Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 20
20 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
■ Andlát
Þýski auðkýfingurinn ÓskarSchindler lést á þessum degi
fyrir 29 árum, 66 ára gamall. Hon-
um er talinn hafa bjargað um 1200
gyðingum frá útrýmingarbúðum
Nasista. Sjálfur var hann í Nas-
istaflokknum og rak í skjóli þeirra
verksmiðju í Póllandi, eftir að
Þjóðverjar hertóku landið, og réði
að mestu til sín gyðinga úr gettó-
unum svokölluðu.
En svo ákváðu Nasistar að
tæma gettóin og koma gyðingun-
um fyrir kattarnef í útrýmingar-
búðum. Schindler framdi þá
hetjudáð sína og fékk yfirmenn
þýska hersins til að flytja gyðinga
sína í vinnubúðir sínar í Plaszov.
Og með því bjargaði hann þeim
frá útrýmingu en árið 1944 leit út
fyrir að fokið væri í flest skjól
fyrir Schindler og gyðingana hans
því herinn ákvað að flytja skyldi
alla gyðinga sem eftir voru í Pól-
landi til Auschwitz. Schindler tók
sig þá til og mútaði ýmsum máls-
metandi mönnum innan hersins
og fékk að lauma gyðingunum
1200 til Tékkóslóvakíu. Þar náði
hann að halda þeim við vinnu þar
til stríðinu lauk. En þá var hann
orðinn gjaldþrota.
Óskar Schindler var jarðaður
með kaþólskum hætti í Ísrael. ■
JOHN LENNON
Hefði orðið 63 ára í dag ef hann hefði lif-
að en þessi goðsögn lést 1980. Hann deil-
ir deginum með syni sínum, Sean Lennon,
sem fæddist 1975 og var því 5 ára þegar
pabbi hans dó.
9. október
■ Þetta gerðist
1813 Giuseppe Fortunino Frencesco
Verdi fæðist.
1855 Isaac Singer fær einkaleyfi fyrir
saumavélamótornum.
1963 2.000 manns farast í Norður Ítalíu
þegar stíflan Vaiont gefur sig.
1967 Che Guevara er tekinn af lífi af
bólívískum hersveitum.
1975 Andrei Sakharov fær friðarverðlaun
Nóbels af því að hann hannaði
vetnissprengju. Hann fékk ekki
leyfi frá yfirvöldum í Sovétríkjun-
um til að fara og taka við verð-
laununum.
1940 Dómkirkja Sankti Páls í London er
að hluta sprengd í loftárás þýska
flughersins.
1965 Yesterday með Bítlunum er á
toppi bandaríska listans.
1973 Priscilla Presley skilur við Elvis.
ÓSKAR
SCHINDLER
Bjargaði 1200 gyð-
ingum.
LIAM NEESON
Lék Óskar
Schindler.
Óskar Schindler deyr
ÓSKAR SCHINDLER
■ Maðurinn sem bjargaði 1200 gyðing-
um frá helför Nasista lést á þessum degi
fyrir 29 árum. Hann var gerður ódauðleg-
ur í kvikmynd Steven Spielberg, Listi
Schindlers.
9. október
1974
Í lyftu í vinnuna
Dagurinn í dag verður einshver annar dagur í vinnu en í
kvöld fæ ég að velja mér mat að
mínu skapi,“ segir Jóhannes Long
ljósmyndari sem á tvö ár í sextugt
í dag.
Jóhannes hefur boðið börnum
sínum þremur sem öll eru upp-
komin, barnabörnum og ömmun-
um tveimur í svínabóg með öllu
sem tilheyrir. Hann á allt eins von
á að fá eitthvað í afmælisgjöf því
á hans heimili tíðkast að gefa gjaf-
ir á af því tilefni. „Á mínu heimili
fær enginn að velja sér afmælis-
gjöf því við höldum sterkt í þá
hefð að halda leyndu hvað pakk-
arnir geyma og það kemur alltaf á
óvart. Við höfum gaman af þeim
sið og það sama gildir um jólin.
Það er því alltaf spenningur sem
fylgir því að taka upp pakka „ seg-
ir Jóhannes hlæjandi.
Jóhannes er ljósmyndari og
rekur eigin stofu við Ásholtið.
