Fréttablaðið - 24.07.2003, Page 35

Fréttablaðið - 24.07.2003, Page 35
Páll Steingrímsson kvikmynda-gerðarmaður er önnum kafinn þessa dagana. Svo mikið hefur hann að gera að hann mundi ekk- ert eftir afmælisdegi sínum þegar hann var minntur á hann, „Er það, á ég afmæli, það getur vel pass- að,“ svaraði hann þegar dagurinn var nefndur við hann. „Ætli ég verði ekki að taka á móti fólkinu mínu en konuna fæ ég ekki því Rúrí mín er í Feneyjum.“ Páll er þessa dagana að vinna að kvikmynd um hálendi Íslands, Vatnajökul og Vatnajökulsþjóð- garð með Magnúsi Magnússyni. Hann segir hann væntanlegan til landsins innan fárra daga til að halda áfram að vinna við myndina en hann er textahöfundur því hún er gerð á ensku. „Ég má ekkert vera að því að hugsa um annað en kvikmyndir því ég er einnig að vinna að mynd í samvinnu við Dani um vatn og líf,“ segir hann. Páll er þó ákveðinn í að kalla á börn og stjúpbörn í kaffi og slaka á með fjölskyldunni. Hann er þó ekki með það á hreinu hve gamall hann er en segist vera eins og ný- kominn úr kassanum og vakna brosandi. „Mér finnst ég alltaf jafn nýr og ef eitthvað er þá er aldurinn til bóta. Ég hef lítið fyrir því að læra sex, sjö erinda ljóð nú og fer létt með það en það gat ég ekki þegar ég var yngri,“ segir Páll og bætir við að helst sé að hann sé ekki jafn fljótur að hlaupa. „Ann- ars vil ég helst muna eftir afmæl- isdögum á tíu ára fresti og gera það grand. Það geri ég næst þegar ég verð áttræður.“ Páll notar frítíma sinn til að lesa og er mest hrifinn af ljóðum, Lax- ness og Íslendingasögunum. „ er mjög seinþroska og fór ekk nám í kvikmyndagerð fyrr en var orðinn 43 ára. Síðan hef ég v ið svo ótrúlega heppinn að fá gera kvikmyndir og það er þ vegna sem ég vakna alltaf br andi á morgnana,“ segir Páll. ■ 36 24. júlí 2003 FIMMTUDAG Af hverju eru engin tívolí í Norður-Kóreu? -Það er enginn nógu stór til að fara í bestu leiktækin. Pondus eftir Frode Øver Fréttiraf fólki Með súrmjólkinni Afmæli PÁLL STEINGRÍMSSON ■ kvikmyndagerðarmaður er kominn yfir sjötugt. Hann segir að ef eitthvað sé braggist hann með aldrinum, enda vakni hann alltaf brosandi. www.saevarkarl.is ÚTSALA Í NOKKRA DAGA Sævar Karl Bankastræti Ættleiðingar kínverskra barnahingað til lands eru aftur komnar á fullan skrið eftir að hlé var á gert vegna hins skæða lungnabólgufaraldurs sem geisaði í Kína í vor. Var þá hætt við ferð sem skipulögð hafði verið af Ís- lenskri ættleiðingu og lengdist þar með bið margra verðandi for- eldra sem lengi höfðu beðið þess að komast til fundar við börn sín til framtíðar. Hópur Íslendinga er nú ytra og fleiri á leiðinni þegar kallið kemur. „Ég býst við að fara út þegar þessi hópur sem nú er úti kemur heim. Vonandi verður þetta allt orðið klárt fyrir jól,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingiskona, sem afráðið hefur að ættleiða barn frá Kína. „Þetta er langt ferli og vissulega setti lungnabólgufar- aldurinn strik í reikninginn.“ Þórunn er barnlaus og ógift og í sjálfu sér ekki mjög langt síðan hún ákvað að ættleiða barn: „Ég myndi ekki segja að þetta væ gamall draumur. Frekar nýr,“ s ir Þórunn. ■ Blaðamenn hins breska dag-blaðs Sunday Times eru nú að leggja lokaútgáfu á úttekt sína á hjónabandi herra Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorrit Moussaieff. Helst hafa þeir áhuga á því að vita hvort Dorrit komi til með að greiða skatta hér heima eða í Bretlandi. Þeir telja mikinn missi að Dorrit en eru ánægðir með for- dómaleysi Íslendinga þar sem meirihluti þjóðarinnar setji ekkert spurningarmerki við trúarbrögð Dorritar, en hún er gyðingur. Það féllu tár af hvörmum áKeflavíkurflugvelli á dögun- um þegar tólf gæðingar héldu utan með Icelandair Cargo á Heimsmeistaramót íslenskra hesta sem hefst í Herning í Dan- mörku í næstu viku. Aðstandend- ur hrossana vissu sem var að hestarnir eiga ekki afturkvæmt í heimahagana á ný. Andstætt mönnunum kemst hross sem eitt sinn fer út ekki heim aftur. Vel var búið um hrossin í flug- vélinni sem flutti þau. Þau voru höfð í sérgerðum gámum og ís- lenskt hey haft með í stórum skömmtum því ekki má treysta erlendu fóðri þegar mikið er lagt undir eins og á Heimsmeistara- mótinu. Flogið var til Billund á Jótlandi og komust öll hrossin þangað heil á húfi. Heimsmeistaramótið hefst næstkomandi þriðjudag og er bú- ist við 30 þúsund gestum víða að úr veröldinni. ■ Hæ, Bríet! Þetta er Jói...manstu eftir mér? Ég vildi bara...rosalegir skruðningar eru þetta á línunni hjá þér... halló... hallóóóó... ■ Andlát Halldór Hansen, fyrrverandi yfirlæknir, Laufásvegi 24, lést 21. júlí. María Guðmundsdóttir, Árskógum 8, Reykjavík, lést 21. júlí. Einar Gunnar Óskarsson, Álfheimum 6, lést 20. júlí. Pétur Sigurðarson, frá Hellissandi, lést 20. júlí. Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Bleikargróf 7, Reykjavík, lést 20. júlí. Jakob Árnason, Tunguvegi 18, Reykja- vík, lést 19. júlí. Þórunn Þorgeirsdóttir, Flókagötu 64, Reykjavík, lést 10. júlí. Útförin hefur farið fram. ■ Jarðarfarir 13.30 Hulda Jóhannesdóttir, Laufvangi 12, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju. SÍÐUSTU DAGAR Allar útsöluvörur Laugavegi 53 S: 552 3737 Kínversku börnin á leiðinni Ættleiðingar ■ Ættleiðingar á kínverskum börnum hingað til lands eru aftur komnar á fullan skrið eftir hlé sem á var gert vegna hins skæða lungnabólgufaraldurs sem geisaði ytra. Alþingiskona er meðal þeirra sem bíða eftir barni. ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR Nýr draumur um barn frekar en gamall. PÁLL STEINGRÍMSSON Hann er sjötíu og þriggja ára í dag og finnur ekki fyrir aldri. Helst að hann sé seinni a hlaupa. ...nýkominn úr kassanum Halló? Heimsmeistaramót ■ Íslensku hestarnir sem keppa munu á Heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Herning í Danmörku eru flognir frá Kefla- vík til Billund. Mótið hefst á þriðjudaginn og stendur í viku. BÚIST TIL BROTTFARAR Skörungur var skörungslegur á Keflavíkur- flugvelli þegar hann var búinn undir ferð- ina til Billund ásamt ellefu félögum sínum sömu tegundar. Út – og aldrei heim aftur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.