Fréttablaðið - 05.06.2003, Qupperneq 34
5. júní 2003 FIMMTUDAGUR
40 ÁRA „Ég ætla að vera með smá
veislu, fyrir vini og vandamenn, á
efri hæð á Sólon í kvöld,“ segir
Halla Helgadóttir, grafískur
hönnuður, sem er fjörutíu ára í
dag. Annars ætlar hún að reyna að
taka lífinu með ró á þessum tíma-
mótadegi. „Ég er í fríi frá vinn-
unni. Ætli það fari ekki einhver
tími í að undirbúa þessa veislu en
annars reyni ég bara að hafa það
gott.“
Halla segist hafa lagt nokkuð
upp úr því að halda upp á afmæl-
isdagana sína hin síðari ár þar
sem grundvöllurinn fyrir veislu-
höldum hafi vart verið fyrir hendi
í æsku. „Það var ómögulegt að
eiga afmæli á þessum tíma þar
sem skólinn var búinn og búið að
senda alla í sveit, en skólum á
þessum árum var slitið töluvert
fyrr en nú er. Mér er þetta svolít-
ið minnisstætt og ég hef því verið
nokkuð nákvæm þegar það kemur
að afmælisveislum núna.“
Aldurinn er ekkert að hrella
Höllu, sem kippir sér lítið upp við
að vera orðin fjörutíu ára. „Fyrst
maður getur ekki lengur logið til
um aldur, sem er sjálfsagður rétt-
ur hverrar konu, á þessum síðustu
og verstu Internettímum verður
maður bara að vera ánægður með
þetta og bera aldurinn vel.“ ■
Þetta er mjög vinsælt í Banda-ríkjunum en þar heitir það
Speed Dating,“ segir Þorsteinn
Bergmann Einarsson verkfræð-
ingur, sem hefur kynnt hrað-
stefnumót sín á Netinu. „Ég fékk
hugmyndina í sjónvarpsþættinum
Sex and the City og bjóst reyndar
við að einhver annar myndu
stökkva til en þegar ekkert gerðist
ákvað ég að fara af stað sjálfur.“
Þorsteinn leigir sal úti í bæ og
boðar þangað þátttakendur. Þar er
hugmyndin að konurnar setjist
öðru megin við borð og karlarnir
hinum megin. Þegar pörin hafa
spjallað í nokkrar mínútur gefur
Þorsteinn merki og þá færir fólk
sig um eitt sæti og prófar nýjan ein-
stakling. Svona gengur þetta í tvo
til þrjá tíma. Að hringnum loknum
merkir fólk við þá sem það gæti
hugsað sér að hitta aftur og Þor-
steinn sér um að koma viðkomandi
í samband. Jafnvel varanlegt sam-
band:
„Ungt fólk hefur svo lítinn
tíma og vill sjá árangur strax. Það
skýrir ef til vill vinsældir hrað-
stefnumóta víða um heim. Nú er
tími til kominn að reyna þetta
hér,“ segir Þorsteinn, sem er með
kynningarverð á stefnumótinu;
3.000 krónur. Sjálfur er hann
kvæntur og á besta aldri, 57 ára.
Nánari upplýsingar um tilhögun
er hægt að nálgast á Netinu á slóð-
inni hradstefnumot.is ■
ÞORSTEINN BERGMANN
EINARSSON VERKFRÆÐINGUR
■ ætlar að efna til hraðstefnumóta fyrir
þá sem vilja kynnast gagnstæða kyninu
án þess að hafa fyrir því með endalausu
kráarrölti. Hann safnar fólkinu saman og
gefur því kost á að kynnast með hraði –
mörgum í einu. Hugmyndina fékk hann í
sjónvarpsþættinum Sex and the City.
Stefnumót
Hraðstefnumót
verkfræðingsins
Yfir sex hundruð hlustendurRásar 1 hafa skrifað undir
stuðningsyfirlýsinu við órofinn
morgunþátt Vilhelms G. Krist-
inssonar, Árla dags. Í gær var
undirskriftalistinn afhentur út-
varpsstjóra. Forsvarsmenn söfn-
unarinnar, Árni Vilhjálmsson og
Óskar Magnússon, telja að það
hljóti að verða tekið tillit til óska
svo margra dyggra hlustenda.
Þátturinn var órofinn milli klukk-
an sjö og níu á morgnana, þangað
til Morgunvaktin var sett á dag-
skrá í febrúar.
Aðdáendur Vilhelms létu sér
ekki nægja að rita nöfn sín á list-
ana, heldur fylgdu með ýmis um-
mæli stuðningsmanna Vilhelms.
Hér eru nokkur sýnishorn.
„Haldið Morgunvaktinni á Rás
2 og leyfið hlustendum að hafa val
um hvernig þeir hefja daginn,“
segir einn.
„Við erum dyggir hlustendur
morgunþáttar Vilhelms og viljum
þáttinn sem lengstan – helst allan
daginn,“ segir annar. Íslenskan er
ekkert skilyrði þess að tjá aðdáun
sína á þættinum. „Hverdagene er
flest i året og det er vigtigt at de
begynder på behagelig vis...hvor-
for ikke holde fast på det som gör
man til bedre mennesker?“ ■
ÞORSTEINN BERGMANN EINARSSON
Ungt fólk hefur lítinn tíma og vill sjá árangur strax.
VILHELM G. KRISTINSSON
Þáttur hans á dyggan og einarðan hóp
hlustenda sem láta ekki skerða notalega
morgunstund hljóðalaust.
Hverdager på
behagelig vis
■ Yfir sex hundruð hlustendur Rásar 1
vilja meira af þætti Vilhelms G. Kristins-
sonar. Aðdáendur þáttarins létu
ummæli fylgja undirskriftinni.
Söfnun
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Mikið úrval
puma - nike - hummel
buffalo london - el naturalista - bronx
le coq sportif - björn borg - converse
face - roots - intenz - dna
VERSLUNIN
HÆTTIR
Allt á að seljast
20-60%
afsláttur
K R I N G L A N , S . 5 3 3 5 1 5 0
Nike skór
nokkrar gerðir
Áður
kr. 10.990 og
12.990
Nú kr. 4.990
Sjálfsagður réttur að ljúga um aldur
HALLA HELGADÓTTIR
■ grafískur hönnuður er 40 ára í dag.
Hún er sátt við aldurinn enda ekki um
annað að ræða þar sem upplýsinga-
tæknisamfélagið hefur svipt konur þeim
sjálfsagða rétti að ljúga til um aldur.
Afmæli
HALLA HELGADÓTTIR
„Það er yfirleitt alltaf gott veður á þessum
degi og það má því gera sér vonir um
blíðu í dag þó útlitið sé ekki búið að vera
sérlega gott.“