Hann býr í sama húsi og fer í
vinnuna með lyftu ólíkt flestum
öðrum. Hann segist átta sig á því
hvað hann hafi það gott þegar
hann þarf af einhverjum ástæðum
út í umferðina á morgnanna. „Það
er ótrúlega þæglegt að vinna í
sama húsi en við hjónin seldu hús-
ið okkar fyrir nokkrum árum og
fluttum í íbúð. Þess í stað eigum
við frístundahús undir Hestfjalli
í Grímsnesinu sem við sækjum
mikið. Ætli við séum ekki hundrað
nætur á ári þar. Við höfum ræktað
vel í kringum það og það kom okk-
ur á óvart hvað við höfum gaman
af að hokra í moldinni. Á þeim
sextán árum sem við höfum verið
þar höfum við náð upp miklum
gróðri, erum farin að grisja og
notum í eldinn.“
Á ljósmyndastofu Jóhannesar
er nóg að gera. Hann segist ekki
sérhæfa sig í neinu enda sé það
hæpið í litlu fyrirtæki. „Ég tek
að mér alls kyns verkefni,
mynda hluti fólk og það sem ég
er beðinn um hverju sinni,“ seg-
ir hann og játar að það sé alltaf
eitthvað um að fólk vilji fjöl-
skyldumyndatökur. „Stórfjöl-
skyldan lætur mynda sig saman
og fólk hefur mjög gaman af að
eiga þannig myndir. Sem betur
fer er það ekki horfið þrátt fyrir
tæknina sem gerir fólki kleift að
mynda sjálft heima en gæðin
verða aldrei þau sömu eins og
eftir fagmann í myndveri“ segir
Jóhannes Long ljósmyndari sem
þarf að drífa sig í að mynda alt-
aristöflu fyrir austan fjall. ■
Frá hugmynd
að fullunnu verki
Plötusmíði Hönnun: Gísli B.
HAUSTDAGAR
Í HÓLAGARÐI
9. 10. og 11. október.
Tilboð, vörukynningar og uppákomu
HÓLAGARÐUR
Lóuhólum 2-6
Þ. Ragnar Jónasson fræðimaður og fyrr-
um bæjargjaldkeri, Hlíðarvegi 27, Siglu-
firði, andaðist mánudaginn 6. október.
Baldur Einarsson Steinholti, Eskifirði,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 7. október.
Helga Jóhanna Þorsteinsdóttir Reyni-
hvammi, Garði, er látin.
Finndís Guðmundsdóttir frá Smyrlahóli,
Haukadal í Dalasýslu, lést laugardaginn
27. september. Útför hennar fór fram í
kyrrþey 6. október.
15.00 Margrét Jónsdóttir Hrafnistu,
Öldutúni 6, Hafnarfirði, verður jarðsung-
in frá Hafnarfjarðarkirkju.
HALLDÓR REYNISSON
Ný dögun, samtök um
sorg og sorgarviðbrögð,
verða með opið hús í
safnaðarheimili Háteigs-
kirkju í kvöld. „Þetta er
fyrir syrgjendur, sem fá
þarna tækifæri til þess
að tjá sig um líðan sína
og geta átt samtal við
aðra sem eru í svipuðum
sporum,“ segir séra Hall-
dór Reynisson, sem stýrir
umræðunum. Hann segir
þetta fyrirkomulag þó
varla henta fólki strax
eftir áföll heldur frekar
þegar lengra er liðið. „Þá
virkar þetta eins og
stuðningshópur.“
■ Jarðarfarir
Afmæli
JÓHANNES LONG
■ Hann nýtur þeirra forréttinda að þurfa
ekki út úr húsi í vinnu. Hann einfaldelga
stígur upp í lyftu og lætur hana færa sig
á milli hæða til vinnu.
JÓHANNES LONG LJÓSMYNDARI
Hann fær að velja matinn í kvöld og býður til sín ömmunum tveimur,
börnum og barnabörnum.
REIÐSKÓLINN ÞYRILL
Reiðnámskeið
hefst 14/10
Byrjenda- og framhaldsnámskeið
fyrir börn og fullorðna
Innritun
í síma
899 4600 Bjarni
588 7887 Freydís