Fréttablaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 1
endurnýjun í bílaflotanum
Ólafur Ragnar:
▲
SÍÐA 38
Forsetinn þarf
nýjan Cadillac
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
FÖSTUDAGUR
DNA-NIÐURSTÖÐUR KOMNAR
Sænsk lögregla
hefur fengið í
hendur niður-
stöður DNA-
prófs sem gæti
varpað ljósi á
það hvort 35
ára karlmaður,
sem er í haldi
lögreglu, er sek-
ur um morðið á Önnu Lindh utanríkisráð-
herra. Sjá síðu 2.
Í FORMANNSKJÖR HEFÐI HÚN
KOMIST Á ÞING Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir segir að það hefði hugsanlega
breytt afstöðu sinni til formannskjörs ef
hún hefði náð kjöri inn á þing. Þetta sagði
hún á fundi með stjórnmálafræðinemum í
gær. Sjá síðu 2.
BISKUP UM AÐSKILNAÐ Biskup Ís-
lands telur að enn vilji meirihluti þjóðarinnar
tryggja sess íslensku þjóðkirkjunnar. Hann
segir að staða þjóðkirkjunnar í stjórnarskrá
feli ekki aðeins í sér skuldbindingu frá ríki
heldur einnig frá kirkjunni. Sjá síðu 6.
BERST VIÐ VILLIKETTI Meindýraeyðir
Ísafjarðarbæjar berst við villikattaplágu í
fjölbýlishúsi. Skaut 25 ketti á lóðinni. Býður
bætur vegna riffilskots sem fór í gegnum
hurð. Sjá síðu 8.
LANDSFUNDUR UVG Landsfundur
Ungra vinstri grænna hefst klukkan 20.30
í kvöld með kynnisferð um Alþingishúsið.
Formleg fundarstörf hefjast á morgun á
Hótel Loftleiðum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VINDGANGUR Leiðindavindur verður á
landinu þó ekki verði hann að stormi.
Hlýnar að nýju. Gæti dropað seinnipartinn
í borginni. Sjá síðu 6.
● hvað segja börnin?
Foreldrasamstarf
lykilatriði
börn o.fl.
Unnur Jónsdóttir:
▲
SÍÐA 26
þitt
eintak
v iku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu
birta
19. SEPTEMBER TIL 25. SEPTEMBER 2003
ÚTBRE IDDASTA T ÍMARIT LANDSINS – 93 .000 E INTÖK
NR . 28
Jón Gnarrí nýju hlutverki
7dagskrásjónvarpsinsnæstudaga
Með lífið
í lúkunum
Hvað segja
vinirnir
um makann
Tískan næsta
sumar
svindl ● lófalestur
Jón Gnarr:
▲
fylgir Fréttablaðinu dag
Hjartnæmt
hlutverk
birta
Uppstokkun eigna í
íslensku viðskiptalífi
VIÐSKIPTI Landsbankinn, undir for-
ystu Björgólfs Guðmundssonar,
hefur náð fullum yfirráðum yfir
Eimskipafélaginu. Samhliða því
tryggir Íslandsbanki sér Fjárfest-
ingarfélagið Straum. Gríðarleg
eignauppstokkun varð í gær þeg-
ar Íslandsbanki og Landsbanki
náðu samkomulagi um skiptingu
eigna sinna í Straumi og Eim-
skipafélaginu. Þar með náðist
lending í kapphlaupi sem hófst
með kaupum Samsonar og Lands-
bankans í Straumi. Samkomulagið
lá fyrir í gærmorgun en unnið var
að samningi í allan gærdag. Við-
skipti félaga tengdra viðskiptun-
um lágu niðri í allan gærdag.
Í hlut Lands-
bankans kemur
Eimskipafélagið
og dótturfélögin
Brim og Burðarás.
Ákveðnar eignir
Burðaráss koma í
hlut Íslandsbanka.
Bréf í bankanum
sjálfum og í Sjóvá-
Almennum falla
Í s l a n d s b a n k a -
megin og einnig
yfirráð yfir Flug-
leiðum. Sú ráð-
stöfun kom nokkuð á óvart, þar
sem talið var að Flugleiðir væru
eign sem nýir aðilar ásældust.
Samkvæmt heimildum var slíkt
ekki uppi á teningnum og áhugi
Björgólfs og Landsbankans
beindist frá upphafi að því að taka
á rekstri þeirra félaga sem þeir nú
ráða.
Hálfgert ógnarjafnvægi réði
ríkjum í Straumi eftir að fylking-
arnar höfðu tryggt sér um 37% í
félaginu hvor um sig. Leiðirnar
sem voru færar voru annað hvort
að vinna saman eða skipta eignun-
um. Seinni leiðin var farin í gær og
virðist hvor fylking um sig vera
nokkuð sátt við niðurstöðuna.
