Fréttablaðið - 13.07.2003, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 24
Leikhús 24
Myndlist 24
Bíó 24
Íþróttir 20
Sjónvarp 26
DAGURINN Í DAG
SUNNUDAGUR
13. júlí 2003 – 157. tölublað – 3. árgangur
ARAFAT HÓTAÐ Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra Ísraels, hvatti Evrópuríki í gæt til
að skera á tengslin við
Yasser Arafat. Talsmaður
stjórnarinnar hótaði því
að Arafat yrði gerður
brottrækur frá Palestínu
ef hann ynni gegn friðar-
ferlinu. Sjá bls. 2
KR VANN Íslandsmeistarar KR unnu
efsta lið deildarinnar, Þrótt, með tveimur
mörkum gegn engu. Sjá bls. 2
ALLIR REKNIR Fjárhagslegir erfiðleikar
leika Altech grátt. Fyrirtækið hefur sagt upp
öllum starfsmönnum. Þeir eiga inni laun
hjá fyrirtækinu. Sjá bls. 2
Í HÁR SAMAN Bretar og Bandaríkja-
menn eru komnir í hár saman um hvort
upplýsingar Breta séu trúverðugar.
Yfirmaður CIA segir að svo sé ekki en utan-
ríkisráðherra Bretlands vísar því alfarið á
bug. Sjá bls. 4
SEGIR EKKERT Sigurður Már Hreið-
arsson, forstjóri Kaupþings Búnaðarbanka,
vill ekkert tjá sig um atburði 30. júní.
Sjá bls. 2
▲ SÍÐUR 18-19
viðtal
VEÐRIÐ Í DAG
Stærsta útsalan
battlmenningin blómstrar ● einvígi orðanna
Rapp í Reykjavík:
▲
SÍÐA 12
Ég ætla þér að sýna,
hvernig á að ríma
ímynd hinnar sjálfstæðu konu
Katharine Hepburn:
▲
SÍÐA 10
Sérvitur
stórstjarna
Ingibjörg Pálmadóttir fær fjölskylduna í mat
Sunnudagssteikin:
▲
SÍÐA 30
Slegist um
hrygginn
Fátt
aumlegra
en gervibros
▲
SÍÐUR 16-17
úttekt
Raunhæf hugmynd eða della?
Halldór Ásgrímsson:
Íslensk
hersveit
Réttað verður í Reykjavík
Ekki kemur til greina af saksóknara hálfu að flytja réttarhöld frá Reykjavík
þrátt fyrir að hnífstungumaðurinn sé kominn í hendur varnarliðsins.
DÓMSMÁL Þó varnarliðsmaðurinn
sem hefur verið ákærður fyrir að
stinga mann með hnífi í miðbæ
Reykjavíkur hafi verið afhentur
varnarliðinu til gæslu meðan á
gæsluvarðhaldi stendur kemur ekki
til greina af hálfu ríkissaksóknara-
embættisins að afhenda forræði
yfir málinu og rétta í því annars
staðar en í Reykjavík samkvæmt
heimildum blaðsins. Ekki kemur til
greina að íslenskur saksóknari sæki
málið á svæði bandaríska varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli.
Vonir utanríkisráðuneytisins
standa þó enn til að ríkissaksóknari
framselji manninn í hendur varn-
arliðinu. „Við teljum ekki ómögu-
legt að sátt náist um ákvörðunina.
Erum ekki úrkula vonar um að rík-
issaksóknari muni að lokum fallast
á okkar rök,“ segir Gunnar Snorri
Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í ut-
anríkisráðuneytinu. „Þetta er ein-
ungis spurning um vistunarstað, í
þessu felst ekkert framsal á lög-
sögu,“ segir Kolbrún Sævarsdóttir
saksóknari. Sjá bls. 2
Búast má við sólríku veðri á Austurlandi í
dag en annars staðar koma regnhlífar að
góðum notum. Sjá nánar á bls. 6
SAFNADAGUR Jafnt listasöfn, byggða-
söfn sem náttúrugripasöfn um land allt eru
með eitthvað sérstakt í gangi í dag í tilefni
af safnadeginum. Gönguferðir um sögu-
slóðir eru víða í boði, meðal annars um
miðborg Reykjavíkur. Sjá nánar:
Það mátti sjá gula miða víða í gluggum á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri í gær.
Á miðunum fagnaði fólk fyrstu sunnudagsútgáfu
Fréttablaðsins – blaðinu sem þú ert að lesa núna.
Hér eftir mun Fréttablaðið koma út á sunnudags-
morgnum sem aðra morgna vikunnar. Þar með
mun fólk hafa aðgang að glóðvolgum fréttum,
greinum og viðtölum á sunnudagsmorgnum en
hingað til hafa íslensk dagblöð ýmist sleppt
sunnudeginum eða gefið sunnudagsblöð sín út
seinni part laugardags. Í gær var liðið eitt ár síð-
an Frétt ehf. tók við útgáfu Fréttablaðsins og er
aukin útgáfa blaðsins í raun lokahnykkurinn á
fyrsta árinu. Sjá nánar síðu 8.
Loksins dagblað á sunnudagsmorgni
Fórnarlamb nauðgunar:
Boðið fé
fyrir þögn
KYNFERÐISAFBROT „Þeir sögðu að
ég vissi ekki hvað ég væri að
gera manninum, hann ætti konu
og börn. Auk þess kæmi þetta
sér illa fyrir vinnustaðinn og
myndi setja framtíð hans í
hættu. Þeir héldu að ég væri að
kæra til að hafa peninga af
manninum. Ég kærði vegna þess
að það var brotið á mér og vegna
þess að hann þarf að bera
ábyrgð á gerðum sínum.“
Þetta segir 24 ára stúlka sem
hefur kært yfirmann sinn fyrir
nauðgun á vinnustað þeirra í
Reykjavík. Eftir að málið kom
upp þrýstu vinir mannsins á
stúlkuna að kæra manninn ekki
og buðu henni greiðslu fyrir að
falla frá máli sínu. Tilboð þeirra
fóru hækkandi og hljóðaði síð-
asta boð þeirra upp á rúma hálfa
milljón króna. Stúlkan lýsir
reynslu sinni í viðtali sem er
hluti af úttekt Fréttablaðsins á
kynferðisbrotamálum.
Frá því að neyðarmóttaka fyr-
ir þolendur kynferðisafbrota var
sett á fót við Landspítalann fyrir
tíu árum síðan hafa nær þúsund
einstaklingar leitað þangað,
langflestir konur. Eyrún Jóns-
dóttir umsjónarhjúkrunarfræð-
ingur segir þjónustu móttökunn-
ar ekki bundna við þá sem ætla
að kæra. Fyrst og fremst sé lögð
áhersla á stuðning við þolendur
kynferðisofbeldis.
Sjá bls. 6