Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 22
tíska o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur t ísku Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: tiska@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. hársverði? BIO+ fæst á hársnyrtistofum og í apótekum. Vandamál í • psoriasis • exem • flasa • skán • hárlos • kláði • feitur hársvörður lausnin er BIO+ hársnyrtivörur frá Finnlandi Það eru nokkrar flíkur sem mérdetta í hug en þær eru allar á Nýja-Sjálandi,“ segir Hera Hjart- ardóttir söngkona þegar hún er spurð um uppáhaldsflíkina sína. „Ég er voða lítil tískumanneskja og geng bara í því sem mér finnst þægilegt eða því sem ég hef saumað sjálf. Ég hef líka málað á föt og mér finnst mjög gaman að leika mér með líkamsmálningu,“ segir Hera en hún málar sig alltaf með munstri í framan þegar hún syngur opinberlega. Hera segist helst geta nefnt rauðan köflóttan kjól sem hún keypti á Íslandi og var í á tónleik- um með Nick Cave. „Þetta er fyrs- ta merkjaflíkin sem ég kaupi,“ segir Hera en kjóllinn er frá Dolce og Gabbana. „Mér fannst liturinn bara svo flottur og kjóll- inn var köflóttur. Ég er sjúk í köflótt og hef greinilega verið frá því ég var innan við eins árs göm- ul því nýlega fann ég mynd frá fyrstu jólunum mínum og þar er ég í mjög svipuðum kjól.“ Eftir dálitla umhugsun segist Hera einnig geta nefnt skó sem amma hennar gaf henni. „Þetta eru eldgamlir Mary Poppins skór, með kraga, pinnahælum og blóm- um. Þeir eru æðislegir,“ segir Hera. Hún segist lítið fara eftir regl- unum þegar hún saumar á sig föt. „Í fyrsta skipti sem ég saumaði eitthvað fór ég inn í búð og bað um efni til að sauma gallakjól. Konan spurði mig hvaða munstur ég ætlaði að nota en ég sagðist bara ætla að leggjast á efnið og teikna í kring. Hún var viss um að það væri ekki hægt þan- nig að ég fór sérstaklega til að sýna henni kjólinn þegar ég var búin að sauma. Hann var r e y n d a r s v o l í t i ð skakkur en gekk al- veg, var bara per- sónulegri f y r i r v i k i ð , “ s e g i r H e r a . Hún er nú að gefa út geisla- disk sem heitir Hafið þennan dag. Á honum eru lög eftir hana sjálfa, Bubba, KK og Megas og eru textarnir allir á ís- lensku. Diskurinn kemur út 3. nóvember og verða útgáfu- tónleikar á NASA þann 13. nóvember. ■ MODEL.IS Er heiti á nýrri umboðsskrifstofu sem kyn- nti starfsemi sína á dögunum. Markmiðið er að auðvelda auglýsingastofum, kvik- myndafyrirtækjum og öðrum stórfyrirtækj- um að finna réttu andlitin til að auglýsa vörur eða þjónustu. Einnig geta fyrirtæki ráðið til sín aðra aðila eins og ljósmynd- ara, förðunar- og hárgreiðslufólk og stílista í gegnum vefsetur Model.is. Uppáhaldsflíkurnar: Sjúk í köflótt HERA HJARTARDÓTTIR Í skóm sem amma hennar gaf henni. Corselett frá kr. 3.990 Undirfatasett frá kr. 2.990 Mjaðma blúndu boxer. Verð aðeins kr. 1.390 Sjáumst! S. 588 5575 - Nýr Glæsibær COS SÍMI 5813665 VORUM AÐ FÁ MIKIÐ ÚRVAL AF CASIO ÚRUM Aðhaldsbuxur St.: S - M - L -XL - XXL Litir: Ljósar, húðlitar og svartar. Verð kr. 3.500 Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum v/Faxafen) s. 568 2560 Fást eingöngu í www.brudarkjolaleiga.is tíska gæði betra verð www.hm.is Cha★Cha Hallveigarstíg 1, sími 588 4848 ÚTSALA ÚTSALA Haustútsala byrjar í dag Bolir frá 500 kr Buxur frá 1900 kr og margt fleira.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.