Fréttablaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 23
Sýning á útskriftarverkum nemenda í
Ljósmyndaskóla Sissu. Sýningin er í
Stúdíói Sissu, Laugavegi 25, 3. hæð og
stendur til 9. júní. Opið virka daga frá kl.
14 til 19 og 14 til 18 um helgar.
Sýning á verkum Kristjáns Davíðs-
sonar og Þórs Vigfússonar í Listasafni
Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Sýning á verkum Matthew Barney
stendur í Nýlistasafninu. Sýningin stend-
ur til 29. júní.
Sýningin “Afbrigði af fegurð“ er
opin á Prikinu. Það er Femínistafélag
Íslands sem stendur fyrir sýningunni.
Stóra norræna fílasýningin í sýning-
arsal Norræna hússins. Á sýningunni
eru verk eftir dönsku listamennina Peter
Hentze, Thomas Winding og Pernelle
Maegaard. Victoria Winding hefur séð
um gerð fræðslutexta.
Sýning Claire Xuan í Ljósmynda-
safni Íslands við Tryggvagötu. Listakon-
an kynnir þar myndverk sín og ljós-
myndir og fimmtu ferðdagbók sína, Ís-
land.
Eggert Pétursson sýnir í galleríinu i8
við Klapparstíg.
Ljósmyndasýningin Myndaðir máls-
hættir stendur nú yfir í Caffé Kúlture í
Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu, gegnt
Þjóðleikhúsinu. Þetta er sýning á loka-
verkefnum útskriftarnema í ljósmyndun
við Iðnskólann í Reykjavík. Sýningin
stendur til 6. júní og er hún opin á af-
greiðslutíma kaffihússins.
Sýningin Handritin stendur yfir í
Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á
vegum Stofnunar Árna Magnússonar.
Steinunn Marteinsdóttir er með
sýningu á Hulduhólum í Mosfellsbæ.
Þar sýnir hún málverk og verk úr leir.
Útskriftarsýning myndlistar- og
hönnunarnemenda Listaháskóla Íslands
stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir
yfirlitssýning á verkum Gerðar Helga-
dóttur.
Gunnar Karl Gunnlaugsson sýnir
ljósmyndir af um það bil 60 brúm á
þjóðvegi 1 í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
Málverkasýning eftir Stefán Berg
Rafnsson stendur yfir á Kránni, Lauga-
vegi 73.
Fimmta alþingiskosningasýning
Kristjáns Guðmundssonar stendur í
Slunkaríki á Ísafirði. Að þessu sinni er
Kristján með grafíkmyndir í farteski sínu.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
FIMMTUDAGUR 5. júní 2003
✓
✓
✓
SAMÚEL SAMÚELSSON
Ég á nokkur hljóðfæri, þar af 3básúnur. Uppáhaldsbásúnan
mín er af gerðinni King. Ég keypti
hana frá Bandaríkjunum fyrir
einum 6 árum og borgaði með
námslánunum. Þetta gekk ekki
átakalaust fyrir sig því fyrsta ein-
takið sem ég fékk var beyglað
þannig að ég þurfti að panta aðra.
Um básúnu er það meðal annars
að segja að þetta er eina hljóð-
færið sem lengist við núning. Eft-
ir nokkra notkun lekur vökvi út
um ventil við enda sleðans. Hljóð-
færið er líka fallega straumlínu-
lagað og er kvenkyns.
Hljóðfæriðmitt
Um helgina opnaði Ómar SmáriKristinsson sýningu í Gallerí
Hlemmi, sem ber titilinn Fréttir.
Myndirnar gerði Ómar Smári á
þriggja mánaða tímabili, en
myndefnið styðst við alla frétta-
tíma á tímabilinu. „Verkin á sýn-
ingunni eru tilraun til að ná mynd
af heimi líðandi stundar og að
hnoða sjónarhóli manneskjunnar
saman í eina mynd,“ segir Ómar
Smári. „Meðan á kvöldfréttum
sjónvarpsins stóð teiknaði ég, eft-
ir fremsta megni, allt sem fram
fór á skjánum. Ég er með rúmlega
100 slíkar skyndimyndir, bæði
teikningar og vatnslitamyndir.“
Ómar Smári Kristinsson út-
skrifaðist frá Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið 1996 og frá
Fachhochschule Hannover – Bild-
ende Kunst árið 1998. Síðan þá
hefur hann að meðaltali verið með
tvær einkasýningar og tekið þátt í
þremur samsýningum á ári
hverju. Jafnframt hefur hann
stundað verslunarrekstur í Land-
mannalaugum og veðurathuganir
og bústörf í Æðey í Ísafjarðar-
djúpi.
