Fréttablaðið - 09.10.2003, Page 11

Fréttablaðið - 09.10.2003, Page 11
11FIMMTUDAGUR 9. október 2003 Íslenski dansflokkurinn kynnir nýtt verk eftir hollenska danshöfundinn Lonneke van Leth, frumsamið fyrir Íslenska dansflokkinn. „The Match“ er landsleikur í knattspyrnu milli Íslands og Hollands með rífandi stemmingu og grípandi tónlist. Á efnisskránni er einnig verðlaunaverk Guðmundar Helgasonar, „Party“, og „Symbiosis“ eftir Itzik Galili. Sýningar: 9. (frumsýning), 12., 18. og 30. október, 2., 7. og 16 nóvember. Miðasala í Borgarleikhúsinu. Sími: 588 0900. Ísland – Holland í Borgarleikhúsinu BORGARMÁL Borgaryfirvöld neita að fjarlægja fimmtíu ára gamalt tré sem féll við íbúðarhúsnæði í Sigtúni í hvassviðrinu á þriðju- dagskvöldið. Anna Heiða Guðrúnardóttir garðyrkjufræðingur og íbúi í húsinu þar sem tréð féll segir að tréð vegi líklega um fjögur tonn. Það hafi fallið í bakgarði húss- ins og eyðilagt girðingu sem þar sé. Hún segist hafa hringt í garðyrkjustjóra Reykjavíkur- borgar og spurt hvort borgin gæti hjálpað til við að flytja tréð, en fengið þau svör að það gerði hún ekki þar sem tréð hefði staðið á einkalóð. Það sé í umsjá íbúa að sjá um umhirðu eigin lóða. Anna Heiða segist hafa orðið undrandi á þessu svari garð- yrkjustjóra því varla sé hægt að líta svo á að um almenna um- hirðu sé að ræða þegar tré falli í hvassviðri. Hún segist ekki vita hver kostnaðurinn sé við að fjarlægja tréð, en líklega sé hann þó nokkur. Ljóst sé að bæði þurfi krana og vörubíl við fram- kvæmdina, sem og töluverðan mannskap. „Við erum tvær sem búum í þessu húsi og svo virðist sem við verðum að borga þetta allt sjálf- ar,“ segir Anna Heiða. „Reyndar stendur borgin árlega fyrir vor- hreinsun og það er náttúrlega spurning hvort við neyðumst til að láta tréð liggja hérna í vetur og láta borgaryfirvöld síðan fjar- lægja tréð í vor.“ ■ FJÖGURRA TONNA GLJÁVÍÐIR FÉLL Í HVASSVIÐRI Anna Heiða Guðrúnardóttir og Fríða Kristín Gísladóttir, íbúar í Sig- túni, þurfa sjálfar að standa straum af kostnaði við að fjarlægja tréð. Borgin neitar gera það. Borgin fjarlægir ekki fjögurra tonna tré: Risagljávíðir féll í hvassviðri FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M MIÐAR VEL Gæslan æfir fallbyssuskot. Landhelgisgæslan: Halda sér í æfingu VARNARMÁL Skipverjar á varðskip- inu Ægi æfðu sig nýlega í að skjó- ta af fallbyssum skipsins. Byssur skipsins eru nokkuð gamlar en nothæfar. Í frétt frá Landhelgis- gæslunni segir að skipverjar hafi æft sig með því að skjóta á dunk sem komið var fyrir í hæfilegri fjarlægð. Í tilkynningunni segir að vel hafi gengið að hitta skotmarkið þótt skipverjar fái aðeins tvisvar á ári tækifæri til þess að þjálfa skothæfnina. ■ Ung móðir: Rænd við leikskóla RÁN Handtösku ungrar móður var rænt í gær er hún sótti barn sitt á leikskólann Grænuborg á Skóla- vörðuholti. Í töskunni voru ýmis verðmæti, lyklar og fleira. Alvar- legasta tjónið er þó að í töskunni var afsal af íbúð sem móðirin hafði fengið afhenta deginum áður. Að sögn föður konunnar var það unglingspiltur sem rændi töskunni en í vitorði með honum var ung stúlka. Móðirin hljóp stúlkuna uppi og tók lögregla hana til yfirheyrslu. Stúlkan veitti mikla mótspyrnu þegar hún var hlaupin uppi, sló frá sér og beit ungu móðurina. Faðir fórnarlambsins óskar eftir því að íbúar í grennd við Grænuborg fylgist með því hvort taska hafi verið skilin eftir ein- hvers staðar, svo sem milli garða eða í ruslageymslum. ■ Kringlan: Metaðsókn VERSLUN Um 450 þúsund manns lögðu leið sína í Kringluna í sept- ember, það er um 50 þúsund fleiri viðskiptavinir en á sama tíma í fyrra. Er þetta mesta aðsókn í septembermánuði frá opnun Kringlunnar árið 1987. Fjöldi við- skiptavina það sem af er árinu hefur aukist um 2% frá fyrra ári. Nýjar verslanir hafa opnað þar að undanförnu. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.