Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.08.2003, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 16.08.2003, Qupperneq 13
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR LAU GAV EGU R Hugmyndin um menningarnótt,hátíð sem stæði til miðnættis í Reykjavík, spratt upphaflega af ákveðnum misskilningi. Árið 1995, eftir að Reykjavíkurlistinn hafði tekið við stjórnartaumunum, litu menn mjög til fyrirbrigða í Skand- inavíu sem kölluð eru Kultur Natt. Án þess að kynna sér fyrirbrigðið til hlýtar ákváðu reykvísk borgar- yfirvöld að blása til sams konar hátíðarhalda í borginni. Misskilningurinn fólst í því, að hin reykvíska menningarnótt var látin standa fram á nótt, vel fram yfir miðnætti. Var það talið í anda hinnar skandinavísku hefðar. En hér var hins vegar um ákveðinn tungumálarugling, auk þekkingar- skorts, að ræða, því með Kultur Natt í hinum skandinavísku borg- um og bæjum er einungis átt við pena kvölddagskrá sem endar klukkan níu um kvöldið. Þar er því heldur um að ræða menningar- kvöld en menningarnótt. Reykvíkingar náðu því að skapa séríslenskt fyrirbrigði með menningarnótt, alveg óvart. Reyndar er menningarnótt varla nótt lengur í eiginlegri merk- ingu þess orðs, því dagskráin teyg- ir sig frá því klukkan eitt um dag- inn. Þetta er því í eina skiptið á ár- inu sem landsmönnum leyfist að tala um að nótt hefjist um miðjan dag. En þetta er skiljanlegt. Orðið „menningardagur“ hljómar langt í frá jafn spennandi og „menning- arnótt.“ Annað einkenni á hinni sérís- lensku menningarnótt er það, að dagskráin er að langmestu leyti sjálfsprottinn. Borgaryfirvöld tóku snemma þá stefnu að skipu- leggja ekki dagskrá, heldur hvetja einstaklinga, hópa og fyrirtæki til þess að vera með dagskrárliði upp á eigin spýtur. Þetta virðist hafa tekist einstaklega vel í ár. Þannig eru allir bankarnir í miðbænum með sína eigin dagskrá, svo eitt- hvað sé nefnt. Flugleiðir blása til flughátíðar á Reykjavíkurflug- velli. Sumir hafa opið hús heima hjá sér. Verslanir á Laugaveginum bjóða upp á metnaðarfulla dag- skrárliði. Fjölmiðlarnir blása til tónleika og annarra atburða eins og framtak Rásar 2 á Hafnarbakk- anum er dæmi um. Í raun hafa því borgaryfirvöld og skipuleggjendur hátíðarinnar ekki gert annað, sem þó hefur vissulega falið í sér ærna vinnu, en að laða fram og samhæfa í einni stórri og fjölbreytilegri dag- skrá þá list sem fyrir er í borgar- lífinu. ■ Menningarnótt hefur fest sig í sessi í borgarlífinu. Hún á sér orðið langa sögu: Spratt af misskilningi ALÞJÓÐAHÚSIÐ 14.00 Grafítti listamenn mála vegg. 18.00 Minerva Eglesias sýnir flamenco. 20.00 Hipp hopp dagskrá. 22.30 Tangósýning og ball. yrir börn. 16.00 og a í Ögri. HÚN OG HÚN 21.00: Dúettinn Abena VINNUSTOFA PÉTURS GAUTS Vinnustofusýning með léttum jazz. SPRON Opið hús til 22.00 Lína langsokkur, Karla- kór Reykjavíkur, Hljómsveitin Drum and brass og margt fleira. NORRÆNA HÚSIÐ 16.00 Tónleikar með hinum ástsælu Spöðum. LITLA JÓLABÚÐIN 17.00 og 20.00 Ævintýraland úti og inni, heitt á könnuni og lifandi tónlist í garðinum. LISTASMIÐJAN NÚ 16.00 og 20.00 Tónlistaratriði úr leikritinu Plómur. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR 21.30 Gjörningar í garðinum. LISTASELIÐ 20.00 og 22.00 Einar Gíslason leikur á harmonikku. STYTTA LEIFS EIRÍKSSONAR 15.00 Menningarfylgd Birnu ehf. KJAFTAKLÖPP 17.30: Íslandssagan á 40 mínútum - upp- lestur félaga úr JC úr merkilegum ræðum allt frá upphafi Íslands- byggðar. HORNIÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG OG BANKASTRÆTI 15.00 Kentár flytur kátan blús. Fimmta herdeildin tekur lagið. HLEMMUR Frá 14.00: Biðstöðin breytist í menningar- setur, aðeins þennan eina dag. JC-HÚSIÐ Frá 15.00 Opið hús. 16.00 Fjöltefli við skákmeistara. 21.00 Kristín Sigurðardóttir sópransöng- kona syngur á tröppunum. HALLGRÍMSKIRKJA 18.00 Jón Bjarnason, orgeltónleikar. 19.00 og 20.00 Mótettukór Hallgríms- kirkju. 21.00 Schola cantorum, kammerkór Hall- grímskirkju. 22.00 Helgistund í kirkjunni í umsjá sr. Jóns Dalbú Hróbjartssonar. FLUGSKÝLI NR 4 FLUGSÝNING 15.00: Myndræn sýning á töfrum flugsins. Keppni í skutlukasti. Gamlar og nýj- ar flugvélar til sýnis fyrir utan skýlið. GALLERÍ FOLD 14.00: Opnuð sýningu á verkum Andy Warhols. Opnun á sýningu á gler- verkum Jónasar Braga. Teiknisam- keppni fyrir börn. 15.40 og 20.45: Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvari. NÝLISTASAFNIÐ 20.00 Leiðsögn um sýningu Gjörninga- klúbbsins SÚFISTINN, MÁLI OG MENNINGU 15.00 Dagskrá fyrir unga bókaorma. Ást- sælustu barnabókahöfundar þjóð- arinnar lesa úr verkum sínum. 20.00: Forskot á sæluna. Smá skvetta úr bókaflóði haustsins. KLING OG BANG GALLERÍ 21.30 Ragnar Kjartansson og Egill Sæ- björnsson. GOETHE ZENTRUM 20.00 Kurz und gut: Örnámskeið í þýsku. SPAÐARNIR Spila í Norræna húsinu kl.16.00 FÖSTUDAGUR 14. mars 2003 HLJÓMSKÁLAGARÐUR 13.00 Skátaland með uppblásnum leik- tækjum, kassaklifri, þrautum, trúð- um, kaffi og tónlist. 15.00 Fear factor og FM957. 18.00 Land og synir spilar ásamt fleirum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.