Íslandsbanki stefnir að því að
gera Sjóvá-Almennar að dótturfé-
lagi sínu. Sérfræðingar segja að
túlka megi niðurstöðuna sem varn-
arsigur Íslandsbanka miðað við
stöðuna eins og hún var við upphaf
átaka um Straum. Á hinn bóginn
hafi Björgólfi Guðmundssyni tek-
ist að rjúfa gróin eignatengsl í ís-
lensku athafnalífi sem hann boð-
aði. Niðurstaðan sé eins konar
stórmeistarajafntefli í flókinni
skák. Hugsanlegt er að fleiri leikir
verði leiknir á næstu dögum og
ekki útilokað að frekari átök verði
á milli bankanna. Vilji Lands-
bankamanna er að taka til í rekstri
Eimskipafélagsins og auka arð-
semina.
haflidi@frettabladid.is
Sjá nánar bls. 4
19. september 2003 – 226. tölublað – 3. árgangur
matur o.fl.
● til hnífs og skeiðar ● vín vikunnar
Bjarni Gunnar Kristinsson:
▲
SÍÐUR 24 og 25
Kjöt af
nýslátruðu
BANDARÍKIN Tugir þúsunda yfirgáfu
heimili sín í Norður-Karólínu og
Virginíu þegar fellibylurinn Isabel
gekk yfir austurströnd Bandaríkj-
anna í gær. Neyðarástandi var lýst
yfir víðast hvar í ríkjunum tveim-
ur og fólk hvatt til þess að halda
sig innandyra. Fyrirtækjum,
skólum og skrifstofum hins opin-
bera var lokað auk þess sem
almenningssamgöngur lágu niðri.
Vindhraði fellibylsins mældist
allt að 44 metrar á sekúndu þegar
hann gekk á land í Norður-Karólínu
seinnipartinn í gær. Rafmagn fór af
þúsundum heimila og vatn flæddi
um götur.
Veðurfræðingar gera ráð fyrir
því að fellibylurinn muni fara yfir
höfuðborgina Washington og Penn-
sylvaníu um helgina og fjara loks út
yfir Kanada á sunnudaginn. George
W. Bush Bandaríkjaforseti hefur
þegar yfirgefið Hvíta húsið og leit-
að skjóls í Camp David í Maryland.
Flugleiðir aflýstu síðdegisflugi
til Baltimore í gær og næturflugi
þaðan til Íslands vegna veður-
ofsans. Flogið var samkvæmt áætl-
un til Minneapolis og Boston. ■
Fellibylurinn Isabel fer yfir austurströnd Bandaríkjanna:
Neyðarástand í Virginíu
og Norður-Karólínu
ISABEL GERIR USLA Á AUSTURSTRÖNDINNI Chris Scarborough, 23 ára gamall íbúi í Kitty Hawk í Norður-Karolínu, skoðar bíl
sem fór á hliðina þegar fellibylurinn Isabel gekk yfir svæðið.
Hrifsaði peninga
og hljóp á brott:
Bankarán í
Íslandsbanka
BANKARÁN Bankarán var framið í
útibúi Íslandsbanka að Lóuhólum
2-6 í Breiðholti. Tilkynning um
atburðinn barst lögreglu rétt fyr-
ir klukkan þrjú og var strax haf-
in leit að ræningjanum. Var hann
vopnaður eggvopni en ekki lá
fyrir hversu miklum fjármunum
ræningjanum tókst að hafa á
brott með sér. Engan sakaði en
svo virðist sem að ræninginn hafi
stokkið yfir borð gjaldkera,
hrifsað peninga úr skúffu og
hlaupið á brott. Fjölmennt lög-
reglulið leitar mannsins, meðal
annars með hjálp leitarhunda. Að
sögn lögreglu er málið í rann-
sókn. ■
AP
/M
YN
D
Landsbankinn og Íslandsbanki náðu samkomulagi um eignir Straums og Eimskipafélagsins.
Björgólfur Guðmundsson og Landsbankinn ráða Eimskipafélaginu. Íslandsbanki ræður
Flugleiðum og Sjóvá-Almennum. Nýtt landslag blasir við í íslensku viðskiptalífi.
SKIPTING
EIGNA:
Íslandsbanki:
Sjóvá-Almennar
Straumur
Flugleiðir
Landsbankinn:
Eimskip
Brim
Burðarás
Marel
SH
Steinhólar
ÍSLANDSBANKI Í LÓUHÓLUM
Ræningi réðst inn í bankann laust fyrir
klukkan þrjú og hafði á brott fjármuni.
Hans er enn leitað.