Fréttablaðið - 13.07.2003, Qupperneq 13
■ Battl
Dóri DNA er kannski ekki efst-ur á blaði yfir íslenska rapp-
ara ef marka má umdeildan lista
Sumarliða sem settur var fram á
huga.is fyrir
nokkru en hann
er ótvírætt einn
snjallasti battl-
arinn,“ segir
Gunnar Þorri
P é t u r s s o n ,
pistlahöfundur í
Víðsjá á Rás 1.
Hann hefur
skoðað fyrir-
bæri sem teljast
má með þeim nýjustu í unglinga-
menningunni. Battl kallast það og
er í raun einvígi milli rappara sem
miðar að því að gera lítið úr and-
stæðingi sínum með hnitmiðaðri
rímnaþulu að hætti rappara.
„Gúddsjitt eða ég er farinn“
Gunnar Þorri segir af frægu
atriði úr einni rimmunni milli
þeirra Dóra DNA og rappara sem
kallar sig Steinbítinn. Það hlýtur
að fylgja þessari sögu að Dóri
DNA heitir Halldór Halldórsson
og er barnabarn Halldórs Lax-
ness.
„Snemma í febrúar kom Dóri
DNA fram í Norðurkjallara MH
ásamt Bæjarins bestu og öðrum
rappsveitum,“ segir Gunnar
Þorri. „Framhaldið er nútí-
magoðsögn sem finna má í ótel-
jandi útgáfum á spjallrásum
netsins. Svo virðist sem meðlimur
í rapptríóinu Igore hafi látið í
veðri vaka að kveðskapur Dóra
væri lítt sæmandi barnabarni
Nóbelskálds. Samstundis stekkur
DNA upp á svið og rímar Igore í
rot. Dóri lætur ekki þar við sitja
og lætur aftur til skarar skríða í
reykpásu skömmu síðar er hann
ljóðar á Steinbít, rappara sem
vermir sæti númer 46. á styrk-
leikalista Sumarliða. Steinbítur
reynir að krafsa í bakkann en
Dóri DNA er ósigrandi og lýkur
rímu sinni á setningu sem hefur
orðið tilefni mikilla heilabrota
meðal netverja. „Ef þú kemur
ekki með eitthvað gúddsjitt þá er
ég farinn.“ Steinbítur svarar að
bragði: „Ég ætla þér að sýna /
hvernig á að ríma...“ Við svo búið
snýst Dóri DNA á hæl frekar en
að svara manni sem býður ekki
upp á annað en þennan hortitt.
„Hey hvert ertu að fara, maður?“
kallar Steinbítur á eftir Dóra: „Ég
ætla að sýna þér hvernig á að
ríma...“ Sýna og ríma! Þetta er
búið. Dóri yfirgefur svæðið og
hverfur inn í bifreið sem skömmu
síðar er aðeins reykský á bílaplan-
inu.“
Sökkaði feitt í því battlinu
Hugi.is er einn helsti vettvang-
urinn fyrir skoðanaskipti í þess-
um geira. Eftir þessi harkalegu
viðskipti þeirra DNA og Steinbíts-
ins fann Steinbíturinn sig knúinn
til að senda frá sér tilkynningu á
huga sem í styttri útgáfu er á
þessa leið:
„Hér er ekkert samsæri í
gangi. Dóri sendi mér skilaboð og
spurði af hverju ég væri að fronta
svona, og sem front þá vil ég
fronta og svara honum hér: Til að
skapa smá spennu mar. Plús það
að ég veit ég sökkaði feitt gegn
þér og var arfaslakur í því battli,
en afsakaðu sjálfstraustið, ég get
freestælað og það væri aðeins
skemmtilegra ef þú myndir líta á
mig sem verðugan andstæðing.
