Fréttablaðið - 26.08.2003, Page 4

Fréttablaðið - 26.08.2003, Page 4
REIFST VIÐ MAKA OG TJALDAÐI Lögreglan í Reykjavík fékk til- kynningu um að búið væri að tjalda í götu í Grafarholtinu. Þegar að var gáð hafði maður tjaldað utan byggðar eftir ósætti við maka og hugðist dvelja þar næturlangt þar til hægðist um heima hjá honum. FANN EKKI BÍLINN Maður óskaði eftir aðstoð lögreglunnar í Reykjavík á sunnudagsmorg- un. Hann kvaðst hafa falið bíl- inn sinn svo vandlega kvöldinu áður, til að koma í veg fyrir að aka drukkinn, að hann fann hann ekki aftur. ÓHEPPINN SÖLUMAÐUR Óein- kennisklæddir lögregluþjónar stóðu á tali við góðkunningja lögreglunnar í miðborginni á há- degi á sunnudag þegar maður vatt sér upp að þeim og bauð þeim síma til kaups. Maðurinn gat ekki gert fullnægjandi grein fyrir símanum og var hann tek- inn af honum í kjölfarið. SVAF EINN Í HÁVAÐANUM Mik- ill hávaði barst úr íbúð í vestur- borginni aðfaranótt mánudag. Húsráðandi hafði stillt tónlist- ina mjög hátt og sofnað síðan út frá henni. Aðrir íbúar í húsinu sváfu ekki eins vært og kom til kasta lögreglunnar að lækka niður í græjunum. BRAGI GUÐBRANDSSON Forstjóri Barnaverndarstofu segir að farið verði ofan í saumana á málinu á næstunni og þá hvort nefndin hafi brugðist rétt við. Forstjóri Barnaverndar- stofu: Málið skoðað BARNAVERNDARMÁL Bragi Guð- brandsson, forstjóri Barnavernd- arstofu, segist ekki líta á tilkynn- ingu barnaverndarnefndar Vest- urbyggðar og Tálknafjarðar- hrepps sem ásökun á hendur Barnaverndarstofu. Bragi segir það rétt að nefndin hafi leitað eftir ráðgjöf hjá Barna- verndarstofu eftir að málið hafi komið upp. Hann hafi enga ástæðu til að ætla að ekki hafi verið farið eftir þeirri ráðgjöf. Barnaverndarstofa fái fjölda fyr- irspurna frá barnaverndarnefnd- um á hverju ári og í sumum tilfell- um sé ekki ástæða til að hafast neitt að. Hvort sú hafi verið reyndin í þessu máli geti hann ekki sagt. Hann segir að farið verði ofan í saumana á málinu á næstunni og þá hvort nefndin hafi brugðist rétt við. Hann ítrekar að Barnaverndarstofa hafi enga ástæðu til að ætla að nefndin hafi ekki gert það. ■ 4 26. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR Hefurðu farið á leik í Landsbankadeild karla eða kvenna í knattspyrnu? Spurning dagsins í dag: Ætlarðu að fara í skóla eða á nám- skeið í vetur? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 72% 28% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Lögreglufréttir Enginn ábati af sorpkortum lengur: Sorpafsláttur afnuminn UMHVERFI Sorpa hefur lagt niður afslátt fyrir fyrirtæki sem skila inn sorpi á móttökustöðvar á höf- uðborgarsvæðinu. Litlum fyrir- tækjum gafst kostur á að kaupa klippikort og fá 23 prósenta af- slátt. „Þetta virkaði eins og sund- kort. Eitt gat var gert fyrir hvern hálfan rúmmetra af sorpi,“ segir Ögmundur Einarsson fram- kvæmdastjóri. Hann segir afslátt- inn hafa verið afnuminn fyrir skattborgarana. „Það kostar sveit- arfélögin 400 milljónir á ári að reka stöðvarnar. Þetta eru svo lít- il viðskipti að við höfum ekki litið svo á að þetta sé tilefni til afslátt- ar. Við reynum frekar að nálgast raunkostnaðinn, annars eru það skattborgarar sem borga brús- ann.