Fréttablaðið - 06.08.2003, Side 4
4 6. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
Hvert fórstu um
Verslunarmannahelgina?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig fannst þér bréfið
frá Árna Johnsen?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
7,4%
2,2%
Galtalæk
40,9%Var í höfuðborginni
42,4%Annað
Akureyri
3,7%Vestmanneyja
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Viðskipti
■ Lögreglufréttir
Viljayfirlýsing undirrituð:
Bretar vilja kaupa Altech
VIÐSKIPTI Íslenskir og erlendir aðil-
ar hafa undirritað viljayfirlýsingu
um aðkomu að fyrirtækinu Altech,
sem hannar búnað til framleiðslu á
áli. Altech sagði upp nánast öllu
starfsfólki sínu í síðasta mánuði
vegna fjárhagserfiðleika, en nú
vinnur fyrirtækið að skuldbreyt-
ingu hjá Landsbanka Íslands.
Hugmyndin er að bresk-rúss-
neski álframleiðandinn Transal
eignist verulegan hluta fyrirtækis-
ins úr höndum Jóns Hjaltalíns
Magnússonar, forstjóra fyrirtæk-
isins, sem nú á 90 prósenta hlut.
Fyrirhugaðir íslenskir kaupendur
eru ekki gefnir upp að svo stöddu.
Jón Hjaltalín kveðst reikna með
að gengið verði frá lausum endum
um miðjan mánuðinn. „Við stefn-
um að því að halda sama fjölda
starfsfólks, enda eru mörg verk-
efni í farvatninu.“
Altech hannar búnað til fram-
leiðslu á áli og flytur út 90 prósent
framleiðslu sinnar. Meðal þess
sem Altech undirbýr er sala til fyr-
irhugaðs álvers Alcoa á Reyðar-
firði. Þá er Altech aðili að Atl-
antsáli, sem er undirbúningsfélag
um byggingu 90 þúsunda tonna ál-
vers við Húsavík í meirihlutaeign
Transal.
Að sögn Jóns stendur eftir að
útvega rafmagn fyrir Húsavíkur-
álverið, en stefnt er á notkun jarð-
orku. Auk þess ræður afstaða yfir-
valda um veitingu starfsleyfis úr-
slitum. ■
Þrýst á verð
sjávarafurða
SJÁVARÚTVEGUR Ytri skilyrði í
rekstri sjávarútvegsfyrirtækja
fara versnandi og framlegð þeirra
lækkar. Styrking krónunnar hefur
haft neikvæði áhrif á rekstur
þeirra. Árið 2001
var afar gott ár í
rekstri sjávarút-
vegsfyrirtækja .
Krónan var sterk
og verð afurða í er-
lendum myntum
hátt. Framlegð fyr-
irtækjanna var
þegar best lét allt
að 35 prósent af
rekstrartekjum fyrirtækjanna. Í
sex mánaða uppgjöri Brims, sjáv-
arútvegsstoðar Eimskipafélags-
ins er framlegðin komin niður í
tæp sextán prósent.
Í morgunkorni greiningar-
deildar Íslandsbanka er bent á
fleiri blikur á lofti í rekstri sjáv-
arútvegsins. Þar er bent á að verð
sjávarafurða hafi verið að gefa
eftir. Nýjasta mæling verðvísitölu
sjávarafurða lækkað um 1,6 pró-
sent í SDR frá því í maí. Meðal-
verð á fyrri helmingi ársins er þó
1,8 prósentum hærra í ár en í
fyrra.
Greiningardeild Íslandsbanka
gerir ekki ráð fyrir því að verð
hækki á næstunni í erlendri mynt
og telur þrýsting vera til lækkun-
ar. Ástæður þessar eru mikil sam-
keppni við aðra matvöru svo sem
eldisafurðir og almennur hæga-
gangur í efnahagslífi helstu við-
skiptalanda okkar.
Sérfræðingar telja að til
skamms tíma sé umhverfi sjávar-
útvegs með lakara móti. Á móti er
á það bent að auknar aflaheimild-
ir og betra ástand lífríkis hafsins
auki mönnum bjartsýni til lengri
tíma. Að mati greiningar Íslands-
banka má þó vænta þess að auk-
inn afli þrýsti verði afurða niður.
