Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 21
Um helgina, nánar tiltekið ásunnudag á milli 10-16 verður
haldin á vegum Al-Anon samtak-
anna á Íslandi sporamessa í hús-
næði Domus Vox, Skúlagötu 30
annari hæð.
„Við stöndum fyrir þessari
sporamessu vegna þess að það eru
svo margir innan samtakanna sem
sótt hafa fundi í áraraðir en aldrei
farið í sporin og unnið þau,“ segir
nafnlaus Al - Anon maður sem eðli
málsins samkvæmt getur ekki tal-
að undir nafni enda nafnleyndin
þeim ákaflega mikilvæg.
Hann segir að á þessum fundi
tali svokallaðir spekerar um
reynslu sína en inn á milli sé orðið
gefið laust. „Sporin eru tólf og þeir
sem tala eru einnig tólf. Það er
mjög mikilvægt í þessari vinnu að
fara vel í sporin og vinna þau,“ seg-
ir hann og bætir við að mjög hafi
fjölgað innan Al-Anon samtakanna
á síðustu árum. „Það hefur orðið al-
gjör sprenging og til marks um það
fór ég á fund um daginn sem fyrir
ári síðan sóttu um það bil 20 manns
en á núna mættu hátt í hundrað
manns, bæði karlar og konur.“
Talsmaðurinn bendir á að nú séu
starfandi deildir sem eingöngu eru
fyrir karla en það taldist til tíðinda
ef karl sást á Al-Anon fundi fyrir
um það bil tíu árum. Síminn hjá
samtökunum er 5519282 og þar er
hægt að leita upplýsinga. ■
21FIMMTUDAGUR 9. október 2003
■ Afmæli ■ Nýjar bækur
■ Tilkynningar
Fundir
AL-ANON
■ Aðstandendasamtök alkahólista á Ís-
landi standa fyrir sporamessu fyrir þá
sem vilja kynna sér sporin.
Körlum fjölgar mikið í Al-Anon
Ódýri
Sportmarkaðurinn
Opið virka daga kl. 14.00 til 20.00
Opið um helgina kl. 13.00 til 18.00
Lagersala!
Öll helstu merkin á frábæru verði!
Gríptu tækifærið - gerðu góð kaup í sportfatnaði.
Fellsmúla
Skór
Sundfatna
ður
Sportfatna
ður
Hversdags
fatnaður
Vetrarfatn
aður
Eróbikfatn
aður
Nýjar vörur!
Dæmi: Flíspeysur 2.990 kr.
Síðasta
helgin
Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður
er sextug í dag. Hún ætlar að hafa opið hús
og gleðjast í hópi vina og ættingja að Salar-
vegi 2, Kópavogi, á milli 17-21 í dag.
Steinar S. Waage fyrrverandi skókaupmaður,
71 árs.
Lára Margrét Ragnarsdóttir fyrrum alþingis-
maður, 56 ára.
JPV útgáfa hefursent frá sér hina
vinsælu sjálfsræktar-
bók Dale Carnagie,
Lífsgleði njóttu. Þóra
Sigríður Ingólfsdóttir
þýðir bókina en hún
fjallar um áhyggjur sem snerta líf
okkar allra, eins og segir í tilkynn-
ingu frá útgefanda. Í bókinni er að
finna gagnlegar leiðbeiningar um
hvernig megi sigrast á áhyggjun-
um áður en þær sigra þig.
Einnig hefur JPV sent frá sérbókina Betra sjálfsmat eftir
Nathaniel Branden og er hún
sömuleiðis í þýðingu
Þóru Sigríðar. Þar er
að finna traustar að-
ferðir til að efla
sjálfsvirðinguna og
styrkja sjálfstraust-
ið. En samkvæmt
Nathaniel hefur sjálfsmyndin af-
gerandi áhrif á lífshlaup okkar,
vinnu, ástamál, foreldrahlutverk
og árangur í lífinu. ■
Fréttablaðið býður lesendumað senda inn tilkynningar um
dánarfregnir, jarðarfarir, af-
mæli eða aðra stórviðburði. Tek-
ið er á móti tilkynningum á tövu-
póstfangið tilkynning-
ar@frettabladid.is. Ef óskað er
eftir jarðarfarar- eða andlát-
sauglýsingu má senda texta í
slíkar auglýsingar á auglysin-
gar@frettabladid.is. ■
EDDY OG HENRY
Frank Stallone afgreiðir hér
fyllibyttuna Mickey Rourke en myndin
er úr kvikmyndinni Barfly sem fjallar
um alkahólisma og áhrif hans.