[...] Þú veist vel að mig dauðlang-
ar að battla þig af því ég er algjör-
lega á móti því að gaur úr Mos-
fellsdalnum, komin af virðingar-
verðum ættum rappi á íslensku,
okkar forna fjársjóði, eins og
hann búi á Malibu og sé með millj-
óna dollara samninga hér og þar,
hins vegar nærðu að koma því frá
þér á drulluflottan hátt, annað en
sumir rapparar sem einnig saurga
okkar fornu tungu með svipuðum
viðfangsefnum.Ég vona að ég geti
haft einhver áhrif á þig. mcSB“
Öryrkinn Dóri DNA
„Sko, það hafa verið haldnar
þrjár keppnir. Eitt rímnastríð í
Norðurkjallara MH og tvær á
Gauki á Stöng: Rímnastríð og
Battle of the MCs,“ segir sjálfur
Dóri DNA sem þiggur viðurnefni
sitt af hljómsveit sem hann var
eitt sinn í.
Dóri segir fyrirkomulagið vera
þannig að tveir rapparar etja
kappi og fá til þess tvær lotur sem
eru hálf mínúta hver. „Á þessari
hálfu mínútu áttu bara að láta
hinn líta illa út og vera hress og
skemmtilegur, „ segir Dóri. „Það
er mikið kappsmál að þú semjir
rímurnar á staðnum. Þeir sem
koma með fyrirfram samið standa
verr að vígi. Best er að semja
þetta jafnóðum.“ Dóri vill reynd-
ar meina að röppurunum hafi tek-
ist að íslenska það sem nú kallast
battlari. Öryrki sé ljómandi nafn,
það eru þeir sem eru góðir að ör-
yrkja og rappararnir séu í Ör-
yrkjabandalaginu.
Dóri segir að í þeim þremur
keppnum sem haldnar hafa verið
hafi hann og Elvar í Afkvæmum
guðanna ævinlega mæst í úrslit-
um. Dóri vann fyrstu viðureign-
ina en Elvar þær tvær síðustu. Að-
spurður segir Dóri það vera til
vansa að vera með óburðugan
dónaskap. „Ef maður segir að
hinn sé fífl og mamma hans mella,
þá er það einfaldlega lélegt,“ seg-
ir hann. „Þetta er spurning um að
vera sniðugur en ekki keppni í að
vera svívirðilegri. Ég er til dæmis
frekar þybbinn og ef einhver seg-
ir mig feitan, þá er það alveg glat-
að. Hins vegar sagði Elvar eitt
sinn að ég væri að battla ham-
borgaratilboð. Það var mjög gott
hjá honum.“
Að sögn Dóra var keppni núm-
er 2 þeirra besta battl og hafði
Elvar verðskuldaðan sigur. „Þá
sagði hann: Gæinn er bara frægur
af því að afi hans er Halldór Lax-
ness. Og það svínvirkaði hjá hon-
um.“
„Ekki dissa mig,
í rímum er ég fær“
Gunnar Þorri hefur sett fram
skemmtilega og sannfærandi
kenningu. Battlari er nýtt orð í ís-
lensku líkt og bretteur var í Rúss-
landi á 19. öld en bæði vísa til
þeirra sem annálaðir eru fyrir
einvígi. Þetta virðist fylgja nýjum
straumum á menningarsviði
Rússneskar bókmenntir voru
að fæðast líkt og rappið á Ísla
árið 2001. Og sagan endurtek
sig. Árið 2001 komu út plö
Sesar A og Rotweilerhunda, þ
fyrstu þar sem eingöngu er r
pað á íslensku „Í hverju eina
lagi á plötu Rottweiler eru ra
verulegir og ímyndaðir óvi
skoraðir á hólm, battlaðir og
battlaðir þar til rímnasmiður
stendur einn og ósigraður eftir
þessari plötu er að finna fyr
birtingu Dóra DNA í rappheim
og hann gefur ekki tommu efti
Berst með orðum og nota þau s
spjót
á móti mér fellurðu eins og hlu
bréf í DeCode;
svo ekki dissa mig því í rímum
ég fær
Dóri DNA, Mosfellsbær“
jakob@frettablad
12 13. júlí 2003 SUNNUDAG
Siglingadagar 2003
Ísafirði 18. til 27. júlí
Nánar á: www.isafjordur.is/siglingadagar
N
e
th
e
im
a
r
e
h
f.
UMDEILDUR LISTI
- 50 BESTU RAPPARARNIR!
