Fréttablaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 23
19FÖSTUDAGUR 14. mars 2003 Þetta nafn varð víst til frekarskyndilega þegar móðir mín bar mig til skírnar. Það var búið að ákveða að skíra mig Rögnvald, en móðir mín vildi að ég bæri tvö nöfn,“ segir Rögnvaldur Skíði Frið- björnsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Dalvík. Hann er eini núlifandi Ís- lendingurinn sem ber nafnið Skíði. Móðurafi Rögnvalds hafði tekið sér annað nafn á sínum tíma. „Það var nafnið Tímóteus, en foreldrum mínum leist ekkert of vel á að láta mig hafa það. Svo kom þetta allt í einu upp í huga hennar að skíra mig eftir frumbyggjanum Skíða.“ Móðir Rögnvalds er alin upp í Skíðadal, sem gengur inn úr Svarf- aðardal í Eyjafjarðarsveit. Þar bjó á tíundu öld Skíði nokkur, sem framan af æfi sinni var þræll en gerðist síðan bóndi á Möðruvöllum í Skíðadal. „Lengi vel var ég er nú mjög nervus við þetta nafn,“ segir Rögn- valdur Skíði. „Þegar maður var í skóla fannst manni þetta asnalegt. Mér fannst eins og fólk héldi að ég hefði tekið mér þetta nafn af því ég hafi verið svo góður á skíðum, og sumir trúa því enn þótt ég hafi aldrei náð neinum árangri í þeirri íþrótt.“ Nafnið hefur valdið ýmis konar misskilningi. Til dæmis mun það hafa gerst í kirkjunni strax að skírn lokinni að gamall maður hélt að barnið hefði hlotið nafnið Rögn- valdur Stífi. Rögnvaldur Skíði stóð reyndar í þeirri trú að hann væri eini Íslend- ingurinn sem borið hefði þetta nafn frá því Skíði þræll fór að búa á Möðruvöllum. Samkvæmt einfaldri athugun í Íslendingabók Friðriks Skúlasonar og Íslenskrar erfðagreiningar kemur hins vegar í ljós að frá því frumbygginn Skíði bjó á Möðru- völlum í Skíðadal á tíundu öld hafa rúmlega tíu manns borið þetta nafn. Sá síðasti á undan Rögnvaldi fæddist árið 1870. „Ég á líka bróður sem heitir Kristinn Atli og það á sér svipaða sögu. Faðir minn ólst upp í Svarf- aðardal og þar var frumbyggi í Svarfaðardalnum sem hét Atli.“ ■ Aldrei verið góður á skíðum ■ NAFNIÐ MITT ■ PLÖTUKASSINN MINN RÖGNVALDUR SKÍÐI FRIÐBJÖRNSSON Skírður í höfuðið á Skíða þræl, sem á tíundu öld gerðist frumbyggi á Möðruvöllum í Skíðadal. Á myndinni með honum er barnabarnið Páll Hlíðar. SAMMI ÚR JAGÚAR Segist ekki nota netið í það að sækja tón- list annarra. En hann styðst þó við tæknina til þess að senda sína eigin tónlist áfram. „Ég skora á fólk að kaupa fleiri plötur og hætta að stela!“ Frá Duran yfir í Miles Samúel J. Samúelsson, básúnu-leikari og söngvari Jagúar, segist ekki hafa tölu á því hversu margar plötur hann eigi. „Síðast þegar ég reyndi að telja, þá rugl- aðist ég í talningunni þegar ég var kominn upp í 700 og eitthvað. Þá var ég rúmlega hálfnaður og nennti því ekki að byrja aftur,“ út- skýrir hann og segir meira um diska en vínylplötur. Hann safnar þó líka vínylplöt- um en þó ekkert endilega til þess að hlusta á þær. Hann á t.d. gott safn á safnplötunum „Top of the Pops“ sem voru gefnar út á átt- unda áratuginum. Plötukápur þeirra voru yfirleitt litríkar með myndum af föngulegu stúlkum framan á. Lögin á plötunum voru þau sem þóttu vinsælust í kring- um útgáfuna en undarlega voru þau flutt af öðrum tónlistarmönn- um en gerðu þau vinsæl. „Ég keypti slatta af þeim bara til þess að veggfóðra með. Mig vantaði eitthvað til þess að setja upp á veggina og fannst þetta flottar myndir. Plöturnar sjálfar eru svo í einhverjum kassa í kjallara.“ Í safninu er mikið af fönk, djass og kvikmyndatónlist en lítið af rokki og nýrri tónlist. „Ég safnaði svo Miles Davis, James Brown, Ennio Morricone, Kool & The Gang. Earth Wind & Fire og Fela Kuti. Ég ætlaði mér að safna öllu með Miles en gafst upp á því. Ég held að maður nái því nú seint, þær eru of margar.“ Á yngri árum var Sammi mikill Duran Duran aðdáandi. „Fyrstu plöturnar sem ég keypti voru fyrstu fjórar Duran Duran breið- skífunnar. Ég eyddi aleigunni minni í það sem krakki. Svo hætti ég að kaupa plötur þegar þeir fóru í eitthvað frí. Fór svo ekki að kaupa plötur fyrr en nokkrum árum seinna. Þá var ég kominn í djassinn.“ Uppáhalds básúnuleikari Samma heitir Fred Westley, sem spilaði meðal annars með James Brown. Jagúar heldur upp á fimm ára afmæli sitt í Leikhúskjallaranum í kvöld. Í október verða þeir með Motown sýningu á Broadway ásamt Páli Óskari og fleirum. Jagúar er svo við upptökur á nýrri breiðskífu sem ætti að skila sér í búðir fyrir jól. biggi@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.