Fréttablaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Íþróttir 16 Sjónvarp 22 LAUGARDAGUR 16. ágúst 2003 – 192. tölublað – 3. árgangur RÍKISLÖGREGLU- STJÓRI TAKI FRUM- KVÆÐI Kristinn H. Gunnarsson ásakar lög- reglu og ákæruvald fyrir að taka ekki frumkvæði í sakarannsókn á olíumál- inu. Ríkislögreglustjóri segir ummæli Kristins frá- leit. Sjá síðu 2 RAFMAGNSLEYSI Rafmagn fór af sex borgum í Bandaríkjunum og Kanada í fyrra- kvöld. Enn var víða rafmagnslaust í gær og mögulegt að rafmagn komist ekki aftur á fyrr en eftir helgi. Sjá síðu 4 SUÐURNESJAMENN ÁNÆÐIR Ánægja ríkir á Suðurnesjum með afturköllun fyrirmæla um að þotur varnarliðsins fari. For- maður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur telur nauðsynlegt að taka atvinnumál á Suðurnesjum til skoðunar. Sjá síðu 6 STÆRRI SINFÓNÍA Á sama tíma og flestir fjárhagslegir bakhjarlar Sinfóníunnar vilja losna undan ábyrgð á hljómsveitinni liggur fyrir að rekstrakostnaður mun aukast verulega við flutning í nýtt tónlist- arhús. Sjá síðu 14 MENNINGARNÓTT Þórólfur Árnason borgarstjóri setur Menningarnótt í Reykja- vík klukkan 13.00. Um það bil 200 atriði eru á dagskrá Menningarnætur og er búist við um hundrað þúsund gestum. Menning- arnótt lýkur með flugeldasýningu á Hafnar- bakkanum klukkan 23.00. Sjá nánar: DAGURINN Í DAG ALLT Á FULLU keppst er við að ger amiðborgina klár fyrir Reykjavíkurmaraþonið og Menningarnóttina. Myndin er tekin við lok framkvæmda á mótum Bankastrætis, Austurstrætis og Lækjargötu. Fjölbreytt dagskrá verður í allan dag. Nánar má lesa um Menningarnóttina á bls 12 og 13. Peningunum ekki varið á besta hátt Ágúst Mogensen, framkvæmdarstjóri rannsóknarnefndar umferðaslysa, segir að nær hefði verið að verja peningum, sem fara í tvöföldun Reykjanesbrautar, til að gera fleiri fjölfarna vegi örugg- ari og það myndi fækka framanákeyrslum verulega. Óli H. Þórðarson er þessu ekki sammála. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M VEÐRIÐ Í DAG MENNINGARNÓTT Í GÓÐU VEÐRI Hægviðri og minnkandi úrkoma sunnantil þegar á daginn líður. Nokkuð bjart á Aust- urlandi. Hiti 10-18 stig. Sjá síðu 6 fékk draumastarfið Sif Gunnarsdóttir: Ein af þessum súperheppnu hefur ekki tölu á plötunum Samúel J. Samúelsson: Frá Duran yfir í Miles kemur fram á Grettishátíð Ólafur Kjartan Sigurðarson: ▲ SÍÐA 30 ▲ SÍÐA 34 ▲ SÍÐA 19 Tenórar liggja vel við höggi skemmtir sér á sumrin Þóra Karítas Árnadóttir: ▲ SÍÐA 32 Dansandi fram eftir nóttu REYKJANESBRAUT „Framanákeyrslur eru algengar og nokkuð staðbund- ið vandamál,“ segir Ágúst Mogen- sen, framkvæmdarstjóri rann- sóknarnefnd um- ferðaslysa, en þau slys verða oft mjög alvarleg. Hann segir 70 prósent framaná- keyrsla verða á um fimmtíu kílómetra radíus frá Reykja- vík, á Suðurlands- vegi, Vesturlandsvegi og á Reykjanesbraut. Ef akgreinar verða aðskildar á þessum vega- köflum, til dæmis með vegriði, myndu framanákeyrslum fækka mikið. „Kostnaðurinn við að tvö- falda Reykjanesbraut og að gera öll þau mislægu gatnamót sem breytingarnar hafa í för með sér ,myndi duga til að aðgreina um- ferð á þeim köflum sem eru hættulegastir með því og gera tveir plús einn veg og fækka þar með slysum stórlega.