Fréttablaðið - 09.10.2003, Side 1
Þingholt:
Bætur vegna
gangstéttar
SVEITARSTJÓRNIR Borgarráð hefur
samþykkt að greiða eigendum
fjögurra húsa við Lokastíg og
Baldursgötu samtals tæpar tvær
milljónir króna vegna breytinga á
lóðamörkum.
Lóðirnar fjórar ná allar út á
gangstétt sem borgin hefur lagt.
Samkvæmt nýju deiliskipulagi
mun lóðin undir gangstéttinni til-
heyra borginni. Yfirleitt ná lóðirn-
ar um tvo metra út á gangstéttina.
Samtals eru það 83 fermetrar sem
borgin hyggst greiða 1.917.000
krónur fyrir samkvæmt sam-
komulagi við eigendur lóðanna.
Þeir munu að sjálfsögðu njóta að-
gangs að gangstéttunum áfram. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 24
Sjónvarp 28
FIMMTUDAGUR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
Meðallestur fólks 25-49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
á fimmtudögum
80%
53%
23%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
MÁLSÓKN HÆPIN
Stjórn Rithöfundasam-
bandsins fjallaði í gær
um beiðni Hannesar
Hólmsteins Gissurar-
sonar um stuðning
vegna lokunar bréfa-
safns Halldórs Laxness.
Samkvæmt heimildum
eru forsendur fyrir mál-
sókn taldar hæpnar. Sjá síðu 2
SKÓLARNIR SAMEINAÐIR Bæjar-
stjórn Seltjarnarness hefur ákveðið að
sameina báða skóla bæjarins undir stjórn
eins skólastjóra. Nokkurrar óánægju hefur
gætt meðal starfsmanna og foreldra nem-
enda. Sjá síðu 2
KONUNGLEGT BRÚÐKAUP Fjöl-
menni fagnaði Friðriki, krónprinsi Dan-
merkur, og Mary Elizabeth, unnustu hans,
eftir að formlega var tilkynnt um trúlofun
þeirra. Þau ganga í það heilaga í maí á
næsta ári. Sjá síðu 4
SAUMAÐ AÐ RÁÐHERRA Stjórnar-
andstæðingar gerðu harða hríð að Árna
Magnússyni félagsmálaráðherra fyrir að
skerða kjör atvinnulausra. Hann svaraði því
til að heildarendurskoðun stæði fyrir dyrum
og gæti orðið til þess að bæta kjör þeirra
sem missa vinnuna. Sjá síðu 6
SÖGULEGUR FUNDUR Hluthafa-
fundur verður haldinn í Eimskipafélagi Ís-
lands í dag klukkan 18 í Súlnasal Hótel
Sögu. Fyrir fundinum liggja ýmis mál
tengd stórum eignabreytingum í Íslensku
viðskiptalífi. Þá liggur fyrir að skipt verður
um alla stjórn félagsins, en það hefur
ekki gerst áður í 90 ára sögu þess.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HVASST Í HÖFUÐBORGINNI Nokk-
uð snarpur vindur verður á vestanverðu
landinu. Hitatölur á uppleið. Rofar til í
borginni síðdegis. Sjá síðu 6
● draugagangur
Klaustur og veru-
leiki mannsins
ferðir o.fl.
Uppáhaldsborgirnar:
▲
SÍÐUR 24 & 25
notað verður nýtt ● módel.is
Sjúk
í köflótt
tíska o.fl.
Hera Hjartardóttir:
▲
SÍÐUR 22 & 23
9. október 2003 – 246. tölublað – 3. árgangur
Ríkið þarf að safna
kjarki og skera niður
Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands segir vaxandi út-
þenslu ríkisins alls ekki óhjákvæmilega. Hann vill sjá uppstokkun á
landbúnaðarkerfinu og afnám sjómannaafsláttar.
EFNAHAGSMÁL Í áætlun fjármála-
ráðuneytisins um ríkisbúskapinn
til ársins 2007 er gert ráð fyrir því
að heildartekjur ríkisins aukist
um 40 milljarða frá fjárlögum
næsta árs og verði tæpum 100
milljörðum hærri en árið 2000.
Samkvæmt spánni verða skatt-
tekjur ríkisins 34 milljörðum
hærri árið 2007 en gert er ráð fyr-
ir á næsta ári. Samt sem áður er
gert ráð fyrir því í spánni að
skattar verði lækkaðir um 20
milljarða króna á árunum 2005-
2007.
Þrátt fyrir þetta er gert ráð
fyrir því að ríkissjóður verði rek-
inn með halla árið 2007 þar sem
spáð er 7,4 milljarða króna halla á
lánsfjárafgangi. Þetta þýðir að
gert er ráð fyrir því að útgjöld
ríkisins eigi eftir að vaxa mikið til
ársins 2007.
Tryggvi Þór Herbertsson for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla Ís-
lands segir að
það sé alls ekki
óhjákvæmilegt
að útgjöld rík-
isins haldi
áfram að vaxa.
„Ríkið þarf að
safna í sig kjar-
ki og skera nið-
ur og taka til í
ríkisrekstrin-
um,“ segir
hann.
Honum þyk-
ir allt of mikill
þungi vera settur á peningamála-
stefnuna í þeirri viðleitni að halda
hagkerfinu í jafnvægi sem gæti
aukið hættu á verðbólgu.
