Fréttablaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 16
16 16. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
2
18
22
08
/0
3
• 30 ára afmæli Flugleiða • 60 ára afmæli Þristsins • 100 ára afmæli flugs í heiminum
Óvenju fjölbreytt farartæki svífa um loftin blá yfir Reykjavíkurflugvelli í dag. Í og við Skýli 4, Flugfélags
Íslands megin, verður margt um að vera. Flugfreyjur, flugmenn og flugvirkjar kynna störf sín og
Flugbjörgunarsveitin kynnir starfsemi sína. Yfir 20 áhugaverðar flugvélar verða til sýnis á svæðinu.
Afmælisleikur í flugskýlinu!
Búðu til þína eigin skutlu úr flugskutlublaðinu sem fylgdi með Fréttablaðinu í dag og taktu þátt
í skemmtilegum afmælisleik. Þeir sem hitta skutlunni í mark lenda í verðlaunapotti flughátíðarinnar.
Stórglæsilegir vinningar: 60 flugmiðar og 100 aukavinningar
Flughátíð Icelandair og Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í dag
Burt Lancaster fæddist árið1913 í New York. Faðir hans
vann á pósthúsi, móðir hans ól
upp börnin fimm. Hún var 125
kíló, gríðarleg skapkona og
Lancaster sagði seinna að hann
hefði alltaf verið dauðhræddur
við hana. Lancaster var strax í
æsku afburða
í þ r ó t t a m a ð u r .
Hann var 17 ára
þegar hann gekk í
sirkusflokk og
sýndi loftfimleika.
Kunnátta í þeirri
list kom Burt að
góðu gagni síðar í
Hollywood þegar
hann lék í sjóræn-
ingjamyndum og
sveiflaði sér fim-
lega í reipum. Allan sinn kvik-
myndaferil sá hann sjálfur um
eigin áhættuatriði.
Hann kvæntist ungri loftfim-
leikakonu en hjónabandið endaði
snögglega þegar hann kom að
henni með öðrum manni. Eftir
skilnaðinn varð hann sölumaður í
fataverslun og vann á kvöldin
sem syngjandi þjónn en gekk svo
í herinn. Síðan sneri hann sér að
leiklist og umboðsmaður hans út-
vegaði honum aðalhlutverkið í
myndinni The Killers þar sem
hann lék á móti Övu Gardner og
sýndi eftirminnilegan leik. Hann
var ekki í vandræðum með hlut-
verk eftir það.
Brösugt hjónaband
Hann kvæntist á ný. Nýja eigin-
konan hét Norma og hún fæddi
honum fimm börn sem fengu afar
frjálslegt og agalaust uppeldi.
Hjónin þóttu ekki berast mikið á.
Að sögn vina þoldi Norma ekki
álagið sem fylgdi því að vera í
hjónabandi með Hollywoodstjörnu
og varð alkohólisti. Með árunum
varð þegjandi samkomulag á milli
hjónanna að Burt mætti gera það
sem honum sýndist meðan hún
væri opinberlega frú Lancaster.
En í hvert sinn sem hún komst að
því að hann hafði verið henni ótrúr
komst hún í uppnám og fór á
drykkjutúr. Meðal þeirra kvenna
sem Burt átti í ástarsambandi við
voru leikkonurnar Marlene
Dietrich, Yvonne de Carlo og
Deborah Kerr, en eina konan sem
komst nálægt því að ógna hjóna-
bandi hans var Shelley Winters, en
Burt íhugaði um tíma að skilja við
konu sína og kvænast henni.
Árið 1947 gerðist hann fram-
leiðandi og kallaði fyrirtæki sitt
Norma í höfuðið á eiginkonu sinni
sem gaf honum þetta ráð: „Gerðu
eina kvikmynd fyrir gróðann og
aðra í þágu listarinnar.“ Þessu ráði
fylgdi hann alla ævi. Hann lék í
mörgum afar góðum myndum og
hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik
sinn sem predikari í Elmer Gantry.
Árið 1966 fór hann frá eigin-
konu sinni og hóf sambúð með
hárgreiðslukonu. Þremur árum
síðar sótti eiginkona hans um
skilnað eftir tuttugu og tveggja
ára hjónaband. Sambúðin með
hárgreiðslukonunni entist ekki og
þriðja eiginkona Burts var Susie
Martin, aðstoðarkona hans, sem
var þrjátíu árum yngri. Allt frá
því Burt varð stjarna og þar til
hann lést var þrálátur orðrómur á
kreiki um að hann væri tvíkyn-
hneigður.
Listrænn ruddi
Margir voru á þeirri skoðun á
frægðin hefði breytt Burt
Lancaster. Hann var sagður taka
lítið tillit til annarra og eiga til
skapbrigðaköst. Leikstjórinn Ro-
ber Siodmak, sem leikstýrði hon-
um í myndinni The Crimson Pira-
te, hélt því fram að Lancaster
þjáðist af mikilmennskubrjálæði
og væri andlega veikur. Engin
önnur skýring gæti verið á fram-
komu hans. Árið 1953 sagði Look-
tímaritið í yfirlitsgrein um leikar-
ann að hann væri einn ruddaleg-
asti einstaklingur í Hollywood.
„Ég er ofbeldisfullur en hef stjórn
á því. Hluti af mér kann ekki við
það sem gerist innra með mér svo
ég vinn í því að hafa hemil á því,“
sagði leikarinn á efri árum.
Átrúnaðargoð hans voru
Lincoln, Jefferson, Galileo og
Jesús Kristur. Hann var mikill óp-
eru- og bókmenntaunnandi og átti
frábært málverkasafn með mynd-
um eftir Leger, Chagall, Renoir og
Utrillo. Á Hollywood-mælikvarða
var hann vinstrisinnaður. Hann
hafði andstyggð á nornaveiðunum
sem áttu sér stað í Hollywood á
McCarthy-tímanum. „Er eitthvað
óamerískara en ameríska nefnd-
in?“ spurði hann. Hann var harður
andstæðingur Víetnamstríðsins,
studdi forsetaframboð George Mc-
Governs og komst á óvinalista
Nixons.
Mildaðist með árunum
Hann virðist hafa mildast með
árunum og þegar hann á sínum
tíma rifjaði upp fjörutíu ára leik-
feril sagði hann: „Sumir læra loks-
ins að þroski felst í því að sýna
Leikarinn Burt Lancaster naut mikillar hylli sem kvikmyndaleikari en meiri vafi þótti leika á um mannkosti hans:
Ruddalegasti
maðurinn í Hollywood
■ Kvikmyndastjarna
■
Leikstjórinn Ro-
ber Siodma
sem leikstýrði
honum í mynd-
inni The Crim-
son Pirate hélt
því fram að
Lancaster þjáð-
ist af mikil-
mennskubrjál-
æði og væri
andlega veikur.
GRÖF BURTS LANCASTERS
Lancaster var 77 ára gamall þegar hann
fékk alvarlegt hjartaáfall sem lamaði hann
að stórum hluta á hægri hlið. Hann var
bundinn við hjólastól næstu fjögur árin og
lést árið 1994.