Afkoma sjávarútvegsfyrir-
tækja er almennt lökust á þriðja
ársfjórðungi. Neysla sjávarfangs
er minni en í skammdeginu. Á
móti kemur að gengi krónunnar
gefur eftir að sumrinu. Sérfræð-
ingar búast við því að krónan
muni halda áfram að styrkjast og
bitna á framlegð sjávarútvegsins
meðan innstreymi gjaldeyris
vegna byggingar álvers og virkj-
unar stendur yfir.
haflidi@frettabladid.is
INNBROT Í KÓPAVOGI Brotist var
inn í tvö fyrirtæki í Kópavogi um
helgina. Að sögn lögreglunnar
var meira um skemmdarverk að
ræða í öðru tilvikinu en í hinu
var brotist inn í vinnuskúr.
Í VÍMU Á HAFNARFJARÐARVEGI
Tilkynnt var um sofandi öku-
mann í bifreið sinni við Hafnar-
fjarðarveg á mánudagsmorgun.
Maðurinn var færður í vörslu
lögreglunnar vegna gruns um
neyslu fíkniefna en við leit í bif-
reiðinni fannst eitthvað magn
meintra kanabisefna.
FJÖGUR INNBROT Tilkynnt hefur
verið um fjögur innbrot í Hafnar-
firði eftir helgina. Brotist var inn
í tvö íbúðarhús, nýbyggingu og
fyrirtæki. Litlu sem engu var
stolið úr íbúðarhúsunum en tölvu
og verkfærum úr fyrirtækinu.
FÍKNIEFNI Í GALTALÆK Þrjú fíkni-
efnamál komu til kasta lögregl-
unnar á bindindishátíðinni í
Galtalæk. Lögreglan á Hvolsvelli
sagði mikinn eril hafa verið um
helgina enda þrjár hátíðir í
þeirra umdæmi. Þegar mest var
voru tólf lögreglumenn á vakt.
GRUNAÐUR UM ÖLVUN Fjórir
árekstrar voru í umdæmi
lögreglunnar á Hvolsvelli um
helgina. Tvær bílveltur voru auk
tveggja árekstra. Í annarri bíl-
veltunni leikur grunur á ölvun.
Ekki urðu mikil meiðsl á fólki.
SOFNAÐI UNDIR STÝRI Bíll fór út
af í Svínahrauni þegar ökumaður-
inn sofnaði undir stýri. Bílnum
var ekið út af þar sem hann fór
áfram 90 metra en ökuferðin end-
aði í gjótu sem var 8 til 10 metra
djúp. Ökumaðurinn slapp vel en
hann var fluttur á slysadeild til
aðhlynningar.
MIKLU STOLIÐ Tilkynnt var um
innbrot í heimahúsi á Selfossi eft-
ir verslunarmannahelgina. Tölu-
vert miklu af verðmætum var
stolið svo sem skartgripum, tölvu
og víni. Málið er í rannsókn lög-
reglunnar á Selfossi.
SÉÐ ÚR ÞYRLUNNI
Myndin var tekin er TF-LIF kom að
Akureynni aðfaranótt þriðjudags.
TF-LIF sækir sjómann:
Slasaður
á auga
LANDHELGISGÆSLAN Skipverji á Ak-
ureynni EA-110 slasaðist illa á
auga aðfaranótt þriðjudags. Eftir
að skipverjar höfðu rætt við lækni
þyrlu Landhelgisgæslunnar, og
búið var að ráðfæra sig við augn-
lækni, var ákveðið að halda á TF-
LIF til móts við skipið. Sjúklingur-
inn var hífður upp í björgunar-
lykkju með sigmanni þyrlunnar og
ákveðið að lenda á Reykjavíkur-
flugvelli þar sem sjúkrabíll beið.
Maðurinn var fluttur á Landspítal-
ann við Hringbraut og er líðan
hans ágæt. ■
Arabaríki funda:
Viður-
kenna ekki
Íraksstjórn
KAÍRÓ, AP Samtök Arabaríkja eru
ekki tilbúin að viðurkenna bráða-
birgðastjórnina í Írak og vilja
bíða þess að lýðræðislega kjörin
stjórn taki við völdum í landinu.
