Fréttablaðið - 13.07.2003, Page 25

Fréttablaðið - 13.07.2003, Page 25
■ ■ ÚTIVIST  8.00 Dagsferð Ferðafélags Íslands verður farin á Kerlinguna á Kaldadal og þaðan ofan Hrúðurkarla á Litla-Björns- fell og síðan áfram á línuveg við Hrauk. Gangan tekur um sjö klukkustundir. Lagt verður af stað frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6. Fararstjóri er Sigrún Huld Þorgrímsdóttir. ■ ■ MESSA  10.30 Þema morgunsöngs í Hafn- arfjarðarkirkju verður hið nýja fjöl- menningarlega samfélag sem er í mót- un á Íslandi. Prestur er séra Þórhallur Heimisson en organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Þetta er síðasti þemamorgunn sumarsins. ■ ■ TÓNLIST  15.00 Helga Ingólfsdóttir sembal- leikari flytur verk eftir Louis Couperin, Georg Böhm og Jóhann Sebastian Bach á Sumartónleikum í Skálholti.  15.00 Jazzfélagarnir Alfreð Alfreðs- son á trommur, Árni Scheving á bassa, Jón Páll Bjarnason á gítar og Þórir Bald- ursson á hljómborð troða upp á fyrstu sunnudagsuppákomunni í nýju og glæsilegu Listasafni Árnesinga í Hvera- gerði. Aðgangur er ókeypis.  16.00 Skálholtskórinn kemur í heimsókn á dagskrá Listasumars á Sól- heimum í Grímsnesi. Kórinn syngur nokkur lög í kaffihúsinu Grænu könn- unni.  16.40 Sönghópurinn Hljómeyki flytur trúarleg verk eftir Oliver Kentish í tónlistarstund fyrir messu á Sumartón- leikum í Skálholti. Stjórnandi er Bern- harður Wilkinson. Messan hefst síðan klukkan fimm og í henni verða fluttir þættir úr tónverkum eftir Oliver Kentish.  17.00 Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth hörpuleikari leika og syngja blandaða efnisskrá með nýju og gömlu efni á Sumartónleikum í Ak- ureyrarkirkju.  20.00 Roger Sayer, dómorganisti frá Rochester, kemur fram á tónleikum í röðinni Sumarkvöld við orgelið í Hall- grímskirkju. Sayer leikur verk eftir Ed- ward Elgar, César Franck, Anton Heiller og Charles-Marie Widor.  Bandaríska hljómsveitin Mastodon spilar á Gauknum. Forgarður Helvítis, Changer og Brutal frá Vestmannaeyjum hita upp. Þetta eru áfengislausir tónleik- ar fyrir alla aldurshópa. ■ ■ SAFNADAGURINN  10.00 Selið í Skaftafelli. Ragnar F. Kristjánsson þjóðgarðsvörður verður með leiðsögn um bæinn í Selinu. Farið verður frá Skaftafellsstofu. Önnur leið- sögn verður klukkan 15.00. 13. júlí 2003 SUNNUDAG24 FAST AND T... 5.50, 8, 10.10 b.i THE MATRIX R.. kl. 10 b.i GULL PLÁN. m/ísl. kl. 2 Tilb. 30 BRINGING DOWN THE H... kl. 4 og kl. 6, 8, og 10 POWERS. KL. 12 bi 14 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i. 12 ára kl. 6NÓI ALBINÓI kl. 4 og 8 RESPIRO kl. 4, 8 og 10 b.i. 12THE MATRIX REL... kl. 4,JOHNNY ENGLISH kl. 2, 5, 8 og 10 Sýnd í lúxus kl. 2, 5 og 8 VIP TÖFRABÚÐ. m/ísl. ANGER MANAGEMENT 5.45, 8, 10.30 Sýnd kl. 4, 7 og 10 b.i. 12 ára Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 3, 5.40, 8, og 10.20 Sýnd í lúxus kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50 kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 14DARK BLUE DUMB AND DUMB... 2, 4, 6, 8 og 10 AGENT CODY BANKS kl. 3.30 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. kl. 2 og 4 KANGAROO JACK kl. 2, 4, 6 og 8 DARK BLUE kl. 8 og 10 b.i 16 TÖLVULEIKIR Í gær kom í verslanir Eye Toy apparatið