Fréttablaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 10
10 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI „Engin könnun hefur verið
gerð á áhrifum hvalveiða á ferða-
þjónustu á undanförnum vikum,“
svaraði Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra fyrirspurn Ástu
Ragnheiðar Jóhannesdóttur, þing-
manns Samfylkingar. Hann sagði
að næsta ár yrðu gerðar almennar
kannanir þar sem fram komi upp-
lýsingar um fjölmarga áhrifavalda
á val ferðamanna.
„Fjöldi erlendra ferðamanna
sem sóttu okkur heim í ágúst og
september eru verulega fleiri en
undanfarin ár,“ sagði Sturla og
bætti við að af því mætti ráða að
hrefnuveiðar hefðu ekki dregið úr
straumi ferðamanna hingað til
lands.
Magnús Þór Hafsteinsson, vara-
formaður Frjálslynda flokksins,
sagði reynsluna frá Noregi þá að
veiðarnar hefðu ekki áhrif að ráði.
Hann sagði þó of snemmt að segja
til um það hér. Ef áhrifin væru ein-
hver, sem hann efaðist um, kæmu
þau fyrst fram á næsta ári.
„Ég verð að segja að það er
ámælisvert að ferðamálaráðherra
hafi ekki gert neina könnun og virð-
ist ekki ætla að gera neina könnun á
því,“ sagði Ásta Ragnheiður og ít-
rekaði að ekkert væri vitað um
hver áhrifin væru. ■
Framkvæmdaráðið í Írak:
Vill ekki tyrkneskan her
ANKARA, AP Tyrkneska þingið sam-
þykkti að verða við beiðni Banda-
ríkjamanna um að senda allt að
10.000 manna herlið til friðar-
gæslu í Írak. Alls samþykktu 358
þingmenn að veita heimildina en
183 voru andvígir. Flokkur Erdog-
ans, forsætisráðherra Tyrklands
hefur 367 sæti af 550 í tyrkneska
þinginu. Trúlega hefur vegið
þungt að bandaríkjastjórn hefur
boðið Tyrkjum fjárhagsaðstoð
upp á 8,5 milljarða dollara eða
rúmlega 650 milljarða íslenskra
króna en aðstoðin er háð því að
Tyrkir taki þátt í uppbyggingar-
starfinu í Írak.
Almenningur í Tyrklandi hefur
mótmælt ákvörðun ríkisstjórnar
landsins og voru mótmælastöður
víða.
Framkvæmdaráð Íraks hefur
lýst efasemdum vegna samþykkt-
ar Tyrklands. Fulltrúi Kúrda í ráð-
inu segir framkvæmdaráðið hafa
hafnað því samhljóða að Tyrkir
sendu herlið til friðargæslu í Írak.
„Þetta er rangt og mun alls
ekki bæta ástandið í Írak,“ sagði
Mahmoud Othman, fulltrúi Kúrda
í framkvæmdaráðinu.
Óvíst er hver áhrif samþykkt
framkvæmdaráðsins hefur en
Pual Bremer, landsstjóri hefur síð-
asta orðið í þeim efnum. ■
Innkalla áfenga drykki:
Brotna í
höndunum
AMSTERDAM, AP Bacardi Martini
verksmiðjurnar í Hollandi hafa
innkallað hátt á annað hundrað
þúsund flöskur af drykknum
Breezer vegna galla í flöskunum.
Drykkurinn var nýlega markaðs-
settur í nokkrum löndum í 70 sen-
tilítra flöskum en mörg dæmi eru
um að flöskurnar hafi brotnað í
höndum neytenda við litla
hrifningu þeirra.
Að minnsta kosti 35.000 flöskur
með drykknum voru innkallaðar í
Belgíu og 50.000 til 100.000 flösk-
ur í Hollandi. Ekki er gefið upp
hve margar flöskur voru innkall-
aðar í Englandi.
Verslanir hafa verið hvattar til
að fjarlægja drykkinn þar til
vandamálið sem veldur því að
flöskurnar brotna svo auðveldle-
ga hefur verið leyst og flöskurnar
gerðar öruggari. ■
Matur í skólum:
Innheimta
má hærra
verð
MENNTAMÁL Fræðsluráði Reykja-
víkurborgar er heimilt innheimta
hærra gjald fyrir matarskammt
barna í fimmta bekk en innheimt
er fyrir matarskammta fjórða
bekkjar nema þrátt fyrir að mat-
arskammtarnir séu jafn stórir. Fé-
lagsmálaráðuneytið komst að
þeirri niðurstöðu eftir að hafa
kveðið upp úr um kæru frá for-
ráðamönnum Ingunnarskóla.
Matur nemenda í 1. - 4. bekk er
niðurgreiddur af borgaryfirvöld-
um en foreldrar barna í 5. - 7.
bekk greiða fullt gjald. Félags-
málaráðuneytið segir þetta í lagi
þar sem byrjað hafi verið að bjóða
heitan mat fyrir yngstu börnin en
matur fyrir eldri börnin tekinn
upp til að koma til móts við þau og
foreldra þeirra. ■
STÖÐVUM ÍRAKSSTRÍÐIÐ
Innrásarstríðið gegn Írak mætir mikilli andstöðu meðal Tyrkja. Ákvörðun Erdogans, forsæt-
isráðherra landsins um að senda allt að 10.000 manna herlið til Íraks olli miklu uppnámi
heima fyrir.
Fertugur maður
Eins árs
fangelsi
DÓMUR Síbrotamaður á fertugs-
aldri var dæmdur í eins árs fang-
elsi fyrir innbrot, þjófnað, skjala-
fals, eignarspjöll og ölvunarakst-
ur. Dómurinn var kveðinn upp í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Maður á þrítugsaldri sem átti þátt
í hluta málanna var dæmdur í sex
mánaða fangelsi. Þá var tvítug
stúlka dæmd í 30 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir ávísanafals.
Síbrotamaðurinn hefur hlotið
alls nítján refsidóma frá árinu
1983 meðal annars fyrir, brennu,
líkamsárás, þjófnað, fjárdrátt og
fíkniefnabrot. Dómurinn tók fyrri
brot til hegningarauka við. ■
Þingmenn ræddu áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu:
Áhrifin
ekki skoðuð
STURLA BÖÐVARSSON
Gerir almenna könnun á næsta ári en ekki
sérstaka könnun um áhrif hvalveiða.
Svonaerum við
NÝ FYRIRTÆKI Í LANDBÚNAÐI
1995 10
1996 21
1997 27
1998 22
1999 24
2000 40
2001 32
2002 81
Heimild: Hagstofan