Fréttablaðið - 13.07.2003, Page 29

Fréttablaðið - 13.07.2003, Page 29
28 13. júlí 2003 SUNNUDAG atvinnu/auglýsingar Við leitum að fulltrúa Öryrkjabandalag Íslands óskar að ráða fulltrúa á skrifstofu bandalagsins. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 1. ágúst nk. Númer starfs er 3248. Starfssvið: Almenn skrifstofustörf. Upplýsingagjöf. Bréfaskriftir. Prófarkalestur. Yfirlestur innlendra og erlendra gagna. Samantekt efnisatriða. Samskipti við aðildarfélög Öryrkjabandalagsins. Menntun og hæfniskröfur: Háskólamenntun. Nokkura ára starfsreynsla á almennum vinnumarkaði æskileg. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi mjög gott vald á íslenskri tungu, skrifi og tali ensku og a.m.k. eitt Norðurlandamál. Góð þekking á forritum eins og Microsoft Word og Excel nauðsynleg. Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is Grunnskólakennarar, Nokkrar stöður eru lausar ennþá alm. bekkjakennslu. Grunnskólinn á Raufarhöfn er einsetinn, rúmgóður og vel búinn skóli með rúmlega 50 nemendum í hæfilega stórum bekkjar- deildum. Á Raufarhöfn búa um 300 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Gott og ódýrt íbúðahúsnæði er til staðar. Á staðnum er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurs- hópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru ti staðar í ósnortinni náttúru. Á Raufarhöfn býr kraftmikið og skemmti- legt fólk. Samfélagið á Raufarhöfn stendur þessa dagana frammi fyrir vanda sem verður leystur og er enga uppgjöf að finna Ástæða þess er einföld: á Raufarhöfn er gott að búa. Hver vill ekki gera tilraun og leyfa börnum sínum að upplifa þá paradís og það frelsi sem á staðnum er að finna? Hver vill ekki komast í kynni við sjálfan sig og losna við áreitið sem borgarlífinu fylgir? Hver er ekki tilbúinn til að sannreyna orð þeirra sem búa á staðnum? Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif- stofu Raufarhafnarhrepps í síma 465-1151 hildur@raufarhofn.is hjá Guðnýju Hrund Karlsdóttur, sveitarstjóra gudny@rau- farhofn.is og Sigþóri Þórarinssyni formann skólanefndar í síma 893-1080. Einnig er hægt að nálgast almennar upplýsingar um skólastarfið á heimasíðu hreppsins www.raufarhofn.is undir liðnum Grunnskóli. Raufarhafnarhreppur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.