fyrir Play- Station 2. Hér er á ferðinni nokkuð sérstakt fyrirbæri sem saman- stendur af stafrænni myndavél með hreyfiskynjara og 12 smáleikj- um. Hugmyndin er svo að setja myndavélina ofan á sjónvarpið þar sem spilað er og spila svo leikina sem byggjast allir á því að nema hreyfingar þínar sem þú átt að reyna að samræma við fyrirmæli á skjánum. Þú getur átt að dansa, boxa, taka nokkur karatehögg út í loftið eða bara þrífa glugga, svo dæmi séu tekin. Allir leikirnir byggjast þó á hreyfingu og enginn stýripinni er þarfur í sjálfa spilunina, bara til að stilla valmöguleika og velja leiki. Hreyfing og tölvuleikir eru ekki hugtök sem iðulega er blandað saman og gæti Eye Toy því verið skemmtileg tilbreyting fyrir upp- skrælnaða, náföla og vöðvarýra leikjafíkla. Gamanið endist þó lík- lega ekki að eilífu en Eye Toy smá- leikirnir eru ekki fullgerðir og djúpir leikir, heldur stuttir og e faldir leikir sem hver sem ætti geta skilið. ■ hvað?hvar?hvenær? 10 11 12 13 14 15 16 JÚLÍ Sunnudagur SÖFN „Söfnin í dag eru ekki bara rykfallnir geymslustaðir. Þar er ýmislegt um að vera og margt sem höfðar til unga fólksins,“ segir Gerður Róbertsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Árbæjarsafns. Nánast öll söfn á Íslandi, bæði byggðasöfn, listasöfn og náttúru- gripasöfn, samtals fimmtíu söfn, eru með eitthvað sérstakt í gangi í dag í tilefni af safnadeginum, sem nú er orðinn árviss viðburður. „Hér á Árbæjarsafni erum við með tvískipta dagskrá,“ segir Gerð- ur. Annars vegar er söguganga niðri í bæ þar sem Páll V. Bjarnason sagnfræðingur ætlar að fylgja fólki um Þingholtin. Lagt er af stað frá túninu fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík klukkan tvö. Hins vegar er dagskrá á Árbæj- arsafni sem byrjar klukkan eitt. Þar verður Guðjón Friðriksson með leiðsögn um sýninguna Sögu Reykjavíkur og að því búnu verð- ur bókakynning þar sem höfundar þriggja nýrra sagnfræðirita lesa úr verkum sínum. Þetta eru þeir Illugi Jökulsson, Guðjón Friðriks- son og Eggert Þór Bernharðsson. „Markmiðið með því að efna til þessa safnadags er að vekja at- hygli gesta á því blómlega star sem fram fer í söfnum landsin Það verða ýmsar uppákomur, t dæmis er verið að sýna handver og kynna ýmsar nýjungar í safn starfi eins og sögugöngurnar, se nú njóta mikilla vinsælda.“ Með sögugöngum er til dæm átt við göngu Páls um Þingholti Á Akureyri er boðið upp á göng yfir Vaðlaheiði, þar sem far verður gamla þingmannaleiðin. Eyrarbakka verður farið í göng ferð um gamla þorpið og á Hnjó verður gengið upp í Sauðlauksda gudsteinn@frettabladid Fyrir börn á öllum aldri! Fyrir ferðina GILOFA 2000 Upplagðir fyrir flugið Fást í flestum apótekum, t.d. í Lyf og heilsu, Lyfju og Ilskinn, Háaleitisbraut. EYE TOY MYNDAVÉLIN Hreyfiskynjari og myndavél sem nýtist líka sem vefmyndavél ef því er til dreifa. Tölvuleikjahreyfing: Á fullri ferð framan við skjáinn Safna ekki bara ryki Nærri öll söfn á landinu eru með eitthvað sérstakt í gangi í dag. FRÁ ÁRBÆJARSAFNI Fimmtíu byggðasöfn, listasöfn og náttúrugripasöfn um land allt taka þátt í safnadeginum, sem nú er haldinn fimmta árið í röð. kl. 2 og 4 Tilb. 500 kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.