Sá sem kallar sig Sumarliða á spjal
svæðinu huga.is vogaði sér að setja
saman lista yfir 50 bestu rapparana
„Raðað eftir textum, flæði og frum-
leika. Njótið.“ Listi Sumarliða gefur
ágæta hugmynd um hversu öflugur
þessi menningarkimi er en skemms
er frá því að segja að á þessu helst
spjallsvæði unglinga varð allt brjála
og óteljandi svör bárust þar sem fjö
margir lýstu yfir megnustu óánægju
með listann. „Nú held ég að þú haf
verið að skapa meira beef en Slátu
félag Suðurlands,“ skrifar gsi, „Grei
legt að þú ert ekkert annað en ein-
hver árbæjaraðdáandi dauðans ef
maður fer eftir efstu sætunum á lis
anum þínum,“ segir ozo og frikki se
ir: „Það er álíka gáfulegt að troða
Igore inn á þennan lista eins og tan
kremi aftur í túpuna.“
1. Hr. Kaldhæðni (Afkvæmi guðanna)
2. Bent (xxx Rottweiler/Bent & 7Berg
3. Misskilinn (Afkvæmi Guðanna)
4. 7Berg (Bent & 7Berg)
5. Offbeat MC (Skytturnar)
6. Tact (Forgotten Lores)
7. Vivid Brain (P.O.P Forms)
8. BlazRoca (xxx Rottweiler)
9. Class B (Forgotten Lores
10. Mezzías MC
11. MagzE (Ant Lew/Maximum)
12. Bobbi Vandræðagemsi
13. Sesar A
14. Mystic (Twizted Minds)
15. Móri (Delphi)
16. Ómar Suarez (Quarashi)
17. Hlynur (Skytturnar)
18. Gunni (Skytturnar)
19. Hughvarfahríð
(Get ekki gert upp á milli þeirra)
20. Mauze
21. Dóri (Bæjarins Bestu)
22. Mr. Slim (Forgotten Lores)
23. Svarthjarta (Smjattpattarnir)
24. Illhugi (Smjattpattarnir)
25. Beatific (Poetic Reflections)
26. Hefðarköttrinn (P.O.P. Forms)
27. Cell 7 (Subterranean/Faculty)
28. OPee (O.N.E.)
29. MC Rain (Twizted Minds)
30. Andri Izle
31. MC Tiny
32. Freydís
33. Ramses (Upprunalega Fólkið)
34. Andri (Diplomatiks)
35. Mikki (Diplomatiks)
36. Pési (Igore)
37. T-Bone (Bounce Brothers)
38. Frikki (Igore)
39. Marlon
40. Logbert (Dialectics)
41. Steini (D.N.A.)
42. L.KO (Dialectics)
43. Tha Angel
44. Chipha
45. Gretzky B. (Chosen Ground)
46. Steinbítur
47. Boli
48. Ægir (Dialectics)
49. Andri Pet (Chosen Ground)
50. MC Eddi
„Battl“ er einvígi þar sem rapparar reyna að ríma hvorn annan í kaf. Battl getur reynst
býsna illvígt og er allt látið flakka. Dóri DNA er einn tveggja bestu battlara á Íslandi og
mótherjar hans hika ekki við að notfæra sér vaxtarlag hans og þá staðreynd að hann er
barnabarn Nóbelskáldsins – þegar þeir senda honum tóninn.
Ég ætla þér að sýna,
hvernig á að ríma
GUNNAR ÞORRI PÉTURSSON
Hann hefur kynnt sér fyrirbærið battl og sér ákveðna samsvörun á milli þess að vera
„battlari“ og svo „bretteur“ sem voru menn sem stunduðu einvígi í Rússlandi á 19. öld.
„Þetta er
spurning um
að vera snið-
ugur en ekki
keppni í að
vera svívirði-
legri.
HR. KALDHÆÐNI
Efstur á lista Sumarlida.
DÓRI DNA
Sonarsonur Nóbelskáldsins er
einn öflugasti „battlarinn“ í
bransanum í dag. Battl er eins
konar einvígi í að ríma - og
getur orðið illvígt á stundum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÚT JÚLÍ-MÁNUÐ
AF FÖRÐUNARLÍNU NO NAME
SJÁ ÚTSÖLUSTAÐI Á WWW.NONAME.IS
15%
AFSLÁTTUR