Fréttablaðið - 13.07.2003, Side 11
■ Starfið mitt
■ Listamannalaun
Nokkra athygli vakti þegardanski tónlistarmaðurinn Kim
Larsen hafnaði opinberum lista-
mannalaunum sem honum voru
boðin fyrir nokkru. Launin áttu að
nema 14 þúsund dönskum krónum á
ári, sem leggja sig á 160 þúsund ís-
lenskar krónur. Fremur snautlegt
miðað við það að heiðurslaun lista-
manna hérlendis eru 1,6 milljón.
Launasjóður listamanna í Dan-
mörku tilnefndi Kim Larsen, sem
er orðinn 57 ára gamall, fyrir fram-
lag sitt til danskrar menningar.
Larsen telur hins
vegar að það
stríði gegn skoð-
unum sínum að
þiggja verðlaun
og styrki og hef-
ur hann í gegnum
tíðina slegið hendinni á móti fjöl-
mörgum slíkum tilboðum.
„Sko, Kim Larsen hefur efni á
því að vera anarkisti. Hann hefur
alla tíð hafnað öllum verðlaunum,“
segir Bjartmar Guðlaugsson, sem
hefur hitt kappann og segir hann
góðan gaur með réttlætiskenndina í
fínu lagi. Fréttablaðið reyndi að
finna íslenska hliðstæðu við Larsen
og Bjartmar er góður kostur. Á
þeim er hins vegar veigamikill
munur. „Kim Larsen er götustrák-
ur og mér finnst þetta fínt hjá hon-
um,“ segir Bjartmar. „Hann er hins
vegar með ríkari Dönum og það
myndi vera hallærislegt í hinu sós-
íalíska kerfi ef ríkur maður færi að
þiggja styrki. Ég er hræddur um að
ég hefði hins vegar ekki slegið
hendinni á móti þessu. Ég er ekki
viss um að ég sem blankur stjórn-
leysingi gæti það. Það er allt í lagi
að hafna titlum en verra að hafna
peningum. Það er jafndýrt fyrir
hugsjónamenn eins og aðra að
lifa.“
jakob@frettabladid.is
AUÐUR
Auður Alfífa Ketilsdóttir hefur unnið í Góða
hirðinum í eitt og hálft ár.
Auður Alfífa Ketilsdóttir:
Skemmtileg-
asta búð í
Reykjavík
Auður Alfífa Ketilsdóttir hefurunnið í Góða hirðinum í eitt og
hálft ár.
„Mér líkar bara mjög vel
hérna. Þetta er tvímælalaust
skemmtilegasta búð í Reykjavík,“
segir Auður, sem er 23 ára.
Hún er ein tíu starfsmanna
búðarinnar, sem selur notaða hluti
sem fólk hefur ekki lengur þörf
fyrir. „Það er reyndar mjög nei-
kvætt að vinna hérna ef maður er
safnari,“ segir Auður. „Ég er mik-
ill safnari og á allt of mikið af bók-
um og allt of mikið af plötum.“
Hún gerir mikið af því að safna
hlutum sem er komið með í búð-
ina. „Ég versla bara hérna. Ég
byrjaði meira að segja að versla í
Góða hirðinum löngu áður en ég
byrjaði að vinna hérna. Þetta er
snilldarbúð.“
Auður segir að skrýtnasti hlut-
urinn sem hefur rekið á fjörur
Góða hirðisins sé hlust úr hval.
Einnig rak hún upp stór augu þeg-
ar stólpípa barst til búðarinnar.
Fyrir áhugasama er rétt að geta
þess að báðir hlutirnir eru seldir. ■
BJARTMAR GUÐLAUGSSON
Hin íslenska hliðstæða Kim Larsen telur afar hæpið að hann myndi
slá hendinni á móti listamannalaunum byðist honum þau. „Ég er
ekki viss um að sem blankur stjórnleysingi gæti ég það.“
HEIÐURSLAUNÞEGAR LISTA-
MANNA Á ÁRINU 2003 (1,6
MILLJÓNIR Á ÁRI) ERU:
Atli Heimir Sveinsson
Árni Kristjánsson
Ásgerður Búadóttir
Erró
Fríða Á. Sigurðardóttir
Guðbergur Bergsson
Guðbjörg Þorbjarnardóttir
Gunnar Eyjólfsson
Hannes Pétursson
Herdís Þorvaldsdóttir
Jón Nordal
Jón Þórarinsson
Jórunn Viðar
Kristján Davíðsson
Matthías Johannessen
Róbert Arnfinnsson
Svava Jakobsdóttir
Thor Vilhjálmsson
Þorsteinn frá Hamri
Þráinn Bertelsson
Þuríður Pálsdóttir
11SUNNUDAGUR 13. júlí 2003
Kim Larsen afþakkaði listamannalaun.
Bjartmar Guðlaugsson myndi ekki gera slíkt hið sama:
Erfitt að vera
blankur stjórnleysingi KIM LARSEN
Með ríkari Dönum og
líklega ekki mikið mál
fyrir hann að hafna
160 þúsund kallinum
sem honum var boð-
inn í formi listamanna-
launa.„Kim
Larsen er
götustrákur.