Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 6
6 24. júlí 2003 FIMMTUDAGUR ■ Viðskipti GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 77.31 -0,54% Sterlingspund 123,94 -0,59% Dönsk króna 11.86 -0,25% Evra 88.16 -0,23% Gengisvísitala krónu 124,40 0,08% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 161 Velta 1.208,2 ICEX-15 1.509 0,43% Mestu viðskiptin Pharmaco hf. 73.376.357 Sjóvá-Almennar tryggingar 37.732.943 Eimskipafélag Íslands hf. 17.499.784 Íslandsbanki hf. 16.323.411 Skeljungur hf. 15.341.866 Mesta hækkun Samherji hf. 6,06% Kaupþing Búnaðarbanki hf. 0,06% Landsbanki Íslands hf. 0,25% Mesta lækkun Fiskmarkaður Íslands hf. -2,50% Og fjarskipti hf. -0,38% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 9.105,9 -0,6% Nasdaq: 1.697,1 -0,5% FTSE: 4.086,5 0,2% Nikkei: 9.615,3 1,4% S&P: 982,0 -0,6% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Þrettán manns særðust þegar sprengj-ur sprungu á tveimur hótelum við Miðjarðarhafsströnd Spánar. Hverjir stóðu á bak við sprengingarnar? 2Breskur stjórnmálamaður og rithöf-undur var látinn laus úr fangelsi á mánudag. Hver er maðurinn? 3Tveir synir Saddam Hussseins létu líf-ið í árás á þriðjudag. Hvað hétu þeir? Svörin eru á bls. 38 Kaupm.höfn London París Berlín Algarve Benidorm Torrevieja Krít Kýpur Róm New York Miami 24°C skýjað og skúrir 21°C skýjað og skúrir 21°C skýjað og skúrir 25°C skýjað og skúrir 25°C heiðskírt 27°C léttskýjað 29°C léttskýjað 27°C heiðskírt 33°C heiðskírt 30°C heiðskírt 24°C léttskýjað 30°C hitaskúrir FöstudagurÍ dag Laugardagur Veðrið úti í heimi í dag Úrkomusvæði eru skyggð á kortinu. Minniháttar skúraleiðingar eru táknaðar með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi dagsins. Veðrið EYJAR INNI Í dag rofar heldur til á vestanverðu land- inu og þar verður þurrt að kalla. Það þýðir að Reykjavík verður góður kostur. Einnig Vestmanna- eyjar en þar ætti að viðra vel til golf- iðkunar, þó maður óttast alltaf þokuna. Úrkomusvæðið yfir Austurlandinu frá Egilsstöðum til Hornafjarðar er nokkuð eindregið. Fúlt það, fyrir ferða- manninn í það minnsta. Annars eiga þessi fellihýsi að þola allt. Er ekki ágætt að sitja inni í hlýju felli- hýsi með góða bók? Kveðja, Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur Strekkingur Hægur vindur Breytileg átt Hægviðri Strekkingur Hægur vindur Hægur vindur Hægviðri Hægur vindur Hægur vindur SOGN Í KJÓS Snorri segir nautin seint verða ofdekruð enda markmiðið með fóðruninni að gera þau sem digrust. Nautin á Sogni í Kjós: Kleinur og flatkökur NAUTGRIPIR Snorri Örn Hilmars- son, bóndi á Sogni, hefur tekið upp á því að fóðra naut sín á flat- kökum og kleinum. Hann heldur tvisvar í viku til Reykjavíkur til að ná í varninginn og færir naut- unum. „Ég fæ þetta að kostnaðar- lausu og nýti það enda eru nautin sólgin í allt svona fóður.“ Að- spurður hvort nautin séu ekki ofdekruð segir Snorri þau aldrei geta orðið of mikið dekruð enda markmiðið að hafa þau sem stærst og feitust. ■ ÍRAK Kynferðisofbeldi gegn kon- um hefur aukist verulega í Bagdad síðan stjórn Saddams Husseins var steypt af stóli, að því er fram kemur í nýrri skýrslu alþjóðlegra mannréttindasam- taka. Ástand þetta hefur orðið þess valdandi að konur halda sig í auknum mæli innan dyra og taka því ekki virkan þátt í daglegu lífi í borginni á þessum mikil- vægu tímamót- um. Í skýrslu s a m t a k a n n a Human Rights Watch er bent á að innrásarhern- um og borgara- legum stjórnvöldum í Bagdad hafi enn ekki tekist að tryggja öryggi almennings og konur séu því auð- veld bráð fyrir misindismenn. Jafnframt er því haldið fram að lögreglan sinni því ekki sem skyldi að rannsaka glæpi af þessu tagi. Rannsóknir samtakanna gefa til kynna að nauðgunum og öðrum kynferðisglæpum hafi fjölgað verulega í Bagdad á síðustu vik- um og mánuðum. Einnig hefur komið í ljós að fjölda kvenna og ungra stúlkna hefur verið rænt af götum borgarinnar, jafnvel um hábjartan dag. Samtökin segja að ótti kvenna við það að verða fórn- arlömb kynferðisglæpamanna sé orðinn slíkur að margar þeirra þori ekki að yfirgefa heimili sín, ekki einu sinni til að sækja skóla eða mæta til vinnu. Johanna Bjorken, einn af tals- mönnum Human Rights Watch, hefur rætt við nokkrar konur og ungar stúlkur sem numdar hafa verið á brott og bendir