Fréttablaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 2
2 5. júní 2003 FIMMTUDAGUR
“Já, en þó ekki oft.“
Ari Teitsson er formaður Bændasamtakanna.
Hann hefur ákveðnar áhyggjur af offramleiðslu á
kjúklingakjöti.
Spurningdagsins
Ari, borðar þú kjúklinga?
SVARAR TIL SAKA
Á meðal hinna ákærðu er Sandro Guala-
no, fyrrum forstjóri Enav, fyrirtækisins
sem annaðist flugumferðarstjórn á flug-
vellinum í Mílanó.
Réttað vegna flugslyss:
Vítavert
gáleysi
ÍTALÍA, AP Réttarhöld eru hafin yfir
ellefu einstaklingum sem ákærðir
eru fyrir manndráp og vítavert gá-
leysi í tengslum við dauða 118
manna þegar tvær flugvélar rák-
ust á á Linate-flugvellinum í
Mílanó í október 2001. Á meðal
sakborninganna eru flugumferðar-
stjórar, starfsmenn öryggisgæslu
og yfirmenn vallarins.
Mikil þoka var á flugvellinum
þegar slysið átti sér stað. Rann-
sókn leiddi í ljós að ratsjá á jörðu
niðri hafði verið tekin úr notkun
þar sem setja átti upp nýtt kerfi.
Ljós og aðrar merkingar á flug-
vellinum þóttu villandi auk þess
sem samskipti flugumferðarstjóra
og flugmanna annarrar vélarinnar
höfðu farið fram á ítölsku en ekki
ensku eins og lög gera ráð fyrir. ■
Ósáttir fangar:
Klifruðu
upp á þak
LUNDÚNIR, AP Fangauppþoti á betr-
unarhæli á Norður-Englandi lauk
með friðsamlegum hætti eftir rúm-
lega sólarhrings langt samninga-
þóf.
Að sögn fangelsisyfirvalda klifr-
uðu 20 vistmenn upp á þak síðast-
liðið mánudagskvöld. Sex þeirra
komu niður aftur seinni partinn á
þriðjudag en hinir fjórtán tíndust
niður hver á fætur öðrum aðfar-
anótt miðvikudags.
Fangarnir báru ekki fram neinar
kröfur en talið er að þeir hafi viljað
mótmæla breytingum á stjórnunar-
fyrirkomulagi fangelsisins og
minnkun æfingasvæðis. Starfs-
menn fangelsisins segja að þrengsl-
um hafi verið um að kenna. ■
FJÁRMÁL Embætti Tollstjóra lokaði
í gær veitingastaðnum Thorvald-
senbar og þá hefur heilsuræktar-
stöðinni Planet Reykjavík verið
lokað um óákveðinn tíma.
Fyrirtækin tengjast bæði þeim
Árna Þór Vigfússyni og Kristjáni
Ra Kristjánssyni, sem sátu í viku
í gæsluvarðhaldi vegna Lands-
símamálsins. Staðirnir tengjast
fyrirtækinu Lífstíl sem er í eigu
Árna Þórs, Kristjáns Ra og Bjarna
Hauks Þórssonar, sem í samtali
við Fréttablaðið vildi ekkert tjá
sig um málið að ráði lögmanna.
Embætti Tollstjóra innsiglaði
Thorvaldsenbar, en ekki fengust
um það upplýsingar hvaða vanskil
eru þar að baki. Ætla má þó að um
sé að ræða vörslugjöld.
Ríkislögreglustjóri hafði áður
krafist kyrrsetningar eigna
þeirra Árna Þórs og Kristjáns Ra
á meðan á rannsókn Landssíma-
málsins stendur en þessi aðgerð
nú tengist þeim málum ekki.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að lánardrottnar Lífstíls krefjist
þess að fyrirtækið losi um eignir.
