Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 23
24 24. júlí 2003 FIMMTUDAG SIF PÁLSDÓTTIR Sif Pálsdóttir, Íslandsmeistari í áhaldafim- leikum undanfarin fjögur ár, leikur listir sínar. Sif keppir ásamt níu öðrum Íslend- ingum á heimsmeistaramótinu í áhalda- fimleikum í Anaheim í Kaliforníu í næsta mánuði. Stökkið kallast Jager, en þá slepp- ir Sif ránni, gerir heljarstökk og grípur aftur í ránna. Það er nýtt í æfingu Sifjar og mun hún nota það á HM. SUND „Við höfum ekki komist á verðlaunapall en árangur liðsins er mjög góður,“ sagði Steindór Gunnarsson, yfirþjálfari íslenska sundlandsliðsins, en það er statt á Heimsmeistaramótinu í sundi í Barcelona á Spáni. „Allir krakkarnir eru að bæta árangur sinn og fjögur ný Íslands- met hafa náðst þannig að það er ómögulegt að vera annað en ánægður með það. Þau eru öll að sýna að þau standast það álag sem fylgir því að taka þátt í risamóti í sundi og það er einnig mjög mikil- vægt.“ Örn Arnarson bætti eigið Ís- landsmet um tæpa sekúndu í 100 metra skriðsundi og Jakob Jóhann Sveinsson bætti einnig eigið met í 200 metra bringusundi. ■ FRÁ HM Í SUNDI Íslensku keppendunum hefur gengið vel í sínum greinum. Íslenska sundlandsliðið stendur sig vel í Barcelona: Fjögur ný Íslandsmet FÓTBOLTI Nýtt leikmannaráð UEFA er skipað öflugu sóknartríói, Spán- verjanum Emilio Butragueño, Frakkanum Jean-Pierre Papin og Ítalanum Gianluca Vialli. Það var sett á leggirnar fyrir atbeina Andy Roxburgh, tæknistjóra UEFA, með það að markmiði að efla framgang knattspyrnunnar. Hann telur mest virði í reynslu þeirra sem lengi hafa staðið í eldlínunni og vitnar í spænskt máltæki því til stuðnings: „Það er ekki það sama að tala um naut og að standa í nautaatshringnum.“ Leikmannirnir fyrrverandi hvetja dómara og aganefndir til að beita þungum viðurlögum við leik- araskap og hafa einnig áhyggjur af fjölgun meiðsla vegna olnboga- skota en bentu á að olnbogaskotin væru oft viðbrögð við peysutogi. Þremenningarnir fögnuðu þeirri ákvörðun UEFA að fækka leikjum í Meistaradeildinni því leikmenn þurfa lengri hvíld eftir erfiða leiki. Þreyta vegna mikils álags getur freistað manna til að reyna leikaraskap. Misnotkun háttvísireglunnar veldur Papin, Vialli og Butragueño áhyggjum. Það eru óskrifuð lög að boltinn er sendur úr leik þegar leikmaður liggur meiddur á vellin- um og að honum er skilað til liðsins sem sendi boltann út af þegar leik- ur hefst að nýju. Samt sem áður „skila“ sum lið boltanum til baka með því að senda hann út fyrir hlið- arlínu við hornfána á vallarhelm- ingi mótherjanna. Síðan pressa þau mótherjana, sem eru skyndilega komnir í varnarstöðu. Þremenning- arnir segja þetta útúrsnúning á háttvísuireglunni og skort á virð- ingu fyrir mótherjum. „Óvirk“ rangstaða er umdeilt atriði sem leikmennirnir ræddu lengi. Þeir segja regluna túlkaða með mismunandi hætti frá einu landi til annars. Í sumum deild- um eru aðstoðardómarar hvattir til að lyfta ekki flagginu fyrr en þeir sjá hver tekur við sending- unni en vafamál er með leik- mann sem er „óvirkur“ í fyrsta hluta sóknarinnar en nýtir sér síðar stöðu sína þegar hann tekur við sendingu fyrir markið e nær frákasti. Leikmennir vilja skýrari skilgreiningar leiðbeiningar í þessum efn sem gilda alls staðar í Evrópu leggja áherslu á að leikmenn almenningur verði upplýstir túlkun á reglunni. ■ BARÁTTA UM BOLTANN Philippe Violeau, leikmaður Lyon, og Cliff Richards, leikmaður Kaizer Chiefs, berjast um boltann í leik félaganna í Friðarbikarkeppnin Suður-Kóreu. Richards rígheldur í treyju Violeau, sem lætur sér fátt um finnast. Skilgreina þarf rang- stöðureglu betur Papin, Vialli og Butragueño skipa leikmannaráð UEFA. Þeir ræddu um háttvísi, „óvirka“ rang stöðu og álag á leikmenn í júníhefti UEFAdirect. FÓTBOLTI „Það verður að meta í hverri sendingu hvort rangstaða sé virk eða ekki,“ sagði Gylfi Þór Orrason knattspyrnudómari þegar hann var beðinn að út- skýra virka og óvirka rangstöðu. Gylfi útskýrir regluna með dæmi: „Leikmaður inni á miðj- um vellinum getur verið rang- stæður þegar boltinn er gefinn upp vinstri kantinn á leikmann sem er ekki rangstæður. Síðan heldur hann áfram með boltann upp kantinn að endamörkum og gefur fyrir á þann sem var upp- haflega rangstæður. Með því að leika boltanum upp að enda- mörkum er hann búinn að upp- hefja rangstöðu hins. Í sjálfu sér er hægt að segja að hann hafi með óbeinum hætti hagnast á því að vera rangstæður en það er bara hver sending sem er metin. Ef hann er ekki talinn hafa haft áhrif á leikinn þegar boltinn var gefinn upp kantinn verður hann ekki rangstæður seinna þegar annar leikmaður er búinn að upphefja rangstöð- una.“ ■ GYLFI ORRASON Dómarar þurfa að meta við hverja sendingu hvort rangstaða leikmanns sé virk eða ekki. Rangstaða: Hver sending metin FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T JÓN ARNAR MAGNÚSSON Jón Arnar Magnússon keppir m.a. í grinda- hlaupi á Meistaramóti Íslands um helgina. Meistaramót Íslands: Flestir þeir bestu keppa FJRÁLSAR ÍÞRÓTTIR 77. Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram á Skallagrímsvelli í Borgar- nesi um helgina. Um 150 keppend- ur eru skráðir til leiks frá 16 fé- lögum og héraðssamböndum. Flest allt besta frjálsíþrótta- fólk landsins tekur þátt í mótinu að þessu sinn m.a. Jón Arnar Magnússon, Þórey Edda Elísdótt- ir, Magnús Aron Hallgrímsson, Sunna Gestsdóttir og Silja Úlfars- dóttir. Jónas Hlynur Hallgrímsson (FH) keppir í átta greinum um helgina, langstökki, stangar- stökki, 110 metra grindahlaupi, hástökki, spjótkasti, þrístökki, kúluvarpi og kringlukasti. Tug- þrautarkappinn Jón Arnar Magn- ússon keppir í 200 metra hlaupi, langstökki, stangarstökki, 110 metra grindahlaupi, spjótkasti og kúluvarpi. Mótið verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Und- ankeppni verður fyrir hádegi, í þeim greinum þar sem þátttaka verður mikil, og úrslitakeppni og undanúrslit í styttri hlaupum eftir hádegi. Með þessu fyrirkomulagi er stefnt að því að bjóða áhorfend- um upp á stutt og skemmtilegt frjálsíþróttamót. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.