefur færst úr heimabyggð til Reykjavíkur og Akureyrar með samþjöppun eignarhalds. BREYTT OG BÆTT Í BANKASTRÆTI Framkvæmdir við vegbætur í Bankastræti eru enn í fullum gangi og nokkuð verk óunnið. Þessa dagana er verið að ganga frá gangstéttum. Það styttist því í þann tíma þegar gangandi vegfarendur þurfa ekki lengur að ganga um möl- ina í Bankastræti. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI bls. 22              ! "# %"#&$   „Ef þú býrð á Akureyri viltu byggja upp þar. ÁRNI M. MATHIESEN Árni segir sjávarútvegsmál ekki heyra undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og því sjái hann það ekki í hendi sér að úrskurðurinn hafi áhrif hérlendis. Forseti Líberíu: Kærður fyrir stríðsglæpi SIERRA LEONE, AP Charles Taylor, forseti Líberíu, ber meiri ábyrgð á tíu ára borgarastyrjöld og óhæfuverkum í Sierra Leone en nokkur annar einstaklingur, seg- ir í kæru stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Vestur- Afríkuríkinu sem gefin var út í gær. Meðal þess sem Taylor er gef- ið að sök er að hafa selt Samein- uðu uppreisnarfylkingunni í Si- erra Leone vopn og stutt við bak- ið á henni með margvíslegum hætti. Liðsmenn fylkingarinnar hafa myrt, nauðgað, rænt og mis- þyrmt tugþúsundum óbreyttra borgara. Charles Taylor var einn stríðsherranna sem stýrðu fylk- ingum sem tókust á í sjö ára grimmilegu borgarastríði í Lí- beríu. Því borgarastríði lauk 1996 og Taylor varð forseti í kjöl- farið. Nú berjast tvær skæru- liðahreyfingar gegn stjórn Taylors. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.