Að loknum fundi utanríkisráð-
herra Arabaríkja í Kaíró í Egypta-
landi sagði Amr Moussa, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, að
bráðabirgðarstjórnin væri aðeins
fyrsta skrefið og hlutverk hennar
væri að ryðja brautina fyrir lýð-
ræðislega kjörna ríkisstjórn.
Bráðabirgðarstjórnin í Írak sendi
ekki fulltrúa á fundinn. ■
SVEITARSTJÓRNARMÁL Félagsmála-
ráðuneytið hefur úrskurðað að
bæjarráði Vestmannaeyja hafi
verið óheimilt að kjósa varamenn
fyrir aðalfulltrúa í bæjarráði.
Varamenn skuli einfaldlega vera
þeir sem næstir aðalmönnum
komu á framboðslista.
Klofningur kom upp innan raða
framsóknarmanna eftir að eini
bæjarfulltrúi þeirra, Andrés Sig-
mundsson, sleit meirihlutasam-
starfi við Sjálfstæðisflokk í mars.
Andrés myndaði meirihluta með
Samfylkingunni en næstu menn á
framboðslistanum studdu hann
ekki í þeirri ákvörðun.
Til að tryggja meirihlutann í
sessi var því brugðið á það ráð í
lok júní að efna til sérstakrar at-
kvæðagreiðslu í bæjarráðinu um
skipan varamanna. Þá var Stefán
Jónasson valinn sem varamaður
Andrésar.
Guðríður Ásta Halldórsdóttir
var annar maður á framboðslista
Framsóknarflokks og óháðra í
sveitarstjórnarkosningunum í
fyrra vor. Guðríður, sem er and-
stæðingur Andrésar, sætti sig
ekki við kosningu annars vara-
manns í sinn stað. Hún kærði til
félagsmálaráðuneytis sem komst
að fyrrgreindri niðurstöðu. ■
ALTECH
Vonast er til að endurfjármögnun um
miðjan mánuðinn geri fyrirtækinu kleift að
halda sama fjölda starfsfólks.
UNNIÐ AÐ YFIRTÖKU Fjárfesting-
arfélagið Straumur vinnur nú að
yfirtöku Framtaks. Stærsti eig-
andi utan Straums er Norvik sem
er í eigu Jóns Helga Guðmunds-
sonar í Byko.
HAGNAÐUR HJÁ FRAMTAKI Fjár-
festingarbankinn Framtak skilaði
176 milljón króna hagnaði fyrstu
sex mánuði ársins. Skráð hluta-
bréf Framtaks hækkuðu um 14%,
en vísitala aðallista Kauphallar
hækkaði um 11% á sama tíma.
KEYPT Í FLUGLEIÐUM Ovalla Tra-
ding, sem er í eigu Bónusfjöl-
skyldunnar, keypti hlut í Flug-
leiðum að nafnvirði 3,6 milljónir
á genginu 4,4. Eftir kaupin er
eign Ovalla Trading rúmar 110
milljónir króna að nafnvirði.
Félagsmálaráðuneytið segir framboðslista í Vestmannaeyjum ráða:
Bæjarráð mátti ekki
kjósa varamenn
VESTMANNAEYJAR
Framsóknarmaðurinn Andrés Sigmundsson þarf að sætta sig við að fá varamann sem er
andvígur samtarfi Andrésar við Samfylkinguna um stjórn Vestmannaeyjabæjar.
Líklegt er talið að verð sjávarafurða fari lækkandi vegna aukins
framboðs og samkeppni. Krónan er líkleg til að styrkjast. Auknar
aflaheimildir auka framboð og geta leitt til verðlækkunar.
FISKVERÐ LÆKKAR
Talið er líklegt að fiskverð muni lækka í erlendri mynt. Verðið hefur haldist
nokkuð hátt um skeið.
■
Greiningardeild
Íslandsbanka
gerir ekki ráð
fyrir því að verð
hækki á næst-
unni í erlendri
mynt og telur
þrýsting vera
til lækkunar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M