Þar eru nefnd til sögunnar
Landsbankinn, Ölgerðin og Vífil-
fell hf. ■
Landssímamálið dregur dilk á eftir sér:
Thorvaldsen-
bar innsiglaður
THORVALDSENBAR
Lokað í gær vegna vanskila.
PLANET REYKJAVÍK
Lífstíll rekur stöðina sem er
lokuð um óákveðinn tíma.
FJÁRMÁL Upphaf Sölunefndarmáls-
ins þar sem innkaupastjóri var
kærður má rekja til þess að lög-
reglan á Keflavíkurflugvelli stöðv-
aði mann sem var á leið út af svæði
Varnarliðsins með Chevrolet
skúffubíl að árgerð 1990 þann 7.
nóvember í fyrra.
Lögreglan vildi fá
að vita hvort Sölu-
nefndin hefði keypt
bílinn. Bílstjórinn
gat ekki gefið full-
nægjandi skýringar en fór með
Chevrolet-bifreiðina í Sölunefnd-
ina, þar sem menn könnuðust ekki
við að hafa ætlað að festa kaup á
þeim bíl.
Það var innkaupastjóri Sölu-
nefndar varnarliðseigna sem fékk
bílinn í skemmu 666 á Keflavíkur-
flugvelli þar sem Varnarliðið af-
henti jafnan vörur sem Sölunefnd-
in festi kaup á. Bílinn fékk hann í
nafni Sölunefndarinnar gegn því
að láta farga honum. Alfreð Þor-
steinsson, fyrrverandi forstjóri
Sölunefndarinnar, segist hafa vís-
að manninum úr starfi mánuði
fyrr þegar í ljós kom að maðurinn
hafði keypt dýran jeppa framhjá
sölukerfinu og að auki tjaldvagn.
Fréttablaðið spurði Alfreð Þor-
steinsson hvernig stæði á því að
ekki hefði verið tilkynnt um meint
misferli starfsmannsins í október-
byrjun þegar tjaldvagnamálið kom
upp. Hann sagði ástæðuna vera þá
að hann hefði viljað rannsaka mál-
ið innanhúss áður en það yrði lög-
reglumál. „Við vildum átta okkur á
því hvernig í málum lægi,“ segir
Alfreð.
Þrátt fyrir brottrekstur inn-
kaupastjórans í byrjun október
hélt hann vallarpassa sínum og
hélt áfram að koma á hinn gamla
vinnustað sinn til að stunda við-
skipti í nafni Sölunefndarinnar.
Hann segir að yfirvöld á vellinum
hafi verið látin vita að innkaupa-
stjórinn væri hættur. Það hefði því
komið sér mjög á óvart þegar í ljós
kom að innkaupastjórinn var enn á
vellinum mánuði síðar þegar
skúffubíllinn var stöðvaður.
„Ég var búinn að láta hann skila
lyklunum en hann hefur sjálfsagt
átt aðra lykla,“ segir Alfreð.
Viku eftir að sýslumaðurinn í
Keflavík hóf rannsókn á málinu
sem tengdist skúffubílnum kærði
Alfreð starfsmann sinn. Þann 17.
nóvember var innkaupastjórinn
handtekinn ásamt íslenskum
starfsmanni Varnarliðsins í
skemmu 666. Sá starfsmaður var
hreinsaður af sök en innkaupa-
stjórinn játaði á sig fjölmörg brot
og benti jafnframt á meint brot
annarra, svo sem Alfreðs Þorstein-
sonar sjálfs. Sá framburður inn-
kaupastjórans varð til þess að Rík-
isendurskoðun er nú að rannsaka
þann hluta bókhalds Sölunefndar-
innar sem snýr að varningnum
sem keyptur var af Varnarliðinu.
rt@frettabladid.is
Kærður mánuði
eftir brottrekstur
Skúffubíll markaði upphaf Sölunefndarmálsins. Innkaupastjórinn rekinn í október en hélt
vallarpassa sínum í mánuð. Viku eftir að sýslumaður hóf rannsókn kærði Alfreð Þorsteinsson.
