Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.07.2003, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 24.07.2003, Qupperneq 13
14 24. júlí 2003 FIMMTUDAG JOSEFA Þessi 26 ára gamli ísbjörn hefur mest að- dráttarafl allra dýra í dýragarðinum í Buen- os Aires. Börnin flykkjast að sundlaug Jos- efas og leika við hann tímunum saman. Segja má að vertíð sé nú hjá Josefa því tveggja vikna frí er nú í skólum landsins. F Æ R Ð U K Ö R F U N A F R Í T T ? Blaðamanni hótað: Eiginkonan myrt INDÓNESÍA, AP Uppreisnarmenn í Aceh-héraði í Indónesíu skutu til bana eiginkonu blaðamanns þegar hann gat ekki greitt þeim vernd- arfé. Blaðamaðurinn, Idrus Jeumpa, og dóttir hans særðust en þau eru ekki talin í lífshættu. Fjórir vopnaðir menn ruddust inn á heimili hans í Aceh-héraði og kröfðu hann um sem nemur um 156.000 íslenskum krónum. Þegar þeim varð ljóst að Jeumpa gat ekki orðið við kröfu þeirra hófu þeir skothríð inni í húsinu. Eigin- kona Jeumpa lést af völdum skot- sára en hann og dóttir voru flutt á sjúkrahús. ■ Íraksstríðið: Enn ráðist á hermenn ÍRAK, AP Bandarískur hermaður íraskur túlkur létust þegar ráð var á bíl sem þeir voru í skam norður af Bagdad. Bíll þeirra ók á heimatilbú sprengju, að sögn talsman bandaríska hersins. Lítið lát vi ist vera á árásum Íraka á ban ríska hermenn. Um helgina fór tveir bandarískir hermenn þe harðlínumenn réðust á bílal hermanna. Íraskur bílstjóri l og þrír særðust þegar skotið va tvo bíla Sameinuðu þjóðanna sunnudag. Að minnsta kosti bandarískir hermenn hafa fari Írak frá 1. maí síðastliðnum. ■ FLUG Lággjaldaflugfélög verða æ vinsælli kostur ferðamannsins, þar sem þjónustan um borð er í lágmarki og aðalatriðið er að kom- ast fljótt og vel milli staða. Það heyrir líka til tíðinda að nú koma konur af öllum stærðum og gerð- um til greina sem flugfreyjur, en lengi vel settu flugfélögin viss skilyrði varðandi aldur og útlit fyrir ráðningu flugfreyja. Í bæklingi Easy Jet, sem fæst um borð í vélunum, eru allar kon- ur, óháð aldri eða útliti, hvattar til að sækja um. „Það er liðin tíð að flugfreyjur þurfti að vera ungar og fallegar, í stærðunum 10-12 og 1,75 m á hæð,“ segir í bæklingn- um. „Við hvetjum konur á miðjum aldri til að reyna sig við flug- freyjustarfið, því við höfum góða reynslu af ráðningu kvenna með þroska og lífsreynslu.“ ■ Olíusamráð: Síminn bíður átekta SAMKEPPNI „Við bíðum átekta og fylgjumst með framvindu máls- ins en það er í rannsókn,“ segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Landssímans, vegna þeirra upp- lýsinga sem fram koma í frum- skýrslu Samkeppnisstofnunar þar sem því er lýst að olíufélögin þrjú hafi sammælast um að mæta ósk um að gera tilboð í elds- neytiskaup fyrirtækisins með því að bjóða þriggja krónu afslátt. Brynjólfur vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið á þessu stigi. ■ BRYNJÓLFUR BJARNASON Fylgjumst með framvindu mála. FLUGFÉLÖG Flugfreyjur þurfa ekki lengur að vera fegurðar- dísir í réttri stærð. Flugfreyjur lágfargjaldaflugfélaga: Venjulegar konur hvattar til að sækja um M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.