“ Sorpa starfrækir átta móttöku- stöðvar fyrir óæskilega hluti á höfuðborgarsvæðinu og sjá 35 starfsmenn um að taka við þeim. Fyrirtæki borga 400 krónur á rúmmetrann fyrir að losa sorp í Sorpu, en almenningur losar venjulegan úrgang frítt og fær jafnvel borgað fyrir flöskur og dósir. „Ætli það verði ekki að gera þetta aðlaðandi fyrir fólk. Við erum þeir einu sem taka við rusli. Ég þori varla að hugsa til þess að fólk losi ruslið sitt annars staðar,“ segir Ögmundur. ■ Sameining með góðu eða illu Bankarnir þrýsta á um sameiningu SíF og SH. Skýr skilaboð send um að ef sameiningin verði ekki með góðu muni bankarnir beita afli til að tryggja hana. Mótstaðan er meðal S-hópsins sem ræður 35% hlut. SAMEINING Landsbankinn og Ís- landsbanki eru einhuga um að sameina sölufyrirtækin SH og SÍF. Ósk bankanna er að samein- ingin verði með sátt eigenda beggja fyrirtækja. Stálhnefi er í silkihanskanum, því samkvæmt heimildum munu bankarnir beita afli við sameininguna ef ekki vill betur. Friðrik Pálsson, stjórnar- formaður SÍF, geldur varhuga við því að farið verði í fjandsamlega yfirtöku. „Ég tel marga góða kosti við sameiningu þessara fyrir- tækja, en ég legg áherslu á að slík sameining verði unnin með vand- virkni og varúð.“ Róbert Guðfinnsson, stjórnar- formaður SH, segir sameiningar- þreifingar nú ekki vera á borði stjórna fyrirtækjanna. „Þetta er fyrst og fremst mál eigendanna.“ Hann segir hins vegar ekkert launungarmál að hann hafi alla tíð talað fyrir sameiningu fyrirtækj- anna og séð mikla hagræðingar- möguleika með henni. Bankastjórar beggja bankanna hafa lýst því yfir að sameining sé skynsamleg. Telja þeir að samein- ing muni skila bættri afkomu fé- laganna upp á 700 milljónir upp í milljarð á ári. Andstaðan við sameiningu er mest meðal S-hópsins innan eig- endahóps SÍF. Fyrri viðræður sigldu í strand. Stjórnarformenn beggja félaga lýstu því að hvort félag um sig hefði metið sig of hátt. Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, lýsti því yfir að hann teldi bankana vera að koma eign- arhaldi sölufyrirtækjanna í hend- ur útlendingum. Þessar yfirlýs- ingar hleyptu illu blóði í bankana. Frá þeirra sjónarhóli gengur Ólafi og S-hópnum það eitt til að vernda viðskiptahagsmuni sinna félaga og að reyna að skapa sér stöðu til þess að fá hærra verð fyrir sinn hlut. Innan S-hópsins gætir hins vegar pirrings með það að bank- arnir sitji beggja vegna borðsins sem ráðgjafar fyrirtækjanna og stórir eigendur. Fyrirtækin séu í viðkvæmum rekstri og allt offors sé til óþurftar. Bankarnir telja hins vegar skorta á raunveruleg- an vilja SÍF til sameiningar. Bank- arnir hafa tvær meginleiðir að markmiðinu, annað hvort að sann- færa aðra hluthafa um samein- ingu eða að hefja kapphlaup um kaup á bréfum. haflidi@frettabladid.is Dómari dæmdur: Misnotaði sakborninga NÝJA-MEXÍKÓ, AP Bandarískur dóm- ari hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að bjóða kven- kyns sakborningum vægari refs- ingu í skiptum fyrir kynlíf. Fjöldi manna mætti í réttarsal- inn til að sýna Charles Maestas stuðning sinn. Dómarinn sem dæmdi í málinu gaf þó ekkert eft- ir