Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2003, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 26.08.2003, Qupperneq 32
Bakþankar KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is Allt að 80%veðsetningarhlutfall af verðmæti fasteignar A B X 9 0 3 0 3 7 5 SPORTLEGUR – fjórhjóladrifinn ferðafélagi Saga Subaru á Íslandi hefur í gegnum árin verið farsæl, enda er hann níðsterkur, sportlegur og fallegur. Fjórhjóladrifið sér um að misjöfn færð vefst ekki fyrir Subaru Impreza og öflug 2 lítra boxervélin sem var upphaflega þróuð til rallaksturs hefur margsannað ágæti sitt. Í vél- og drifbúnaði fara saman lítil þyngd, lágur þyngdarpunktur, lágmarks titringur og hámarks aflnýting. Þetta er afrakstur þróunarvinnu Subaru og er svo sannarlega lykillinn að hönnuninni á hinum fullkomna sportbíl. Í Impreza skutbílnum nær afturrúðan saman við hliðarrúður og veitir þannig mjög gott útsýni við akstur. Impreza fæst einnig sjálfskiptur. IMPREZA Ingvar Helgason Sævarhöfða 2 · sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.isVerð frá 2.140.000 kr. F í t o n F I 0 0 7 6 6 3 Von er á stórum skjálfta á næstasólarhring, segir eftirvæntingar- fullur fréttaþulur í sjónvarpi og ég tek heilshugar undir þau orð. Sjálf missti ég af þessum sem var klukk- an tvö um nótt, svaf í gegnum salí- bununa og vona svo sannarlega líkt og fréttastofur að stórir skjálftar komi ekki þegar maður sefur á sínu græna. Skyldi sex á Richter nægja til að maður rumski? Eftir þjóðhátíð- arskjálftann mikla, sem ég missti líka af, boltaði ég borðstofuskápinn við útvegg með vinklum, skrúfu- drjólum og töppum að ráðum sér- fræðinga. Ef húsið hrynur til grunna í skjálfta er nokkuð víst að suður- veggurinn stendur með borðstofu- skápnum pikkföstum, sem minnis- varði um fyrri búsetu. HYLLA BER sérfróða fyrir þá miklu markaðssetningu sem er hafin á landinu bláa erlendis. Nú fölna öll fyrri markaðsátök á paradísareyj- unni og lyft hefur verið grettistaki til þess að losa landann við óþarfa viðskipti og leiðinlega kúnna. Fljót- lega dregur vonandi úr hvimleiðum heimsóknum túrhesta upp á skerið, enda ráðherrar í útlandinu farnir að vara við því að sækja heim morðóða barbara sem leika sér að því að murka lífið úr stórgáfuðum fjöl- skyldum neðansjávar. Ráðherrann sá grætur vonandi jafn fögrum tárum yfir sláturhúsum í Bretaveldi og nautaötum á Spáni. Höldum áfram að æra óstöðuga eins og okkur ein- um er lagið, hrefnuveiðar eru fram- sækinni vísindaþjóð enda svo lífs- nauðsynlegar. ÍTALSKIR TIL FJALLA lofa bót og betrun, félagsmiðstöð, sturtuklefum og huggulegri heilsugæslu á öræf- um. Erlendir farandverkamenn legg- ja nótt við dag á unglingavinnukaupi til þess að klára pakkann. Á meðan heldur áfram að molna úr Kára- hnjúkum eins og veislutertu á hlað- borði og skurðgröfur hanga á lyginni utan í bröttum skriðum í leit að bjargi til að byggja á. FJÖLSKYLDAN í fyrirrúmi er slagorðið á stjórnarheimilinu nú sem fyrr, og mikið er notalegt til þess að vita að einhverjir láta sér annt um frændgarðinn. Það er gömul saga og ný að bjarga ættmennum um starf og eykur með manni öryggiskennd að vera sem mest í faðmi fjölskyld- unnar. Þeir bræður Údæ og Kúsæ nutu enda góðs af karli föður sínum við Persaflóa, þótt það væri skamm- góður vermir, en er á meðan er. ■ Er á meðan er...

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.