Fréttablaðið - 26.08.2003, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. ágúst 2003
CHICAGO, AP Tólf ára gamall
drengur hefur hafið nám við
læknadeild Háskólans í Chicago
í Bandaríkjunum. Sho Yano er
yngsti nemandinn í sögu skólans
og stefnir hann á að ljúka
læknanáminu og útskrifast jafn-
framt með doktorsgráðu nítján
ára eða tvítugur.
Greindarvísitala Sho er yfir
200. Hann útskrifaðist með hæstu
einkunn frá Loyola-háskólanum í
Chicago og stendur sig nú af-
burðavel í læknanáminu. Skólafé-
lagar Sho hafa tekið honum vel þó
í fyrstu hafi þeir haft ýmsar efa-
semdir um félagslegan þroska
hans.
Sho er fæddur í Portland í Or-
egon en alinn upp í Kaliforníu.
Snemma kom í ljós að hann bjó
yfir undraverðum hæfileikum
en aðeins þriggja ára gamall lék
hann vals eftir Chopin á píanó
eftir að hafa hlustað á móður
sína æfa verkið. Foreldrar Sho
tóku að sér að kenna honum
heima við þar sem enginn skóli
virtist geta komið til móts við
hann. Hann lauk við námsefni
grunnskóla átta ára gamall. ■
UNDRABARN
Á meðan önnur börn lesa Harry Potter les
Sho Yano undir próf í líffærafræði.
Tólf ára gamall læknanemi:
Með doktorsgráðu nítján ára
Hitabylgjan í Frakklandi:
Yfirfull
líkhús
PARÍS, AP Líkhús í París eru enn yf-
irfull af líkum sem ekki hefur ver-
ið vitjað af aðstandendum. Fjölda
bráðabirgðalíkhúsa hefur verið
komið upp í borginni vegna dauðs-
falla af völdum hitabylgjunnar.
Borgaryfirvöld hafa orðið að
ráða fólk til að reyna að hafa uppi
á ættingjum hinna látnu, en marg-
ir þeirra eru að heiman vegna
sumarleyfa. Hámarkstíminn sem
líða má frá andláti til greftrunar
hefur verið lengdur úr sex dögum
í tíu af þessum sökum. Embættis-
menn hjá borginni neita því þó al-
farið að til greina komi að jarða
fólkið í fjöldagröfum. ■
BRÁÐABIRGÐAGRAFIR
Líkum er komið fyrir í eins konar bráða-
birgðagröfum þar til þeirra er vitjað.
LÖGREGLUMÁL Einar Þór Sverris-
son, lögmaður næturvarðarins
sem rekinn var frá Búnaðarbanka
Íslands vegna meints stuldar á
trúnaðargögnum, segir ekki rétt
að vörðurinn hafi orðið uppvís að
því að stela gögnum.
Lögmaðurinn segir Lögreglu-
stjórann í Reykjavík hafa tilkynnt
vaktmanninum í maí í vor að
rannsókn málsins væri lokið.
Framkomin gögn væru ekki nægj-
anleg eða líkleg
til sakfellingar.
Málið væri því
látið niður falla.
„Vegna þessa
er rangt og ekki
hægt að fullyrða
að vaktmaðurinn
hafi orðið uppvís
að því að taka
gögn í skrifstofu
bankans ófrjáls-
ri hendi. Vegna
þess geri ég
einnig athuga-
semd við fyrirsögn fréttarinnar
um „svikulan“ næturvörð, sem er
allt að því meiðandi með vísan til
forsögu málsins og endalok þess.
Þá er texti undir myndinni um að
hann hafi „stolið“ trúnaðargögnum
engan veginn í samræmi við mál-
ið,“ segir Einar Þór.
Frétt Fréttablaðsins, sem lög-
maðurinn vísar í og birtist á
mánudag, byggist á hálfs mánað-
ar gömlum úrskurði Persónu-
nefndar um það hvort Búnaðar-
bankanum hafi verið heimilt að
mynda skrifborð bankastjórans
þar sem hinn meinti gagnastuldur
fór fram síðla í september í fyrra.
Bankinn taldi myndirnar sanna
sök mannsins, vék honum úr
starfi og kærði til lögreglu. Per-
sónuvernd sagði bankanum hafa
verið heimilt að mynda:
„Fyrir liggur í máli þessu að
með umræddri vinnslu náðust
myndir sem leiddu til þess að
vaktmanninum var sagt upp störf-
um. Er ljóst að hefði komið til
málareksturs vegna meintrar
ólögmætrar uppsagnar hefði
bankanum, án slíkra gagna, getað
reynst torvelt að sanna brott-
rekstrarsök,“ sagði Persónu-
vernd.
Næturvörðurinn sagði Per-
sónuvernd að hann teldi að sér
hefði verið sagt upp störfum að
ósekju. Hann hafi vitað af mynda-
vélavöktuninni og því að grunur
léki á því innan bankans að hann
læki upplýsingum til Norðurljósa.
„Sagðist hann þess vegna hafa
„sett á svið leikþátt“ þegar hann
var á næturvakt, m.a. hafi hann
tekið skjöl og ljósritað þau (eða
þóst ljósrita þau),“ segir Persónu-
vernd.
Vaktmaðurinn mun íhuga að
stefna Búnaðarbankanum vegna
ólögmætrar uppsagnar.
gar@frettabladid.is
FRÉTT FRÉTTABLAÐSINS Í GÆR
Búnaðarbanki Íslands rak næturvörð í fyrra vegna meints stuldar á trúnaðargögnum. Vakt-
maðurinn var myndaður með eftirlitsmyndavél en sagðist hafa verið að grínast þegar
hann fór höndum um gögnin. Lögregla telur ekki nægar sannanir gegn manninum og
hefur fellt niður málið gegn honum.
Lögregla hreinsar
orðstí næturvarðar
Lögregla segir gögn í máli Búnaðarbankans gegna brottreknum nætur-
verði ekki gefa tilefni til annars en að láta málið niður falla. Næturvörð-
urinn íhugar málsókn gegn bankanum vegna ólögmætrar uppsagnar.
„Ekki hægt
að fullyrða að
vaktmaðurinn
hafi orðið
uppvís að því
að taka gögn
í skrifstofu
bankans ófr-
jálsri hendi.
EINKALÍF Persónuvernd segir Búnað-
arbankanum hafa verið heimilt að
koma fyrir myndavélum á lokaðri
skrifstofu bankans og nota upptök-
ur úr henni til að upplýsa um mis-
notkun starfsmanns á trúnaðarupp-
lýsingum.
Næturvörður í Búvarð
leka upplýsingum til Norðurljósa
hf.
„Fyrir liggur í máli þessu að með
umræddri vinnslu náðust myndir
sem leiddu til þess að vakt
um var sagt
B
LUND
únum
fram
Tower
ur yfi
legt út
Pör
gefa si
bóndan
nemur
um. Ef móti gesur sem ligþau að rminnsta kviðbótar. leyfi fyrir inum, í parúna“ og á v
BÚNAÐARBANKINN
Upp komst um næturvörð sem stal trúnaðargögnum í Búnaðarbankann þegar hann náð-
ist á mynd í myndavél sem sett var upp honum til höfuðs. Hann var grunaður um að leka
upplýsingum til Norðurljósa hf.
Persónuvernd segir Búnaðarbankann ekki brotlegan:Mátti myndasvikulan næturvörð
Wilkie af vopnaeign Sadda