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
Kærði starfsmann sinn mánuði
eftir brottrekstur hans.
■
„Ég var búinn
að láta hann
skila lyklunum.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
HEILBRIGÐISMÁL „Þetta er við-
kvæmt mál. Við ætlum ekki að
munnhöggvast um það í blöðum,“
segir Inga Tryggvadóttir, aðstoð-
ardeildarstjóri á göngudeild
geðsviðs Landspítalans, um nið-
urstöður nýrrar rannsóknar um
læknismeðferð á þunglyndum
konum.
Niðurstaðan er hluti meistara-
ritgerðar Bergþóru Reynisdótt-
ur, sjálfstætt starfandi geðhjúkr-
unarfræðings. Rannsóknin
byggðist á viðtölum við níu konur
á aldrinum 39 til 68 ára sem
fengu meðferð við þunglyndi.
Þær sögðust hafa mætt kulda-
legu og jafnvel niðurlægjandi
viðmóti heilbrigðisstarfsfólks.
Þá hafi þeim verið gefið óhóflega
mikið af lyfjum.
Hannes Pétursson, yfirlæknir
á geðsviði Landspítala – Háskóla-
sjúkrahúss, var ekki til viðtals í
gær.
Eydís K. Sveinbjarnardóttir,
sviðsstjóri hjúkrunar á geðsviði,
sagðist ekki geta tjáð sig að svo
stöddu um niðurstöður Bergþóru
þar sem hún eigi að vera próf-
dómari þegar Bergþóra ver
meistararitgerð sína, „Þöggun
þunglyndra kvenna“, við Háskóla
Íslands í dag. Sjónarmiðum Ey-
dísar verða því gerð skil í blaðinu
á morgun. ■
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Bergþóra Reynisdóttir ver í dag meistararit-
gerð um læknismeðferð þunglyndra
kvenna. Ritgerðin ber heitið „Þöggun
þunglyndra kvenna“.
Aðstoðardeildarstjóri á geðsviði Landspítalans um meðferð þunglyndra kvenna:
Munnhöggvumst ekki í dagblöðum FREKIR ÞINGMENN Yfirmaðurúkraínska ríkissjónvarpsins hef-
ur sakað þing landsins um að
beita stöðina þrýstingi og rit-
skoða hana. Þetta kemur fram í
bréfi hans til Öryggissamvinnu-
stofnunar Evrópu þar sem hann
kvartar undan lögum sem skylda
hann til að senda beint út frá
þingfundum í minnst fjóra og
hálfa klukkustund viku hverja.
FUNDAÐ UM STJÓRNARSKRÁ
Meðlimir evrópsku ráðstefnunn-
ar sem á að skila drögum að
stjórnarskrá Evrópusambandsins
hittust á lokuðum fundi í gær til
að reyna að ná sáttum um tillög-
ur sínar. Erfiðlega hefur gengið
að semja stjórnarskrá sem allir
geta sætt sig við. Því þarf að
ljúka á næstu tveimur vikum.
■ Evrópa
SLASAÐIST Í BÍLVELTU Flytja
þurfti mann á heilsugæsluna á
Stykkishólmi eftir bílveltu á
Heiðadalsvegi á Snæfellsnesi í
gærmorgun. Meiðsl hans voru
minniháttar. Fimm erlendir ferða-
menn voru í bílnum, sem talið er
að hafi lent utan vegar eftir að bíl-
stjóri missti stjórn á honum í
lausamöl.
GERT VIÐ BORGARFJARÐAR-
BRÚNA Viðgerð stendur nú yfir á
brúarstöplum Borgarfjarðarbrúar.
Lögreglan þurfti því að loka fyrir
umferð um brúna stundarkorn
síðdegis í gær. Að sögn lögreglu
er einungis hægt að gera við brú-
arstöplana þegar fjara er og átti
að hefjast handa að nýju í nótt.
■ Lögreglufréttir