Fréttablaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 6
6 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
■ Leiðrétting
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75.95 -0.39%
Sterlingspund 126.15 -1.18%
Dönsk króna 12.06 -0.19%
Evra 89.6 -0.20%
Gengisvístala krónu 125,94 -0,18%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 257
Velta 5.169 m
ICEX-15 1.841 0,51%
Mestu viðskiptin
Landsbanki Íslands hf. 249.200.017
Fjárfestingarf. Straumur hf. 175.644.104
Grandi hf. 110.445.000
Mesta hækkun
Landssími Íslands hf. 4,31%
Tryggingamiðstöðin hf. 2,11%
Vinnslustöðin hf. 1,41%
Mesta lækkun
Vátryggingafélag Íslands hf. -1,59%
Grandi hf. -1,43%
SÍF hf. -1,11%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.606,8 -0,5%
Nasdaq* 1.890,1 -0,9%
FTSE 4.268,6 -0,1%
DAX 3.395,3 1,2%
NK50 1.326,4 0,1%
S&P* 1.034,8 -0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvaða breyting hefur orðið á hlutfalliframlaga Íslands til þróunarmála síð-
ustu ár?
2Hvað heitir fráfarandi fylkisstjóriKaliforníu?
3Hverjum er spáð sigri í Íslandsmótumkarla og kvenna í körfubolta?
Svörin eru á bls. 39
SVÍÞJÓÐ Saksóknari í Stokkhólmi
hefur farið fram á það að gæslu-
varðhald yfir Mijailo Mijailovic
sem grunaður er um að hafa myrt
utanríkisráðherrann Önnu Lindh,
verði framlengt til 24. október.
Mijailovic neitar enn sök og krefst
verjandi hans þess að hann verði
látinn laus.
Sænska lögreglan hefur fengið í
hendurnar niðurstöður úr DNA-
rannsókn á lífsýnum sem fundust á
morðvopninu. Niðurstöðurnar hafa
ekki verið gerðar opinberar en tals-
maður lögreglunnar segir að þær
styrki málið gegn Mijailovic.
Sænskir fjölmiðlar túlka þessa yfir-
lýsingu á þann veg að sýnin á hnífn-
um hafi komið heim og saman við
DNA Mijailovics.
Lögreglan hefur ekki lokið rann-
sókn málsins og því er ekki hægt að
gefa út ákæru á hendur Mijailovic
að svo stöddu. Að ósk verjanda
Mijailovics, Peter Althin, verður
hann dreginn fyrir dómara að nýju
í dag og farið yfir þau sönnunar-
gögn sem lögreglan hefur í hönd-
unum. Althin heldur því fram að
ekki séu forsendur fyrir því að
framlengja gæsluvarðhaldið. ■
Enginn ofsæll af
atvinnuleysisbótum
Stjórnarandstæðingar deildu hart á félagsmálaráðherra fyrir að skerða
rétt til bóta við upphaf atvinnuleysis. Hann sagði til greina koma að
hækka bætur og jafnvel að tengja þær fyrri launum fólks.
ALÞINGI „Vissulega er enginn of-
sæll á þeim atvinnuleysisbótum
sem við bjóðum upp á. Það er þess
vegna sem við ætlum að endur-
skoða kerfið,“
sagði Árni
Magnússon fé-
l a g s m á l a r á ð -
herra í lok um-
ræðu um at-
vinnuleysisbæt-
ur í fyrirspurnatíma á Alþingi í
gær. Stjórnarandstæðingar höfðu
sótt hart að honum fyrir að minn-
ka rétt atvinnulausra.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-grænna, hóf um-
ræðuna og furðaði sig á því að
fólk sem missti vinnuna fengi
engar atvinnuleysisbætur fyrstu
þrjá dagana. Hann rifjaði upp
stefnumótun á landsþingi Fram-
sóknarmanna síðasta vor um að
hækka ætti atvinnuleysisbætur.
„Á dauða mínum átti ég von, en
ekki því sem síðar birtist í fjár-
lagafrumvarpinu að það yrði
skerðing á atvinnuleysisbótum.“
Félagsmálaráðherra svaraði
ræðu Steingríms og sagði að á
næstu vikum myndi hann setja í
gang formlega vinnu við endur-
skoðun atvinnuleysisbóta. „Þar
kemur meðal annars til álita að
hækka bæturnar, að taka tillit til
launa einstaklings sem verður at-
vinnulaus og fleira.“
Stjórnarandstæðingar tóku til
máls hver á fætur öðrum. Sigur-
jón Þórðarson, Frjálslynda
flokkinum, sagði félagsmálaráð-
herra byrja störf sín undarlega
með því að ráðast að kjörum at-
vinnulausra. Kolbrún Halldórs-
dóttir, Vinstri-grænum, sagði
fyrirhugaðar breytingar sorgar-
tíðindi og Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Samfylkingu,
sagði kjör atvinnulausra svo
slæm að þeir þyrftu að leita til
hjálparstofnana og félagsþjónust-
unnar. „Veit hæstvirtur ráðherra
ekki að kjör atvinnulausra á Norð-
urlöndum eru snöggtum betri en
hér á landi?“ spurði Össur Skarp-
héðinsson, formaður Samfylking-
ar, í kjölfar orða ráðherra um að
með upptöku biðtíma við upphaf
greiðslu atvinnuleysisbóta væri
verið að færa kerfið til samræmis
við atvinnuleysisbótakerfin á
Norðurlöndum.
