Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 12
12 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
■ Hafnarfjörður
RÚMENÍA, AP Yfirvöld í Rúmeníu
hafa slátrað rúmlega 100 svínum
og lokað fyrir viðskipti með svína-
kjöt í norðvesturhluta landsins
vegna skæðrar svínapestar sem
herjar á skepnurnar.
Pestin kom upp í síðasta mán-
uði í nágrenni borgarinnar Turda
en rúmlega 9.000 svín eru á svæð-
inu. Óttast er að slátra þurfi enn
fleiri skepnum.
Svínabændum í nágrenninu
hefur verið bannað að selja afurð-
ir sínar og þá hefur útflutningur
svínakjöts frá Rúmeníu verið
stöðvaður í bili. Rúmenar flytja
landbúnaðarafurðir einkum til ná-
grannalanda sinna, Búlgaríu,
Úkraínu og Ungverjalands.
Svínapest berst ekki í menn en
getur borist í aðrar skepnur, til
dæmis nautgripi og fugla.
Svínapest orsakar miklar inn-
vortisblæðingar og dregur skepn-
una til dauða á örfáum dögum.
Ekkert aðildarlanda Evrópu-
sambandsins flytur inn landbún-
aðarafurðir frá Rúmeníu en á því
kann að verða breyting eftir að
Rúmenía verður aðili að ESB árið
2007. ■
SJÁVARÚTVEGUR „Við vorum rúma
mílu frá landi þegar gúmmí-
barki af plógnum fór í skrúfuna.
Það var ekkert hægt að gera
nema henda út akkeri og bíða,“
segir Randver Sigurðsson, skip-
stjóri á Fossá ÞH 362, en óhapp-
ið varð um hálf sjö á þriðjudags-
kvöld. Björg Jónsdóttir ÞH 321
frá Húsavík kom skipinu til
hjálpar og tók það í tog til Seyð-
isfjarðar
Randver segir að upp úr
klukkan hálf átta hafi verið kom-
inn suðaustanátt, 12 til 15 metrar
á sekúndu. „Sjórinn var slæmur
og akkerið slitnaði upp. Okkur
rak beint að landi, þannig að við
hentum út öðru akkeri sem hélt.“
Um níuleytið var björgunar-
sveitin á Þórshöfn komin í fjör-
una og segir Randver að mjög
gleðilegt hafi verið að sjá ljósin
frá þeim. Á svipuðum tíma kom
trillan Digranes frá Bakkafirði
til að vera fjögurra manna
áhöfninni á Fossá til halds og
trausts. „Þeir biðu við hliðina á
okkur þar til Björgvin var búinn
að setja í okkur festar. Það var
glæsilegt,“ segir Randver.
Björg Jónsdóttir ÞH tók Fossá
ÞH í tog um ellefuleytið og fóru
með skipið til Seyðisfjarðar.
Randver segir að það hafi verið
svo vont í sjóinn að hvorki hafi
verið þorandi að fara inn í
Vopnafjörð né norður fyrir land-
ið. „Við héldum undan veðrinu og
ferðin austur gekk mjög vel.“
Fossá hélt heim til Þórshafnar
síðdegis í gær eftir að kafari
hafði losað barkann frá skrúf-
unni. Skipverjar bjuggust við því
að fara ekki aftur á veiðar fyrr
en um helgina en á Þórshöfn
þurfa þeir að fá nýjan gúmmí-
barka við plóginn og nýtt akkeri
í stað þess sem slitnaði frá.
Fossá hafði farið frá Þórshöfn
um klukkan ellefu á þriðjudags-
morguninn og var búin að vera á
veiðum í rétt rúma tvo tíma og
var komið með 30 til 40 tonna
afla þegar óhappið varð.
hrs@frettabladid.is
Geðræn vandamál
í Hafnarfirði:
Samráð
ekki nægt
HEILBRIGÐISMÁL Haukur Haralds-
son sálfræðingur segir stofnanir í
Hafnarfirði ekki vinna nægjan-
lega vel saman að því að finna og
nálgast börn og unglinga sem
þurfa aðstoð vegna geðrænna
vandamála.