á að íraska lögreglan hafi sýnt málum af þessu tagi lítinn áhuga. Bjorken segist hafa leitað til lögreglunnar vegna fimmtán ára gamallar stúlku sem haldið var fanginni í heilan mánuð áður en henni tókst að sleppa af sjálfsdáðum. Talið er að ætlunin hafi verið að hneppa stúlkuna í kynlífsánauð. „Það sem olli mér mestum áhyggjum var að íraska lögreglan sýndi máli stúlkunnar engan áhuga. Þegar ég ræddi við þá töluðu þeir um hana sem „stúlkuna sem hljóp að heim- an,“ sagði Bjorken. Í ofangreindri skýrslu kemur einnig fram að fórnarlömb kyn- ferðisglæpamanna eigi síður en svo greiðan aðgang að læknis- þjónustu. Heilbrigðisstarfsmenn sýni þeim lítinn skilning og þeim sé oft á tíðum synjað um þjónustu á heilsugæslustöðvum og sjúkra- húsum. Samtökin Human Rights Watch fara fram á að Bandaríkin komi á fót sveit sérþjálfaðra manna og kvenna sem sjái um að rannsaka kynferðisglæpi þangað til tekist hafi að byggja upp öfluga lög- gæslu í Bagdad. ■ SINGAPÚR, AP Læknar á Raffles- sjúkrahúsinu í Singapúr telja of snemmt að segja til um hvort aðskilnaður suður-kóresku tví- burasystranna Min Ji-Hye og Min Sa-Rang hafi heppnast. Enn eigi eftir að koma í ljós hvort þær vaxi eðlilega. Systurnar voru aðskildar í fimm og hálfrar klukkustundar langri skurðaðgerð í Singapúr í fyrradag. Þeim líður eftir atvik- um vel og vonast læknar til að þær geti lifað eðlilegu lífi. Syst- urnar, sem eru fjögurra mánaða gamlar, voru samvaxnar á mjöðmum. Þær eru enn á gjör- gæsludeild en eru komnar úr öndunarvélum. ■ ENN Í HÆTTU Síamstvíburasysturnar Sa-Rang og Ji-Hye, eða Kærleikur og Viska eins og það útleggst, eru enn í hættu eftir erfiða aðgerð þar sem þær voru aðskildar. Tíminn einn mun að sögn lækna leiða í ljós hvort þær vaxi eðlilega. Kóresku síamstvíburarnir: Enn óvissa KONUR Í BAGDAD Svo virðist sem bandaríska herliðinu í Bagdad og hinni nýstofnuðu írösku lögreglu hafi ekki tekist að gæta öryggis kvenna í borginni. Fórnarlömb kynferðisglæpa Kynferðisglæpum hefur fjölgað verulega í Bagdad, samkvæmt nýrri skýrslu. Konur þora ekki út úr húsi af ótta við misindismenn. Mann- réttindasamtök krefjast aðgerða af hálfu bandarískra yfirvalda. „Þegar ég ræddi við þá töluðu þeir um hana sem „stúlkuna sem hljóp að heiman“. Suðvestur-Tyrkland: Sterkir jarðskjálftar ISTANBÚL, AP Mikil skelfing greip um sig í suðvesturhluta Tyrklands í gær þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir landið laust fyrir klukk- an átta að morgni. Fólk þusti ótta- slegið út á götur Denizli og á ná- lægum svæðum. Engan sakaði og ekki er vitað til að skemmdir hafi orðið. Skjálftinn mældist 5,2 á Richter-kvarða. Skjálftinn var sterkastur suð- vestur af höfuðborginni Ankara. Jarðskjálftar eru tíðir í Tyrklandi. Tveir stórir skjálftar kostuðu 18.000 Tyrki lífið árið 1999. ■ HITAVEITA HLÍÐAMANNA SELD Orkuveita Reykjavíkur hefur gengið frá kaupum á Hitaveitu Hlíðamanna en með kaupunum yf- irtekur hún einnig dreifiveitur í eigu heimamanna. Veiturnar þjóna um 200 sumarhúsum auk sveita- býla en vatnið kemur úr borholu á Efri Reykjum. Verðmæti samn- ingsins er 65 milljónir króna og tekur Orkuveita Reykjavíkur við rekstri veitunnar 1. september. Laugavegsganga 2003 10. - 13. ágúst 2003 Ógleymanleg ævintýraferð fyrir göngufólk! Snæland Grímsson ehf., sem er rótgróið fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu, mun efna til “Laugavegsgöngu” - frá Landmannalaugum í Þórsmörk, dagana 10.-13. ágúst nk. Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 10:00 sunnu- daginn 10. ágúst og ekið sem leið liggur í Landmannalaugar. Þaðan verður gengið í Hrafntinnusker þar sem gist verður þá nótt. Annan daginn verður gengið að Álftavatni og þann þriðja í Emstrur. Síðasta daginn verður gengið í Þórsmörk þar sem rúta sækir göngufólk. Ferðin kostar kr. 25.000,- pr. mann. Innifalið í verði er akstur í Landmannalaugar og úr Þórsmörk, flutningur á farangri, matur og hópstjórn. Allar nánari upplýsingar um ferðina og ráðgjöf varðandi út- búnað eru veittar á skrifstofu Snælands Grímssonar ehf. í síma 588 8660 eða með tölvupósti - snaeland@snaeland.is. Bókaðu þig strax! Takmarkaður sætafjöldi! Langholtsvegi 115 - 104 Reykjavík Sími: 588 8660 - Fax: 588 8661 E-mail: snaeland@snaeland.is- www.snaeland.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.