Fréttablaðið - 05.06.2003, Page 16
5. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Í 40 ár hefur Avis gert betur – Það er betra.
Við erum í 170 löndum og á 5000 stöðum.
Minnum á tilboð Visa og Avis.
París, Reykjavík og Orlando.
Hringdu í síma 591 4000
Póstfang: avis@avis.is - heimasíða: www.avis.is
We try harder – Við gerum betur
Avis auglýsing frá árinu 1963 enn í fullu gildi
ÍÞRÓTTIR Íþróttarisinn Nike hefur
gert milljón dollara samning við
hið þrettán ára gamla undrabarn
Freddy Adu sem þykir eitt helsta
efni sem fram hefur komið í
bandarískri knattspyrnu.
Adu sem er frá Ghana varð rík-
isborgari í febrúar og hefur síðan
æft með unglingalandsliði Banda-
ríkjanna og þykir nú þegar þeirra
öflugasti sóknarmaður
Fyrir skemmstu gerði Nike
einnig samning við skærasta efn-
ið í bandaríska körfuboltanum,
L e B r o n
James, upp á
90 milljónir
dollara. Er
þetta í fyrsta
sinn sem fyr-
irtækið gerir
svo stóran
samning við
íþróttamann
sem hefur enn
ekki leikið í
a t v i n n u -
mannadeild. ■
LEBRON JAMES
Hefur nú þegar verið
líkt við Jordan.
Mikil barátta um íþróttastjörnur framtíðarinnar:
Nike bætir
fjöðrum í safnið
GOLF Haraldur H. Heimisson GR
og Sigurpáll Geir Sveinsson GA
stóðu sig fram úr hófi vel á
seinni degi Opna breska áhuga-
mannamótsins í golfi sem fram
fer í Englandi. Komust þeir báð-
ir í gegnum 280 manna niður-
skurð sem er frábær árangur
miðað við að mótið er eitt af
sterkustu áhugamannamótum í
heiminum. Sigurvegari mótsins
vinnur keppnisrétt á Opna bres-
ka á Royal St. George í sumar og
einnig á ameríska meistaramót-
ið í Augusta á næsta ári. Segja
má að vinningshafanum standi
allar dyr opnar til frekari
frama.
Sigurpáll var ekki bjartsýnn
eftir fyrsta daginn en þá lék
hann á 76 höggum. „Haraldur
var að spila fyrsta dag mjög vel
en ég persónulega er ekki
ánægður með sjálfan mig. Það
er mjög heitt og mollulegt og
það hjálpar ekki til heldur.“ Sig-
urpáll lék seinni daginn mun
betur á 72 höggum og Haraldur
fór hringina tvo á 145 höggum
sem dugði til að báðir kæmust í
gegn.
„Það sem við þurfum meira
en nokkuð annað er reynsla,“
sagði Sigurpáll eftir fyrri um-
ferðina. „Þetta tekur á taugarn-
ar og því þarf að venjast og
svona mót eru aldeilis til að
kenna manni. Ég var stífur í
gang í fyrstu en svo fór að
ganga betur og nú er ég orðinn
öruggari en í upphafi og það á
eftir að koma fram í mínum leik
fyrr en síðar. En þetta er líka
bara byrjunin.“
Fimm efstu menn eftir fyrstu
tvo dagana voru frá fimm mis-
munandi löndum og segir það
sitt um styrkleika mótsins að
helstu þjóðir Evrópu senda sína
sterkustu áhugamenn til þessar-
ar keppni. Efstur á 134 höggum
var Englendingurinn David Ing-
lis og fast á hæla hans var
Jakovac frá Bandaríkjunum.
Haraldur og Sigurpáll halda
leik áfram en úrslit voru ekki
orðin ljós þegar blaðið fór í
prentun. ■
FÖGNUÐUR
Tveir íslendingar komnir áfram á sterkasta
áhugamannamóti í Evrópu.
Opna breska áhugamannamótið í golfi:
Frábær árangur
Sigurpáls og Haraldar
KNATTSPYRNA Þorvaldur Örlygsson
þjálfari og leikmaður KA telur
ekki rétt að fagna sigri sinna
manna á KR um of.
„Auðvitað erum við gríðarlega
ánægðir með þennan leik en mót-
ið er rétt að fara af stað og þetta
er bara einn leikur. En vissulega
er KR eitt af stóru liðunum og það
er gaman en þetta er þegar upp er
staðið sama tilfinning og í öðrum
leikjum sem vinnast. Það vantaði
menn í liðið sem venjulega eru
fastamenn en við erum svo
lánsamir að eiga unga stráka sem
eru fullir vilja, með metnað og
hafa meiri reynslu en fyrir ári.“
Þorvaldur vildi engu spá um
framhaldið. „Það er margt
framundan hjá okkur og lítið má
útaf bera til að við lendum í vand-
ræðum.“ ■
ÞORVALDUR ÖRLYGSSON
Ánægðir en lítið má út af bera til að skapa
vandræði.
Þorvaldur hógvær eftir leik KA og KR:
Þetta er bara
einn leikur