Lítið fór fyrir nærveru stjórn-
arþingmanna og varð það Magn-
úsi Þór Hafsteinssyni, varafor-
manni Frjálslyndra, að umræðu-
efni. „Hvers vegna flýja stjórnar-
þingmenn alltaf þegar koma upp
erfið mál.“ Einn stjórnarþingmað-
ur var eftir í salnum. Hjálmar
Árnason, Framsóknarflokki, og
þótti honum lítið til málflutnings
stjórnarandstæðinga koma.
brynjolfur@frettabladid.is
Borgarleikhús:
Ópera kostar
843 milljónir
SVEITARSTJÓRNIR Kostnaður við að
breyta Borgarleikhúsinu í 850 sæta
óperuhús nemur 843 milljónum
króna. Þetta er niðurstaða Verk-
fræðistofunnar VSÓ sem unnin var
fyrir Reykjavíkurborg.
VSÓ leggur til þrjár leiðir sem
eiga það sameiginlegt að minnka
hallann á salargólfinu og bæta við
svölum. Kostnaðurinn við að breyta
salnum þannig að hann taki 693
gesti er 367 milljónir króna en 422
milljónir fyrir 746 gesti. VSÓ segir
að viðbótarstofnkostnaður við fyrir-
hugað tónlistar- og ráðstefnuhús
yrði 1.700 milljónir ef gera ætti það
hæft til óperuflutnings. ■
41.560 kr.*
Sta›greitt á mann í tvíb‡li í 2 nætur á
Hotel Mount Royal.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
24
51
10
/2
00
3
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
Njóttu Edinborgar undir lei›sögn Kjartans
Trausta, hann er mættur á sta›inn.
Edinborg - fegursta borgin - ekki spurning.
Flogi› í beinu flugi til Glasgow og eki› til
Edinborgar.
*Innifali›: Flug, skattar,akstur til
og frá flugvelli, gisting m/morgunv.
og íslensk fararstjórn.
Ver› frá
Fyrir mistök var sagt frá því í
frétt í blaðinu í gær að lækka
ætti stöðumælasektir úr 1.500
krónum í 950. Hið rétta er að
samgöngunefnd Reykjavíkur hef-
ur ákveðið að beina þeim tilmæl-
um til borgarráðs að veita á ný
afslátt þeim sem greiða innan
þriggja daga frá útgáfu sektar.
GATNAMÓT VIÐ HVASSAHRAUN
Tvöföldun rúmlega 12 kílómetra kafla
er á áætlun.
Reykjanesbraut:
Tvöföldun
á áætlun
SAMGÖNGUR Jóhann Bergmann,
deildarstjóri yfir framkvæmdum
Vegagerðarinnar í Reykjanesum-
dæmi, segir vinnu við tvöföldun
Reykjanesbrautar ganga eftir áætl-
un.
Upphaflega var boðinn út 8,6
kílómetra kafli suður frá Hvassa-
hrauni í Hafnarfirði. Gerður var
viðbótarsamningur um 3,5 kíló-
metra. Þessum 12,1 kílómetra áfan-
ga að Strandarheiði á að vera lokið
1. desember á næsta ári. Jóhann
segir vinnuna um það bil hálfnaða.
Hönnun á framhaldi tvöföldunar-
innar allt til Reykjanesbæjar, um 12
kílómetra leið, er að verða lokið. Að
sögn Jóhann verður sú götulýsing
sem þegar er fyrir hendi við norð-
anverða Reykjanesbraut látin duga
fyrst um sinn fyrir hinn nýja tvö-
falda veg. Þó verði lýsing aukin í
kring um mislæg gatnamót. „Það
eru aðrir möguleikar í skoðun fyrir
framtíðina ef þetta reynist ekki
nóg,“ segir Jóhann. ■
SVÍAR SYRGJA
Þjóðarsorg ríkti í Svíþjóð í
kjölfar morðsins á utanríkis-
ráðherranum Önnu Lindh.
Ákæruvaldið óskar eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi:
Málið gegn Mijailovic styrkist
ÁRNI MAGNÚSSON FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
Hér er um að ræða þriggja daga skerðingu einu sinni á fimm árum sagði félagsmálaráð-
herra og fannst sem þingmenn misskildu breytinguna.
„Á dauða
mínum átti ég
von.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T