Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.08.2003, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 06.08.2003, Qupperneq 8
6. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR WASHINGTON, AP Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, og nánasti aðstoðarmaður hans, Ric- hard L. Armitage, ætla báðir að láta af embætti eftir næstu for- setakosningar í Bandaríkjunum, hvort sem George W. Bush forseti nær endurkjöri eða ekki. Þetta fullyrðir bandaríska dagblaðið Washington Post. Blaðið segir að Armitage hafi skýrt Condolezzu Rice, öryggis- ráðgjafa forsetans, frá þessu ný- verið. Samkvæmt blaðinu mun ákvörðun Powells um að hætta, tengjast loforði sem hann gaf eig- inkonu sinni. Ágreiningur við for- setann eða aðra í stjórninni hafi ekkert með þetta að gera. Talsmaður bandaríska utanrík- isráðuneytisins þvertók fyrir í gær að nokkuð væri hæft í þessu. ■ Óheimilt að nýta tap Stjörnubíós Skífunni var óheimilt að nýta 46 milljóna króna tap Stjörnubíós til að lækka eigin skatta að áliti skattrannsóknarstjóra. Endurskoðendur félag- anna óska eftir því að umbeðinni samsköttun félaganna verði frestað. SKATTAR Skattrannsóknarstjóri segir að Skífunni hafi verið óheimilt að nýta tap Stjörnubíós til að lækka eigin skattstofn. Eigendaskipti á Stjörnubíó ehf. voru tilkynnt Hlutafélagaskrá í mars 2000. Kaupanda var ekki getið en fjórir menn tengdir Norð- urljósum voru skráðir stjórnar- menn í október það ár. Skífan og Stjörnubíó voru samsköttuð fyr- ir tekjuárið 2001. Í skatt- framtali Skíf- unnar var færð nærri 46 millj- óna króna lækk- un vegna taps hjá Stjörnubíói allt aftur til árs- ins 1994. Félög verða að hafa átt önnur félög í a.m.k. eitt heilt reikningsár áður en sam- sköttun er heimil. Skattrannsókn- arstjóri segir að svo hafi ekki ver- ið um Skífuna og Stjörnubíó á ár- inu 2001. Það hafi verið Norður- ljós fasteignafélag sem á árinu 2000 eignaðist Stjörnubíó með 125 milljónum króna lánsfé frá Skíf- unni. Skífan hafi ekki eignast Stjörnubíó fyrr en á árinu 2001 og því ekki uppfyllt skilyrði um lág- markstíma á eignarhaldi. Skattrannsóknarstjóri segir að jafnvel þó Skífan hefði átt Stjörnubíó í tilskilinn tíma fyrir samsköttun félaganna, væri hún ekki heimil þar sem rekstur Stjörnubíós ehf. hefði gerbreyst eftir söluna í mars 2000. Kvik- myndahúsarekstri hefði verið hætt en í staðinn tekinn upp út- leiga atvinnuhúsnæðis. Þar með væri brostinn grundvöllur fyrir nýtingu yfirfæranlegs taps. Þess má geta að í ársreikningi Stjörnubíós fyrir árið 2000 var fé- lagið sagt vera að fullu í eigu Norðurljósa fasteignafélags. Í ársreikningi Norðurljósa var hins vegar ekkert minnst á Stjörnubíó ehf. Tveir endurskoðendur félags- ins sögðu það hafa verið vegna mistaka. Sömu menn gerðu reynd- ar einnig ársreikninginn fyrir Stjörnubíó. Endurskoðendurnir upplýstu við skýrslutökur í júní síðastliðn- um að Stjörnubíó hefði verið talin eign Norðurljósa fasteignafélags á árinu 2000 vegna skilmála lánar- drottna sem bönnuðu Skífunni slíkar fjárfestingar. Þeir hafi ver- ið í góðri trú við gerð ársreikninga og skattaframtala. Daginn eftir að síðari endur- skoðandinn gaf skýrslu, 24. júní síðastliðinn, óskuðu endurskoð- endurnir eftir því við skattstjór- ann í Reykjavík að samsköttun Skífunnar og Stjörnubíós yrði frestað þar sem í ljós hafi komið að ekki væri „ótvírætt“ að skilyrði um lágmarkstíma á eignarhaldi væri uppfyllt. gar@frettabladid.is Við erum komin í sumarskap! Sumarið er komið og starfsfólk Snælands vídeós er í sólskinsskapi og afgreiðir með brosi á vör úrval gómsætra ísrétta. -réttur fyrir þig 0pið alla daga frá kl.10-23.30 DETROIT, AP Dómari krafðist 50.000 Bandaríkjadala tryggingar vegna lausnar þýsks gamalmennis úr fangelsi en maðurinn er grunaður um hlutdeild að gyðingamorðum í síðari heimsstyrjöldinni. Lögregla í Detroit í Bandaríkjunum hand- tók manninn, Johann Leprich, 77 ára á heimili hans fyrir mánuði og hefur haft hann í haldi síðan. Leprich hefur verið á flótta frá því árið 1987 þegar dvalarleyfi hans í Bandaríkjunum var aftur- kallað. Í ljós kom að þegar Leprich fékk dvalarleyfi í Banda- ríkjunum árið 1958, leyndi hann því að hafa þjónað sem fangavörð- ur úr útrýmingarbúðum nasista. Samkvæmt bandarískum lögum er bannað að veita slíkum mönn- um dvalarleyfi. Leprich verður vísað úr landi á næstunni. ■ POWELL OG BUSH Utanríkisráðherrann og forsetinn á leiðtogafundi í Nígeríu nýverið. Colin Powell, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna: Sagður ætla að hætta AP /C H AR LE S D H AR AP AK LEYNDI UPPRUNA SÍNUM Johann Leprich, Þjóðverji á áttræðis- aldri, leyndi bandarísk yfirvöld því í áratugi að hann hefði starfað í ein- um af fjölmörgum útrýmingarbúðum nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Leprich hefur verið handtekinn og verður vísað úr landi. Fyrrum nasisti handtekinn: Var á flótta í 16 ár „Stjörnubíó hefði verið talin eign Norðurljósa fasteignafé- lags á árinu 2000 vegna skilmála lán- ardrottna sem bönnuðu Skíf- unni slíkar fjárfestingar. STJÖRNUBÍÓ Stjörnubíó var jafnað við jörðu í fyrra og reiturinn seldur Reykjavíkurborg fyrir 140 milljón- ir króna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.