Fréttablaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 38
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Það eru fáir bílar betri ferðabílar en Subaru
Legacy. Og hann fæst nú á lægra verði en flestir
meðalstórir fólksbílar, traustur, sérlega rúm-
góður og þar að auki fjórhjóladrifinn. Subaru
Legacy kann vel við sig á íslenskum vegum og
ber þig og fjölskylduna mjúklega yfir, jafnvel
þótt ójafnt sé undir. Kjalvegur eða Kjalarnes,
Subaru er hvergi banginn.
Vantar þig
drifkraftinn
til að ferðast innanlands í sumar?
2.320.000kr.verð frá
Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · www.ih.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
2
1
6
Veglegur ferðapakki innanlands
fylgir með kaupum á nýjum
Subaru Legacy í júní.
Ég flutti til Íslands að vori til,fæddist og ólst upp framan af
barnæskunni ögn sunnar í Evrópu.
Ég man enn hvernig ég beið eftir
sumrinu þetta fyrsta vor á Íslandi,
fór í bæinn með mömmu að kaupa
stuttbuxur og bol eins og við vorum
vanar á vorin. Einu sinni hætti ég
mér út í þessum búningi og enn get
ég endurlifað tilfinninguna þegar
kuldinn nísti gegnum merg og bein.
En sumarið kom aldrei þetta sumar
og ekki mörg þau næstu. Í minning-
unni var mér eiginlega samfellt kalt
árum saman, alltaf nema þegar fjöl-
skyldan ferðaðist til landsins sem
hafði fóstrað mig frá fæðingu.
LOKS lærðist mér að sumar er ekki
það sama og sumar. Íslenskt sumar
er eins og skandínavískt vor eða
haust og það er í góðu lagi. Kúnstin
er bara að ímynda sér ekki að það sé
steikjandi hiti í íslensku sumri. Það
er að minnsta kosti galdurinn sem
gildir fyrir mig. Hins vegar finnst
mér gæta mikillar veðurbjartsýni
hér í þessu góða landi. Sú bjartsýni
er nokkuð skemmtileg íþrótt sem
brýst til dæmis út í undrun yfir roki
og rigningu að sumarlagi og jákvæð-
um veðurminningum frá umliðnum
sumrum og ekki síst stórbrotnum
lýsingum á veðurlagi í öðrum lands-
fjórðungum, einkum og sér í lagi
fyrir norðan og austan.
ÉG HEF SJÁLF oft komið austur
og dvalið langdvölum fyrir norðan
sumar eftir sumar. Svo einkennilega
vill til að hitabylgjurnar hafa samt
aldrei skollið á mér. Einu sinni
fannst mér þetta algert svindl en nú
er mér alveg sama því íslenskt sum-
ar er nú besta sumar sem ég veit og
mér hefur lærst fyrir löngu að
kaupa ekki stuttbuxur á vorin heldur
þunnar ullarpeysur, gjarnan í ljósum
litum, eða glaðlega flíspeysu sem
getur verið öndvegissumarflík.
UM DAGINN var dásamlegt veður
á laugardegi, bæði hlýtt og sólskin.
Þjóðin sameinaðist í stuttbuxum, dró
garðhúsgögnin út á palla og svalir,
þreif útigrillin og eldaði á þeim
kvöldmatinn. Daginn eftir var enn
bjart í veðri en heldur var samt orð-
ið hráslagalegt. Ég fór út í búð og
dáðist að bjartsýni manns sem þar
var að versla og var enn á stuttbux-
um. Þrautseigur, hugsaði ég og fann
um leið kuldann læðast upp eftir fót-
leggjunum. Ég var nefnilega berfætt
í sandölum! ■
Sumarið