Fréttablaðið - 06.08.2003, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 14
Leikhús 14
Myndlist 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 16
MIÐVIKUDAGUR
6. ágúst 2003 – 179. tölublað – 3. árgangur
AFSLÁTTARKJÖR
TRYGGINGAR-
FÉLAGA
Tryggingafélög innan
Sambands íslenskra tryg-
gingafélaga veittu hvort
öðru upplýsingar um
bónusafslætti ökutækja-
trygginga viðskiptavina sinna. Þetta kemur
fram í frumskýrslu Samkeppnisstofnunar
um meint samráð tryggingafélaganna. Sjá
bls. 2
ÞRÝST Á VERÐ SJÁVARAFURÐA
Líklegt er talið að verð sjávarafurða fari
lækkandi vegna aukins framboðs og sam-
keppni. Krónan er líkleg til að styrkjast og
framlegð útgerðarfyrirtækjanna dregst sam-
an. Auknar aflaheimildir auka framboð og
geta leitt til verðlækkunar. Sjá bls. 4
SVER AF SÉR ÁVIRÐINGAR SAM-
KEPPNISSTOFNUNAR Sigmar
Ármannsson, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra tryggingafélaga,fullyrðir að sú
vinna sem hafi átt sér stað innan sam-
bandsins sé í fullu samræmi við það sem
erlend systursambönd sambandsins hafi
haft með höndum, sem og önnur hags-
munasamtök á Íslandi. Sjá bls. 2
ÍRAKAR GRÓFU ÞOTURNAR Banda-
rískir hermann fundu fjölmargar herþotur
sem Írakar höfðu grafið í eyðimörkinni
norður af Bagdad. CIA segir stutt í upplýs-
ingar um gereyðingavopn Íraka. Sjá bls. 6
Eigandi Chelsea
Roman Abramovich:
▲
SÍÐA 12
Býður himin-
háar upphæðir
Johnny Depp þykir vandlátur á hlutverk
Pirates of the Carribean:
▲
SÍÐA 14
Bölvaðar
beinagrindur
KERTAFLEYTING Á TJÖRNINNI
Íslenskar friðarhreyfingar standa að
kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn í kvöld. At-
höfnin er í minningu fórnarlamba kjarn-
orkuárásanna á japönsku borgirnar
Hírósíma og Nagasakí 6. og 9. ágúst 1945,
um leið og kröfunni um kjarnorkuvopna-
lausan heim er haldið á loft.
DAGURINN Í DAG
VÍSINDI Rannsóknarstofnun fiskiðn-
aðarins vinnur nú að álitsgerð fyr-
ir íslenska söluaðila og framleið-
enda eldislax vegna bandarískrar
skýrslu sem varar við neyslu á eld-
islaxi. Skýrslan hlaut heimsat-
hygli, en hún var unnin á vegum
umhverfissamtakanna Environ-
mental Working Group.
Stofnunin telur að höfundar
skýrslunnar hafi farið út fyrir
ramma vísindanna og að ýmsar
ályktanir þeirra standist ekki. Í
skýrslunni er fólki ráðlagt að
borða ekki eldislax oftar en einu
sinni í mánuði.
Skýrslan greindi frá því að
magn eiturefnisins PCB í eldislaxi,
þar á meðal íslenskum, væri yfir
mörkum umhverfisstofnunar
Bandaríkjanna. PCB er þrávirkt
lífrænt efni sem safnast fyrir eftir
því sem ofar dregur í fæðukeðj-
unni og er talið valda krabbameini.
Höfundar skýrslunnar telja mun-
inn á PCB magni eldislaxins skýr-
ast af fóðri eldislaxins, sem er upp-
sjávarfiskur á borð við loðnu og
kolmunna.
Skýrsluhöfundar báru saman
PCB-viðmið sem notuð eru af
bandarísku umhverfisstofnuninni
fyrir einstök veiðivötn og ná yfir
villtan lax, og viðmið bandaríska
matvæla og lyfjaeftirlitsins, sem
ná yfir eldislax. Mæltu þeir með
því að viðmið villta laxins giltu ein-
nig um eldislax.
Guðjón Atli Auðunsson, efna-
fræðingur hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, gagnrýnir rann-
sóknina harðlega.
„Mér mislíkar stórlega allur
umbúnaðurinn og túlkunin. Þetta
eru ekki vísindamenn sem eru
vandir að virðingu sinni. Þeir nota
rannsóknina í þeim tilgangi að
breyta markaðsstöðu og vekja ótta
í brjósti fólks. Þeir útlista mögu-
lega hættu, en ekki þann vafa sem
er tengdur þessum rannsóknum.“
Í skýrslunni er hvatt til þess að
borðaður sé villtur lax frá Alaska,
í stað eldislax. Rannsakaðir voru
tíu eldislaxar, þar á meðal einn ís-
lenskur, og voru þeir bornir sam-
an við eldri niðurstöður úr rann-
sókn á fimm villtum löxum.
