Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 1
WASHINGTON, AP Þjóðarleiðtogar
hafa fagnað fréttum af falli Uday
og Qusay, sona Saddams Huss-
eins, fyrrum forseta Íraks.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, segir söguleg þáttaskil
hafa orðið í Írak við
fall bræðranna.
„Þetta er stórkost-
legur dagur fyrir hið
nýja Írak,“ sagði
Blair.
Bush Bandaríkja-
forseti segir dauða
bræðranna skýrasta
merkið hingað til um
að gamla veldið sé
hrunið og muni ekki eiga aftur-
kvæmt. Bush segir bræðurna tvo
helstu böðla öxulveldis hins illa.
„Þeir eru ábyrgir fyrir pynting-
um, limlestingum og drápum
fjölda Íraka,“ sagði Bush.
Bush sagði þó að nokkur vígi
væru eftir hliðholl stjórn
Husseins og þau hægðu á því ætl-
unarverki að koma á stöðugleika
og frelsi í Írak. „Þessir morðingj-
ar eru óvinir írösku þjóðarinnar.
Þeir starfa aðeins á fáum svæðum
í landinu og hvar sem þeir starfa
er verið að elta þá uppi og þeir
verða sigraðir,“ sagði Bush og
bætti því við að hann væri ákveð-
inn í að hjálpa til við að koma á fót
frjálsri þjóð sem byggi við lýð-
ræði í Írak.
John Howard, forsætisráð-
herra Ástralíu, sem hefur stutt
stefnu Bandaríkjamanna og
Breta, sagðist binda vonir við að
fall sona Saddams hefði í för með
sér stöðugleika í Írak.
„Ég held ég geri síst of mikið
úr hlutunum þegar ég segi að fall
bræðranna sé stórt skref fram á
við. Þetta er einnig mikill
sálfræðilegur sigur,“ sagði
Howard.
Í sama streng tóku leiðtogar
Þýskalands, Japans og Nýja-Sjá-
lands en stjórnir allra þessara
landa voru andvíg stríði gegn
Írak.
Íbúar Bagdad glöddust mjög
og skutu af byssum sínum þegar
fréttir af falli bræðranna bárust
en annað var uppi á teningnum í
vesturhluta landsins. Þar hótuðu
landsmenn sem trúir eru fyrrum
forseta sínum að hefna dauða
sona Saddams grimmilega.
Þjóðarleiðtogar lýsa þeirri von
að fráfall sona Saddams verði þó
vonandi til þess að Írakar hætti
skæruliðaárásum á Bandaríkja-
menn og flýti jafnframt fyrir lýð-
ræðisþróun í landinu.
the@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Bíó 30
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
FIMMTUDAGUR
24. júlí 2003 – 168. tölublað – 3. árgangur
STA Ð R EY N D UM
A U K I N
F O R YS TA
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í júní 2003
29,1%
53,4%
65,9%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
ENGIN UNDANKOMA
Formaður Sjó-
mannafélags
Reykjavíkur fagn-
ar því að utanrík-
isráðuneytið hef-
ur breytt reglu-
gerð þannig að
skipafélögum
sem sjá um flutn-
inga fyrir varnar-
liðið er skylt að semja við áhafnir skipa
sinna samkvæmt íslenskum kjarasamning-
um. Sjá nánar bls. 4
BAUGUR Í BENSÍNIÐ
Baugur hefur uppi áform um að hefja inn-
flutning og dreifingu á bensíni. Félagið hef-
ur óskað eftir afnotum á bensíntönkum í
Helguvík og óskað eftir viðræðum við borg-
aryfirvöld um leyfi til að setja upp bensín-
stöð. Sjá nánar bls. 2
RANNSÓKN STRAX
Kristinn H. Gunnarsson, varaformaður
efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, vill
að Ríkislögreglustjóraembættið hefji þegar
rannsókn á samráði olíufélaganna. Hann
vill einnig kanna möguleika á að færa Sam-
keppnisstofnun undir embætti Ríkislög-
reglustjóra. Sjá nánar bls. 4
VEÐRIÐ Í DAG
ættleiðir barn frá Kína
Þórunn Sveinbjarnardóttir:
▲
SÍÐA 36
Beðið eftir
barni
landhelgisdeilan minnisstæð
Bragi Steinarsson:
▲
SÍÐA 38
42 ár hjá
ríkissaksóknara
Í dag rofar til um vestanvert landið og þar
verður þurrt að kalla. Það þýðir að Reykja-
vík verður góður kostur. Sjá nánar bls. 6
LJÓÐAPARTÍ
Ljóðskáld taka völdin á Grand Rokk í kvöld.