Tryggvi segir að hið opinbera
hafi næg tækifæri til að skera nið-
ur ríkisútgjöld án þess að það
komi niður á velferðarkerfinu.
„Það er kominn tími til að um-
turna landbúnaðarkerfinu þar
sem menn fá vesældarlaun þrátt
fyrir að innflutningshöft og ríkis-
stuðningur kosti skattgreiðendur
mikið.“ Þá segir hann að sjó-
mannaafslátturinn sé barn síns
tíma og að hann beri að afnema.
Tryggvi vekur athygli á vexti í
heilbrigðiskerfinu og að brýnt sé
að skoða hvort ekki sé hægt að
finna leiðir til að hefta þann vöxt
og skera niður.
„Það er eitthvað verulega mik-
ið að í kerfi sem kostar þetta mik-
ið á sama tíma og aldurssamsetn-
ing þjóðarinnar er mun hagstæð-
ari fyrir kerfið en í öðrum OECD
löndum,“ segir Tryggvi.
kgb@frettabladid.is
FJÖLMENNI Í HÁSKÓLABÍÓI Troðfullt var í Háskólabíói í gærkvöldi þar sem SÁÁ efndi til fundar í tilefni af 26 ára afmæli sínu. Dag-
skráin var bæði á alvarlegum og léttum nótum, Þórarinn Tyrfingsson ávarpaði gesti og Örn Árnason kynnti atriði á gamansaman hátt.
Fjöldi listamanna kom fram og skemmti gestum á fundinum. Auk KK sem hér spilar komu þeir Magnús Eiríksson, Bubbi Morthens, Einar
Ágúst, Gunnar Óla og Hljómar fram.
● hefur ekki farið síðan sjónvarpið kom
Friðfinnur Sigurðsson:
▲
SÍÐA 38
Fyrsta sinn í
bíó í 33 ár
SJÁVARÚTVEGUR Sendinefndir Ís-
lands, Færeyja, Noregs, Rúss-
lands og Evrópusambandsins hitt-
ust á fundi í gær til þess að ræða
um stjórnun veiða úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum. Í frétta-
tilkynningu frá utanríkis- og sjáv-
arútvegsráðuneytisins segir að
fundi hafi lokið án samkomulags
og að ekki hefði nýr fundur verið
boðaður. Sátt var meðal fundar-
manna um að heildarveiði yrði
825 þúsund tonn á árinu 2004.
Að sögn Gunnars Snorra Gunn-
arssonar, ráðuneytisstjóra utan-
ríkisráðuneytisins, hafa Norð-
menn sett fram kröfu um að veiða
allt að 70% af heildaraflanum en
samkomulag hefur ríkt um að
þeir veiði tæplega 60%. Gunnar
Snorri segir að svo virðist sem
breytingar séu að verða á hegðun
stofnsins og hann sæki meira inn
í íslenska lögsögu nú en áður.
Þetta gæti haft í för með sér að
málstaður Íslands styrkist í við-
ræðum um skiptingu aflans. „Það
er vonandi að síldin hafi vit fyrir
Norðmönnum,“ segir Gunnar
Snorri. ■
Ekkert samkomulag um norsk-íslenska síldarstofninn:
Norðmenn vilja meiri síld
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Smámynt í gosbrunni:
Enginn á
peningana
RÓM, AP Hart er nú deilt um pening-
ana sem kastað hefur verið í Trevi-
gosbrunninn í Róm eftir að ítalskur
dómari vísaði frá ákærum á hendur
fátækri konu sem veiddi mynt upp
úr gosbrunninum.
Sett hefur verið upp skilti við
gosbrunninn þar sem skýrt er gefið
til kynna að það sé ólöglegt að fara
ofan í hann. Konan notaði heimatil-
búna veiðistöng til að ná smápen-
ingunum upp úr vatninu og hafði
því ekki brotið nein lög. Þó pening-
arnir hafi hingað til runnið til hjálp-
arstarfs kaþólsku kirkjunnar komst
dómarinn að þeirri niðurstöðu að
þeir tilheyrðu engum. ■
EIMSKIPAFÉLAGSHÚSIÐ
Myndi henta Kvennaskólanum vel.
Miðbærinn:
Kvennaskól-
inn í Eimskip
SKÓLAR Hugmyndir eru uppi um að
Kvennaskólinn fái inni í Eimskipa-
félagshúsinu við Pósthússtræti.
Starfsemi Kvennaskólans er nú
dreifð víðs vegar um miðbæinn og
þörf á nýju skólahúsi brýn:
„Við erum opnir fyrir öllum
hugmyndum sem blásið geta lífi í
miðbæinn,“ segir Björgólfur Guð-
mundsson, stjórnarformaður
Landsbankans og hæstráðandi í
Eimskipafélaginu.
Sjá nánar bls. 38.
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON
Segir þörf á að um-
turna landbúnaðar-
kerfinu og afnema
sjómannaafslátt.
VINSÆLL
STAÐUR
Trevi-gosbrunnur-
inn hefur verið
vinsæll áfanga-
staður ferða-
manna síðan sæn-
ska leikkonan
Anita Ekberg bað-
aði sig í honum í
kvikmynd Fellinis
„Hið ljúfa líf“.