Guðjón Atli segir vísindamenn-
ina byggja niðurstöðu sína á veik-
um grunni. Hann gagnrýnir meðal
annars að vísindamennirnir hafi
leyft sér að draga umfangsmiklar
ályktanir út frá mjög takmörkuð-
um gögnum, og lýst eldislaxi ein-
hliða. „Það er ekki í verkahring
umhverfissamtaka að gefa mann-
eldisráð, heldur bandaríska mat-
væla- og lyfjaeftirlitsins. Íslenski
eldislaxinn er sextugfalt undir
PCB-mörkum bandaríska mat-
væla- og lyfjaeftirlitsins. Að öllu
samanteknu eru kostir þess að
borða eldislax mun meiri en ókost-
irnir.“
jtr@frettabladid.is
Bandarískir vísindamenn:
Ósonlagið
að styrkjast
VÍSINDI Bandarískir vísindamenn
segjast hafa sannanir fyrir því
að ósonlagið fyrir ofan Suður-
heimskautslandið sé að styrkj-
ast,
Þetta er í fyrsta sinn sem slík-
ar sannanir finnast. Hraðinn á
eyðingu ósonlagsins hefur
minnkað um 8% á undanförnum
tveimur áratugum, sem er mun
meira en búist var við. Talið er
að eyðingin muni stöðvast að
fullu á næstu árum. Gatið sjálft
yfir Suðurheimskautslandinu
jafnar sig aftur á móti ekki fyrr
en eftir að minnsta kosti 50 ár.
Bann við notkun ósoneyðandi
efna var sett á árið 1987. ■
FERÐALÖG Mikil hitabylgja gengur
nú yfir Spán og hefur hitinn í
Sevilla slagað upp í 50 gráður
undanfarið. Hitabylgjan hefur
kostað þrettán manns lífið á síð-
astliðnum sjö dögum. Flestir
þeirra þjáðust af öndunarfæra-
og hjartasjúkdómum sem tóku
sig upp vegna hitans.
Guðmundur Sveinsson, farar-
stjóri Heimsferða á Costa del Sol,
segir hitann inn til landsins
óbærilegan. Tæplega 500 Íslend-
ingar dveljast nú á Costa del Sol,
sunnan við Sevilla. „Við ráðleggj-
um fólki að fara ekki til Sevilla
um stundarsakir vegna veðurs-
ins.“ Að sögn Guðmundar hefur
hann fengið fjölda símtala frá
fólki sem endurskoðar fyrirhug-
aða Spánarferð vegna hitans.
„Fólk ætti að hafa áhyggjur, held-
ur halda sig við sjóinn, þar sem
hitinn er þó ekki meiri en 35
gráður. Inni í landi hreyfir ekki
vind, en hafið bjargar okkur
hérna.“
Almenningur á Spáni, einkum
börn og gamalmenni, hefur verið
hvattur til að drekka mikið vatn,
klæðast víðum fötum og forðast
líkamlega áreynslu utandyra. ■
Hitinn á Spáni nálgast 50 gráður:
Fólk forðist Sevillaferðir
HITABYLGJA Á SPÁNI Íbúar borgarinnar Cordoba í Andalúsíu á suður Spáni hafa þurft að þola gríðarmikinn hita undanfarna daga.
Hitinn hefur farið vel yfir 40 gráður og hafa sumir gripið til þess ráðs að kæla sig niður í gosbrunnum borgarinnar.
Mislíkar stórlega
túlkun vísindamanna
AP
/M
YN
D
VEÐRIÐ Í DAG
GÓÐVIÐRI ÁFRAM Hægviðri og
hlýindi einkenna veðurlagið og sú gula
sýnir sig annað slagið, mest á Vestfjörð-
um. Í dag og fram eftir morgundeginum
verður þurrt.
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins gagnrýnir harðlega bandaríska skýrslu sem segir neyslu
eldislax hættulega. Skýrsluhöfundar rannsökuðu tíu laxa, þar af einn íslenskan.
GUÐMUNDUR SVEINSSON
Fararstjóri Heimsferða á Costa del Sol
ráðleggur íslenskum ferðamönnum að
fara ekki til Sevilla á meðan hitabylgja
ríður þar yfir.
Benazir Bhutto:
Dæmd
fyrir pen-
ingaþvætti
SVISS, AP Dómastólar í Sviss hafa
fundið Benazir Bhutto, fyrrum
forsætisráðherra Pakistan, og
eiginmann hennar Asif Zardari,
sek um peningaþvætti. Hjónin
voru dæmd í sex mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og þeim gert að
greiða sem svarar yfir 160 millj-
ónum íslenskra króna til pakist-
anska ríkisins, að því er framkem-
ur á fréttavef BBC. ■
Kyssir samstarfsfólkið bless
Þorsteinn J. Vilhjálmsson:
▲
SÍÐA 22
Sagt upp
störfum