Í hliðarsal er vinur Ómars,
Karl Jóhann Jónsson, með fimm
málverk sem hann tileinkar
Ómari Smára og eiginkonu hans
Nínu.
„Yfirskriftin er Fólk, tré og
ávextir. Ég mála aðallega por-
trett og er með portrett af þeim
báðum, Nínu í líki heilagrar
konu, en myndin nefnist einmitt
Heilög Nína.
Ég reyni svo að sýna Ómar
Smára sem íhugandi og djúpvitr-
an mann og endurspegla í mynd-
unum þá rómantísku mynd sem
ég hef af þeim hjónum. Þau eru
nefnilega andlegir risar sem hafa
þrek í að hírast saman tvö á eyju
með veðurvita og húsdýr á Ísa-
fjarðardjúpinu meirihluta ársins,
brenna svo beint inn í Land-
mannalaugar og veltast þar um í
náttúrunni og fara algerlega á
mis við dásemdir höfuðborgar-
lífsins nema tvo, þrjá daga á ár-
inu.“
Karl Jóhann Jónsson útskrifað-
ist frá Myndlista- og handíðaskóla
Íslands árið 1993.
Sýningin er opin fimmtudag til
sunnudaga frá klukkan 14-18. ■
HEILÖG NÍNA
Portrett eftir Karl Jóhann Jóhannsson, listmálara, sem hann gerði af vinkonu sinni Nínu.
Heilagt fólk og líðandi stund
■ GALLERÍ HLEMMUR
STÓRA SVIÐ
NÚLLSJÖ NÚLLSEX 2003
Dansleikhúskeppni LR og ÍD
Lau 7/6 kl 20
ÖFUGU MEGIN UPPÍ
e. Derek Benfield
Fö 6/6 kl 20
Fö 13/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Fö 6/6 kl 20 - UPPSELT
Lau 21/6 kl 20 - AUKASÝNING
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasalan, sími 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
(Gildir á ÖFUGU MEGIN, PÚNTILA, SUMARÆVINTÝRI, MAÐURINN SEM).
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
LESSTOFA OG AFGREIÐSLA
opin alla virka daga kl. 10-16.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí - 1.sept. 2003
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis
www.listasafnreykjavikur.is
Sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Lokað. 13. júní verða opnaðar sýningarnar:
Smekkleysa í 16 ár, Alþjóðleg samtímalist og Erró.
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Rússnesk ljósmyndun – yfirlitssýning,
Örn Þorsteinsson, Kjarval
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson – Nútímamaðurinn
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
s: 577-1111
Fjölbreytt dagskrá í alla
hvítasunnuhelgina
Nýjar sýningar í Árbæjarsafni:
Lárus Sigurbjörnsson
Daglegt líf á sjötta áratugnum
Fyrsta ganga í Viðey þriðjudaginn
10. júní kl. 19.30
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is • sími 575 7700.
Innritun í Gagn og gaman stendur yfir.
Sýningar:
Brýr á þjóðvegi 1
Gunnar K. Gunnlaugsson sýnir
ljósmyndir af brúm á þjóðvegi 1
Íslandsteppin
Ísl. bútasaumsfélagið sýnir bútasaumsteppi.
Síðasti sýningardagur 6.júní.
Lokað um helgar frá 31. maí - 1.sept.
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma:
s. 552 7545 og á heimasíðu
www.bokasafn.is
Ritsmiðja í Borgarbókasafni
Ritsmiðja fyrir 8 - 12 ára krakka
10. - 13. júní
Upplýsingar í síma 5631717 og 567 5320
og á heimasíðu safnsins
www.borgarbokasafn.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 15-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009