Þar lesa Haukur Már Helgason og Eiríkur
Örn Norðdahl úr nýútgefnum bókum sín-
um. Auk þeirra lesa fjögur skáld upp ljóð
sín og plötusnúður sér um tónlist í partíi
sem skipuleggjendur lýsa sem blöndu ljóð-
listar, tónlistar og drykkjulistar. Sjá nánar:
SAMKEPPNISMÁL „Ég get staðfest að
af hálfu Sambands íslenskra
tryggingafélaga hefur öllum ásök-
unum sem fram koma í frum-
athugunum Samkeppnisstofnunar
um ólögmætt samráð verið hafn-
að. Ég veit ekki betur en að sama
afstaða hafi komið fram hjá öllum
félögunum,“ segir Sigmar Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra tryggingafé-
laga. „Að öðru leyti hef ég ekkert
um málið að segja.“
Samkeppnisstofnun komst að
þeirri niðurstöðu eftir frumrann-
sókn á meintu samráði trygginga-
félaganna að þau hefðu haft sam-
ráð um að lækka tryggingaiðgjöld
með það að markmiði að drepa nið-
ur samkeppni sem kom inn á mark-
aðinn í formi bílatrygginga á veg-
um Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda. Frá þessu var greint í Frétta-
blaðinu 20. desember 2001, um það
leyti sem verið var að leggja loka-
hönd á skýrsluna áður en hún var
send út til tryggingafélaganna.
Hvorki Einar Sveinsson, for-
stjóri Sjóvár-Almennra, né Gunn-
ar Felixsson, forstjóri Trygginga-
miðstöðvarinnar, vildu tjá sig um
málið. ■
Rannsókn Samkeppnisstofnunar á tryggingafélögunum:
Þvertekið fyrir samráð
LOGSOÐIÐ Í SLIPPNUM Það dugar ekki alltaf að dytta að skipum úti á sjó eða liggjandi við bryggju í höfn. Stundum þarf að taka þau
upp í slippnum til að vinna í byrðingnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
R
A
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur vikið
forstjóra Löggildingarstofu frá störfum fyrir
óreiðu á fjárreiðum stofnunarinnar, sem
höfðu í för með sér sóun á almannafé.
Löggildingarstofa:
Forstjóri
rekinn
SJÓRNSÝSLA Valgerður Sverrisdótt-
ir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
vék í gær Gylfa Gauti Péturssyni,
forstjóra Löggildingarstofu, úr
embætti vegna stórfelldrar óreiðu
á fjárreiðum stofnunarinnar.
Gylfa var í apríl síðastliðnum
vikið tímabundið úr störfum sam-
kvæmt lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins og
var þriggja manna rannsóknar-
nefnd skipuð til að fara yfir mál
hans. Niðurstaða nefndarinnar var
sú að Gylfi Gautur hafi borið
ábyrgð á óreiðu á fjárreiðum
stofnunarinnar.
Meðal þess sem gagnrýnt hefur
verið í fjárreiðum Löggildingar-
stofu er óeðlilega hár fjarskipta-
kostnaður, eignakaup úr hófi,
launamál og bókhald í ólestri og
ýmiss konar óeðlilegur kostnaður.
„Þetta er mjög leiðinlegt mál,
og það er enginn sigurvegari í
svona máli. Nefndin hefur staðfest
þá skoðun okkar að ekki hafi verið
líðandi að fara svona með al-
mannafé,“ segir Valgerður. ■
DAGURINN Í DAG
Leiðtogar fagna
falli böðlanna
Þjóðarleiðtogar fagna falli sona Saddams Husseins. George W. Bush
Bandaríkjaforseti segir gamla veldið þar með fallið. Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, tekur í sama streng.
SAMKEPPNISSTOFNUN
Starfsfólk stofnunarinnar leitaði gagna á
skrifstofu Sambands íslenskra tryggingafé-
laga í september 1997. Lokaskýrsla um
málið birtist væntanlega í lok þessa árs.
„Þetta
er stór-
kostlegur
dagur fyr-
ir hið nýja
Írak.
Almannaskarð:
Hjón létust
UMFERÐARSLYS Eldri hjón létust
þegar jeppi með tjaldvagn fór út
af veginum við Almannaskarð í
Hornafirði og valt niður fjallshlíð-
ina um 300 metra um miðjan gær-
daginn.
Slagviðri og slæmt skyggni var
þegar slysið varð og gekk á með
vindhviðum. Hjónin voru á leið
niður fjallveginn Hornafjarðar-
megin, en hann er sá brattasti á
landinu og er oft sviptivindasamt
við skarðið. Rannsókn slyssins er
í höndum lögreglu, en hjónin not-
uðu bílbelti. ■
Útsölu-
Opið til kl. 21 í kvöld.
lok
götumarkaður
uppáhaldsstaðurinn ● borgir
▲
SÍÐUR 26 og 27
Hólmurinn
er bestur
ferðir o.fl.
Svanborg Siggeirsdóttir: