Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 4
4 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
Heldurðu að Ásmundur Stefánsson
muni standa sig vel sem sáttasemjari?
Spurning dagsins í dag:
Hvenær selst Landssíminn?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
29%
51%
Nei
20%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Lögreglufréttir
BOGOTA, AP Að minnsta kosti
sex létust og á annan tug
slösuðust þegar bílsprengja
sprakk í miðborg Bogota,
höfuðborg Kólumbíu í gær-
morgun. Tveir hinna látnu
voru lögreglumenn.
Sprengjan sprakk í versl-
unarhverfi á háannatíma,
þegar fólk var að tínast til
vinnu sinnar. Íbúar hverfis-
ins höfðu látið lögreglu vita
af grunsamlegum bíl sem
stóð kyrrstæður í hverfinu
og sprakk sprengjan þegar lög-
reglan gætti að bílnum. Enginn
hefur lýst verknaðinum á hendur
sér.
Ódæðisverk sem þessi
hafa verið nokkuð tíð í Kól-
umbíu að undanförnu.
Vinstrisinnaðir skæru-
liðar hafa barist gegn
stjórnvöldum í þrjátíu og
níu ára borgarastyrjöld og
hafa að undanförnu fært
sig upp á skaftið. Mann-
skæðustu árásirnar voru í
febrúar. Þá fórust 36 og 160
særðust í sprengjutilræði
skæruliða byltingarhers
Kólumbíu í næturklúbbi í
Bogota.
Talið er að allt að 3.500 manns
hafi farist á hverju ári af völdum
borgarastyrjaldarinnar í landinu. ■
DANMÖRK Þúsundir manna söfnuð-
ust saman fyrir utan Amalien-
borg, aðsetur dönsku konungsfjöl-
skyldunnar í Kaupmannahöfn, til
að fagna Friðrik krónprins og
Mary heitkonu hans eftir að gefin
hafði verið út opinber tilkynning
um trúlofun þeirra. Friðrik og hin
ástralska Mary Elizabeth Donald-
son verða gefin saman í Frúar-
kirkjunni í Kaupmannahöfn 14.
maí næst komandi.
Margrét Þórhildur Dana-
drottning lagði blessun sína yfir
trúlofun sonarins á ríkisstjórnar-
fundi í Amalienborg í gærmorg-
un. Á hádegi gengu Friðrik og
Mary út á svalir hallarinnar til að
veifa til að taka við hamingjuósk-
um frá um 20.000 borgurum sem
safnast höfðu saman á hallartorg-
inu.
Parið kom fjórum sinnum út á
svalirnar en þrátt fyrir ítrekaðar
óskir viðstaddra um „alvöru trú-
lofunarkoss“ lét prinsinn það
nægja að kyssa unnustu sína á
höndina. Friðrik og Mary veifuðu
í kveðjuskyni áður en þau héldu
til Fredensborg-hallar þar sem
þau tóku á móti blaðamönnum.
Mary Donaldson, sem er 31
árs, er fædd og uppalin á áströl-
sku eynni Tasmaníu. Hún og Frið-
rik kynntust á Ólympíuleikunum í
Sydney árið 2000 en formleg til-
kynning um samband þeirra var
ekki gefin út fyrr en í febrúar á
síðasta ári. Um svipað leyti flutti
Mary til Kaupmannahafnar, fékk
vinnu hjá hugbúnaðarfyrirtækinu
Microsoft og hóf að sækja einka-
tíma í dönsku. Mary er með ástr-
alskt og breskt ríkisfang og til-
heyrir söfnuði öldungakirkjunnar
en hún verður nú að sækja um
danskan ríkisborgararétt og
ganga í evangelísku kirkjuna.
Friðrik prins er liðsforingi í
danska hernum og flotaforingi í
sjóhernum. Hann nam alþjóða-
samskipti í Harvard-háskóla og
útskrifaðist með meistaragráðu í
stjórnmálafræði frá Kaupmanna-
hafnarháskóla árið 1995. Friðrik
hefur meðal annars starfað hjá
Sameinuðu þjóðunum í New York
og danska sendiráðinu í París. ■
Bretar veðja á frama
Schwarzeneggers:
Næst í
Hvíta húsið
LONDON, AP Bretar veðja um ólík-
legustu hluti. Aðeins fáum
klukkustundum eftir að Arnold
Schwarzenegger sigraði í ríkis-
stjórakosningunum í Kaliforníu
tóku breskir veðbankar á móti veð-
málum um hugsanlegt forseta-
dæmi kvikmyndaleikarans.
Breskur karlmaður hefur veðj-
að 200 pundum eða 25.000 krónum
á að Schwarzenegger verði forseti
Bandaríkjanna.
Samkvæmt gildandi stjórnar-
skrá Bandaríkjanna getur
Schwarzenegger ekki orðið forseti
landsins þar sem hann er af er-
lendum uppruna. Bretinn bjart-
sýni er því að veðja á að Banda-
ríkjaþing breyti stjórnarskrá
landsins þannig að uppruni manna
hindri ekki forsetaframboð. Ef svo
fer vinnur Bretinn 100.000 pund
eða tæpar 13 milljónir króna. ■
Gengi deCODE:
Stöðugt við
fimm dali
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa í
DeCode Genetics, móðurfélagi Ís-
lenskrar erfðagreiningar, hefur nú
verið yfir fimm dölum á hlut í
nokkra daga. Gengið hækkaði
mjög í kjölfar tíðinda um uppgötv-
anir félagsins í tengslum við erfða-
valda offitu og heilablóðfalls.
Sérfræðingar á mörkuðum
segja að mikilvægt sé fyrir félög
að komast yfir fimm dala markið
því við það gengi verður hluthöf-
um kleift að fá veð gegn hluta-
bréfaeign í viðkomandi félagi.
Gengi DeCode endaði yfir fimm
dölum 23. september sl. í fyrsta
sinn síðan í lok maí árið 2002. ■
Bílsprengja í Bogota:
Sex létust og tólf særðust
ENN EITT TILRÆÐIÐ
Sérfræðingar kanna verksummerki eftir bíl-
sprengju í Bogota í gær. Árlega láta 3.500
manns lífið af völdum borgarastyrjaldar
sem geysar í Kólumbíu.
ALÞINGI Þegar heilbrigðisráðuneyt-
ið spurðist fyrir um það hjá sam-
tökum tannréttingarsérfræðinga
hvort einhver þeirra gæti tekið til
starfa á Austurlandi var svarið nei.
Þetta kom fram í svari Jóns Krist-
jánssonar heilbrigðisráðherra við
fyrirspurn Þuríðar Backman um
stöðu tannréttinga.
Þuríður spurði hvort tekist
hefði að ráða tannréttingarsér-
fræðinga um land allt. Jón svaraði
því til að sérfræðingarnir störfuðu
sjálfstætt. „Það er því alfarið und-
ir þeim sjálfum komið hvar þeir
starfa,“ sagði Jón og bætti því við
að einungis níu tannréttingarsér-
fræðingar væru starfandi hérlend-
is, allir á höfuðborgarsvæðinu.
Í ræðu sinni lagði Þuríður áher-
slu á að ferðakostnaður foreldra
barna og unglinga sem þyrftu að
leita langa leið til að fara í tann-
réttingar væri mikill og spurði
hvort ráðherra myndi fara þess á
leit við tryggingaráð að það endur-
skoðaði reglur sínar um ferða-
kostnað til að taka þátt í þessum
kostnaði. Heilbrigðisráðherra
sagðist þegar hafa gert þetta og
væri reiðubúinn að leita aukafjár-
veitingar ef svar tryggingaráðs
yrði jákvætt. ■
Tannréttingarsérfræðingar starfa allir á höfuðborgarsvæðinu:
Treysta sér ekki austur
JÓN KRISTJÁNSSON
Fékk á sig þrjár af átta fyrirspurnum
þingmanna í gær.
TRÚLOFUNARKOSSINN
Friðrik krónprins lét nægja að
smella kossi á hönd unnustu sinnar
þrátt fyrir að augljóst væri að viðstaddir
vonuðust eftir meiru.
Konunglegt
brúðkaup í maí
Friðrik krónprins ætlar að ganga að eiga unnustu sína Mary Elizabeth
Donaldson í dómkirkjunni í Kaupmannahöfn 14.maí. Margrét drottn-
ing og danska ríkisstjórnin hafa lagt blessun sína yfir trúlofunina.
NÝ FJÖLSKYLDUTENGSL
John Dalgleish Donaldson, faðir Mary,
og eiginkona hans Susan Moody, stóðu
með parinu á svölunum ásamt Friðrik
prins og Margréti Þórhildi drottningu.
Fjárfestingarfélagið
Kaldbakur:
Samherji
með 25%
VIÐSKIPTI Samherji hefur eignast
25% hlut í fjárfestingarfélaginu
Kaldbaki. Fyrir átti Samherji tæp
13%, Aukningin kemur að stærst-
um hluta frá eignarhaldsfélagi í
eigu aðaleigenda Samherja.
Eignarhald Kaldbaks verður
skýrara eftir þessi viðskipti.
Kaupfélag Eyfirðinga á 27% í fé-
laginu og er talið líklegt að hlutur
þess muni fara minnkandi á næst-
unni. Minni hluthafar í Kaldbaki
svo sem lífeyrissjóðir munu sam-
kvæmt heimildum fylgjast með
þróuninni og telja óheppilegt að
Samherji eignist of stóran hlut í
Kaldbaki. ■
TVÆR BÍLVELTUR Tveir bílar lentu
utanvegar og ultu við Héraðs-
vatnabrú á milli klukkan sex og
sjö á þriðjudagskvöld. Að sögn
lögreglunnar á Sauðárkróki slup-
pu ökumennirnir ómeiddir en bíl-
arnir er báðir taldir ónýtir.
VÖRUFLUTNINGABÍLL LENTI ÚT AF
Ökumaður missti stjórn á vöru-
flutningabíl í beygju við Norður-
árbrú í Skagafirði í fyrrinótt og
lenti utan vegar. Hann slasaðist
ekki en bíllinn er mikið skemmd-
ur. Unnið var að því fram á morg-
un að flytja vörur úr bílnum.
Læknavaktin:
Læknar
komu ekki
að máli
HEILBRIGÐISMÁL Í tilefni af umræðu
um veikindi og andlát barns úr
sjaldgæfri tegund heilahimnu-
bólgu í vor og frumskýrslu land-
læknis um málið, hefur Lækna-
vaktin sent frá sér tilkynningu.
Læknavaktin vill koma því á
framfæri að læknar vaktarinnar
komu hvergi að þessu alvarlega
og afdrifaríka máli og harmar
umfjöllun um drögin sem hún tel-
ur ótímabæra. ■
BJÖRGUN BÚKOLLU
180 tonna grafa var sótt til að ná
búkollu upp.
Vopnafjörður:
Búkolla fór
í sjóinn
SLYS Vörubíll, svokölluð búkolla
lenti út í sjó þegar kantur á brim-
varnargarði í Vopnafjarðarhöfn gaf
sig í gær. Bílstjórinn komst af
sjálfsdáðum úr bílnum og upp á
þurrt land. Hann sakaði ekki.
Að sögn lögreglunnar á Vopna-
firði varð óhappið þegar bílstjórinn
var að snúa bílnum til að geta sturt-
að af pallinum. Kanturinn á brim-
varnargarðinum gaf sig undan 50
tonna þungum bílnum sem rann í
sjóinn án þess að bílstjórinn fengi
neitt við ráðið. Bíllinn lenti á grynn-
ingu og stóð því hús bílsins og
helmingur pallsins upp úr sjónum.
Til að ná vörubílnum úr sjónum var
náð í 180 tonna gröfu í grjótnámu í
nágrenni Vopnafjarðar. ■
M
YN
D
/B
JAR
KI
Fíkniefni:
Fundust
við húsleit
FÍKNIEFNI Þrír menn á aldrinum 20
til 24 ára eru í haldi lögreglunnar á
Ísafirði eftir að fíkniefni, neysluá-
höld og peningar fundust í tveimur
húsleitum á þriðjudagskvöld.
Húsleitirnar voru framkvæmd-
ar að fengnum úrskurði Héraðs-
dóms Vestfjarða. Fjórir voru hand-
teknir en einum hefur verið sleppt
eftir að hafa viðurkennt að hafa
keypt fíkniefni af einum þeirra sem
eru í haldi.
Málið er rannsakað sem fíkni-
efnadreifingarmál og gefur lög-
regla hvorki upp tegund né magn
fíkniefnanna né hversu miklir pen-
ingar fundust í húsleitunum. ■
HVÍTA
HÚSIÐ
NÆST?
Breskir veð-
bankar eru
farnir að taka
við veðmál-
um þeirra
sem telja að
Schwarzeneg
ger eigi eftir
að enda í
embætti for-
seta Banda-
ríkjanna.