og lagði áherslu á að Maestas ætti refsinguna skilið. Maestas var dæmdur fyrir nauðgun og mútur og hefði getað fengið yfir 50 ára fangelsisdóm. Saksóknari í málinu kallaði hann „raðnauðg- ara“ sem hefði notfært sér við- kvæmar konur. ■ SKÓGARHLÍÐ Þar verður aðsetur samhæfingardeildar Almannavarna til húsa í framtíðinni. Tilkynning frá Almanna- varnadeild: Aðgengi fjölmiðla ALMANNAVARNIR Almannavarna- deild Ríkislögreglustjóra vill að gefnu tilefni koma eftirfarandi á framfæri: Neyðarlínan 112 sér um svörun á vaktsíma almanna- varna. Þar eru mótteknar tilkynn- ingar um atburði sem tengjast al- mannavörnum og þeim upplýsing- um komið á framfæri við bakvakt almannavarnadeildar Ríkislög- reglustjóra. Bakvaktarmaður tek- ur síðan ákvörðun um frekari að- gerðir. Hann safnar saman helstu upplýsingum um atburðinn og veitir alla þá aðstoð sem hann get- ur. Eftir að nægum upplýsingum hefur verið safnað eru fjölmiðlar upplýstir um ástand og þróun mála. Eru þá sendar fréttatilkynn- ingar reglulega. Utan þess tíma mun Neyðarlín- an taka við símtölum frá fjölmiðl- um og koma upplýsingum áleiðis til bakvaktarmanns. Er þá haft samband við fjölmiðla eftir að- stæðum. Þegar samhæfingarstöð verð- ur virkjuð munu fjölmiðlar fá beint símanúmer þess sem sér um samskipti við fjölmiðla. ■ fyrir andlitið og líkamann Andlits- og líkamsskrúbb: Mild kornagel sem hreinsa dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og gera hana mjúka og slétta. Allison •andlitslína•líkamslína•hárlína Fæst í apótekum E in n t v e ir o g þ r ír 3 21 .0 0 4 BARNAVERNDARMÁL Ásakanir um að- gerðaleysi barnaverndarnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðar- hrepps í máli sem tengist fórnar- lambi kynferðisofbeldis eru á misskilningi byggðar, að mati Arnheiðar Jónsdóttur, formanni nefndarinnar. Í nýlegum dómi héraðsdóms Vestfjarða kemur fram að fórnar- lamb kynferðisofbeldis greindi hjúkrunarfræðingi frá kynferðis- legri áreitni í viðtali 17. október 2001. Jafnframt kemur fram að sú frásögn var ekki kærð til lögreglu fyrr en eftir að barnaverndar- nefnd Vesturbyggðar og Tálkna- fjarðarhrepps réði til sín félags- ráðgjafa í apríl árið 2002. Í tilkynningu frá barnarvernd- arnefndinni kemur fram að það sé ekki rétt sem komi fram í dómin- um að nefndin hafi ekkert aðhafst í málinu fyrr en félagsráðgjafinn kærði málið. Hið rétta sé að í framhaldi af viðtalinu í október 2001 hafi fulltrúi nefndarinnar kynnt málið fyrir starfsmanni Barnaverndarstofu og leitað leið- sagnar. Þeirri leiðsögn hafi verið fylgt eftir. Í dómnum var sextugur karl- maður dæmdur í þriggja ára fan- gelsi fyrir að misnota stúlku kyn- ferðislega. Stúlkan var sjö til 11 ára þegar brotin áttu sér stað. ■ Barnaverndarnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps: Ásakanir byggðar á misskilningi KRAFA UM SAMEININGU Bankarnir knýja á um sameiningu stóru fiskútfytjendanna SH og SÍF. Þeir vilja sameiningu helst með góðu, en eru tilbúnir í hart ef á þarf að halda. MÓTTÖKUSTÖÐ SORPS Lítil fyrirtæki fá ekki lengur 23 prósenta afslátt hjá Sorpu út á sorpkort, sem virka eins og sundkort.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.