“ Hann segir að í skýrslu sem var gerð komi fram að þetta þyrfti að gera á Suð- urlandsvegi að Selfossi, á Reykja- nesbraut til Keflavíkur og á Vest- urlandsvegi að Hvalfjarðargöng- um. Hann segir að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar komi ef- laust til með að fækka framaná- keyrslum. Framkvæmdin kosti svo mikið að hann telur að betra væri að gera úrbætur á öðrum hættulegum köflum á þeim veg- um sem áður voru nefndir. „Langt er komið með tvöföldun Reykjanesbrautar. Úr því sem komið er vil ég að það verk verði klárað með sóma,“ segir Óli H. Þórðarson, formaður Umferða- ráðs. Hann segir mjög brýnt að gera greiðfæra leið, bæði frá Hvalfjarðargöngum og austur fyrir fjall sem allra fyrst. Þá sé tvímælalaust tveir plús einn veg- ur það sem þarf. „Ég held að það verði niðurstaðan. Ekki verði gerð tvöföld braut eins og á Reykjanes- brautinni. Ég álít meiri þörf á tvö- földun Reykjanesbrautar þar sem eðli umferðarinnar þar er talsvert frábrugðin umferðinni á hinum vegunum. Fólk ekur oft þar þegar það er syfjað og þreytt og síðla kvölds er mikill akstur til og frá flugstöðinni.“ Hann segir brautina líka vera andlit okkar út á við þeg- ar fólk er að koma til landsins og það sé menningarlegt atriði að þarna séu tvær akreinar í hvora átt. hrs@frettabladid.is TÖLVUR Árás tölva sem smitaðar eru af tölvuorminum MSBlast á vefsetur Microsoft er hafin. „Árásin hófst á miðnætti í hverju tímabelti fyrir sig og mun standa yfir til 31. desember,“ segir Er- lendur S. Þorsteinsson, verkefnis- stjóri hjá Friðriki Skúlasyni ehf. Árásin hófst klukkan þrjú í gær- dag að íslenskum tíma, en þá sló klukkan tólf á miðnætti í fyrsta tímabeltinu. Talið er að fjöldi smitaðra tölva í heiminum nálgist eina og hálfa milljón, en í gær var ekki vitað hvaða áhrif árásin hefur á vefset- ur Microsoft. „Það kemur ekki í ljós fyrr en á morgun hvort Microsoft tekst að verjast árásin- ni,“ segir Erlendur, en árásin hefst ekki af fullum krafti fyrr en 16. ágúst hefur gengið í garð í öll- um tímabeltum. „Microsoft hefur haft heila viku frá því þetta kom upp til að undirbúa sig undir árásina, auk þess sem fyrirtækið hefur sólar- hring, á meðan árásin er að bygg- ja sig upp, til að átta sig á stöð- unni,“ segir Erlendur. Erlendur telur því möguleika á að vefsetur Microsoft standi árásina af sér, en vefsetrið gæti einnig lagst á hlið- ina með þeim afleiðingum að ekki verði hægt að ná sambandi við Microsoft á netinu. ■ Ein og hálf milljón tölva ræðst gegn vefsetri Microsoft: Byggir sig upp á sólarhring ■ Hann segir brautina líka vera andlit okk- ar út á við þeg- ar fólk er að koma til lands- ins. Föngum veitt frelsi: Palestínu- menn enn ósáttir JERÚSALEM, AP Yfirvöld í Ísrael hafa veitt 73 palestínskum föng- um frelsi og flutt þá til fjöl- skyldna sinna á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni. Til stóð að láta fangana lausa í byrjun vik- unnar en því var frestað í kjölfar sjálfsmorðsárása palestínskra öfgamanna. Ísraelar slepptu 334 föngum 6. ágúst síðastliðinn. Palestínumenn hafa gert lítið úr heimkomu fanganna þar sem flestir þeirra sátu inni fyrir minniháttar afbrot og áttu aðeins eftir að afplána fáeinar vikur eða mánuði. Palestínsk yfirvöld krefj- ast þess að Ísraelar láti yfir 7.000 fanga lausa úr haldi, þar á meðal háttsetta meðlimi andspyrnu- hreyfinga. ■ FAGNAÐARFUNDIR Palestínskur fangi faðmar ættingja sinn við Tarqumiye-eftirlitsstöðina á Vesturbakkanum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.