Haukur lýsti þessari skoðun
sinni á fundi með forvarnarnefnd
Hafnarfjarðarbæjar. Í fundargerð
nefndarinnar segir að Haukur telji
skorta á eftirfylgni og stuðningi
eftir formlega meðferð. Vísir að
slíku hafi verið að þróast en meira
þurfi til. Samhæfingu og samráð
vanti milli stofnana. Það bitni á
börnunum. Ná þurfi til félagslega
einangraðra unglinga áður en
vandamál þeirra verði alvarleg. ■
Hokkaido skelfur enn:
Þrír skjálftar
yfir 6 á
Richter
TÓKÍÓ, AP Nokkrir snarpir jarð-
skjálftar riðu yfir Hokkaido í Jap-
an í gær. Sá sterkasti reið yfir
klukkan rúmlega 9 að íslenskum
tíma í gærmorgun og mældist
hann 6.3 á Richter. Engar fregnir
hafa borist af slysum á fólki og
eignatjón er ekki sagt mikið. Vís-
indamenn vara enn við stórum
skjálfta, á borð við þann sem skók
Hokkaido fyrir hálfum mánuði.
Þá slösuðust 700 manns. ■
Leikskólar í Hafnarfirði:
Fimm vikna
sumarlokun
SVEITARSTJÓRNIR Fræðsluráð Hafn-
arfjarðar vill að leikskólar bæjar-
ins verði lokaðir í fimm vikur á
sumrin næstu þrjú ár.
Gert er ráð fyrir tveimur fimm
vikna tímabilum á hverjum sumri
þannig að um helmingur skólanna
loki hvort tímabil. Fulltrúi foreldra
leikskólabarna á fundi fræðsluráðs
lýsti sig andvígan áformunum: „Í
ljósi könnunar sem gerð var í leik-
skólum Hafnarfjarðar mótmæli ég
lokun leikskólanna í fimm vikur og
myndi heldur vilja hafa þær fjór-
ar,“ bókaði fulltrúinn. Næsta sumar
hefjast lokunartímabilin 21. júní og
12. júlí. ■
Skæð svínapest í Rúmeníu:
Útflutningur
stöðvaður
SVÍNAPEST
Svínastofninn í norðausturhluta Rúmeníu
er í hættu vegna skæðrar svínapestar sem
geysar þar. Búið er að slátra yfir 100
skepnum en yfirvöld óttast að nauðsynlegt
geti reynst að slátra enn fleiri.
Fossá ÞH 362 rak að landi í vondu veðri eftir að gúmmíbarki lenti í skrúfu skipsins.
Björg Jónsdóttir ÞH 321 tók skipið í tog til Seyðisfjarðar þar sem losað var úr skrúfunni.
RANDVER SIGURÐSSON SKIPSTJÓRI
Randver segir að gleðilegt hafi verið að
sjá ljós frá björgunarsveitinni í fjörunni á
meðan beðið var hjálpar.
M
YN
D
/G
U
LL
I
LEIKFÉLAGIÐ FÆR LÆKJARSKÓLA
Leikfélag Hafnarfjarðar fær inni
í gamla Lækjarskóla eins og fé-
lagið vildi. Þetta segir þjónustu-
og þróunarráð Hafnarfjarðar í
samræmi við nýtingu skólans
sem mennta- og menningarset-
urs. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks
vill fá öll gögn varðandi samn-
inga við leikfélagið.
UNGLINGAR HEIMA Á KVÖLDIN
Ekki mun vera mikið um að ung-
lingar í Hafnarfirði séu á ferli ut-
andyra eftir að útivistartíma lýk-
ur. Slæmt veður og vel upplýstir
foreldrar eru taldar vera líklegar
skýringar að því er fram kom á
fundi fornvarnarnefndar Hafnar-
fjarðar.
Fossá bjargað
steinsnar frá landi
EITURLYFJABÁL
Fjöldi manna fylgdist með þegar íranska
lögreglan brenndi 40 tonn af ólöglegum
eiturlyfjum í Teheran. Um var að ræða
hluta af þeim fíkniefnum sem lagt hefur
verið hald á í Íran undanfarna
tólf mánuði.
FOSSÁ Í SEYÐISFJARÐARHÖFN
Fjögurra manna áhöfn Fossá komst heil og höldnu til Seyðisfjarðar.