Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 09.10.2003, Qupperneq 25
25FIMMTUDAGUR 9. október 2003 ■ Út í heimGistiheimili Halldóru: Upplýsingar á netinu Það láðist að segja frá því í fréttum Gistiheimili Halldóru sem birtist á ferðasíðum í síðustu viku hvernig hægt væri að leita nánari upplýsinga um gistingu þar. Heimasíða gisti- heimilisins, sem er rekið af ís- lenskum mægð- um, er www.gistiheimilid.dk. Þar er hægt að lesa um gistiheimilið og skoða myndir af því. Símanúmerið er 0045 3677 8886, faxið er 0045 3677 5806, og farsím- ar eru 0045 2460 9552 og 0045 4083 0047. ■ Það eru nokkrar borgir sem égheld mikið upp á en þær eru mjög ólíkar svo það fer eftir skapi hvers dags hvað kemur fyrst í hugann. Ég er líklega oftast í skapi fyrir einhverja af borgum Ítalíu en í dag eru það þó borgir lengra í burtu sem mig langar til, Kyoto í Japan og Jerúsalem í Palestínu,“ segir Jón Ormur Hall- dórsson dósent við Háskólann í Reykjavík. „Kyoto er mestan partinn ósköp venjuleg japönsk borg en þar eru hins vegar nokkur klaust- ur í Zen búddískum sið og við þrjú þeirra eru garðar sem eru galdri líkastir. Þegar ég sá einn þeirra í fyrsta sinn fékk ég hreinlega tár í augun og kökk í hálsinn. Sumir lesa skýrari svör við spurningum tilverunnar út úr þessum görðu- m en hægt er að orða í bókum. Í gömlu borginni í Jerúsalem vakna líka stóru spurningarn- ar en þar eru hins vegar fleiri svör. Það þekkja allir hvað þessi borg hefur að geyma en göngutúr frá hvelfingunni yfir klettin- um á musterishæðinni, um Via Dolorosa að Golgata getur varla gleymst. Tvær aðrar borgir sem alltaf toga í mig eru Bombay á Indlandi og Jakarta í Indónesíu. Mannlífið í þessum risa- borgum er svo yfir- þ y r m a n d i og svo óhugnanlegt, stórkostlegt og margbreytilegt í senn að vilji menn skilja veruleika mannsins á okkar tíma geta þeir óvíða lært jafn- hratt og þar. Þ æ g i l e g a s t a borgin sem ég hef búið í er hins vegar Haag í Hollandi. Þar virkar allt svo vel að bíllinn rykfellur hjá manni.“ ■ Nú þegar skuggsýnt er orðið ákvöldin, hefur Guðmundur Tyrfingsson ehf á Selfossi opnað sérstakt Draugasetur á Stokks- eyri. Þar er hægt að ferðast eftir draugaslóð í myrkum vistarver- um, hitta ýmsa drauga og hlýða á frásagnir af þeim. Þarna er líka að finna sérstakan drauga- bar og veitingaaðstöðu. G.Tyrfingsson hóf að bjóða upp á rútuferðir með leiðsögn um draugaslóðir í Flóanum fyrir um þremur árum síðan og hefur farið í yfir 130 draugaskoðunarferðir við miklar vinsældir. Draugasetrið verður fyrst um sinn opið fyrir hópa eftir pöntun- um, en almennir opnunartímar eru ráðgerðir síðar. ■ BEINAGRIND Býður þess að hrella gesti Draugaseturs. HÓLMRASTARHÚSIÐ Þar búa draugar í sambýli við ýmis önnur fyrirtæki. JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Margar ólíkar borgir í uppáhaldi. Stokkseyri: Draugasetur opnar Uppáhaldsborgirnar: Klaustur og veruleiki mannsins NETTILBOÐ TIL BÚDAPEST Úrval Útsýn bjóða nettilboð til Búdapest 10. október í þrjár nætur frá 39.840 kr. Síðustu sætin til sölu með 10.000 kr. afslætti á mann. Miðað við gistingu á Hótel Novotel Centrum. Verð 45.400 - 10.000 kr. + 4.220 kr. skattar = 39.840 kr. á mann í tvíbýli með morgunverði. Innifalið er flug, flugvallaskattar, gisting með morgunverði og ís- lensk fararstjórn. HELGARFERÐ TIL PORTÚGAL Terra Nova-Sól bjóða síðustu sætin í helgarferð í sólina á Portúgal 17. október. Tilvalið tækifæri til að slappa af og framlengja sumarið um eina helgi. Verð fyrir 2-4 saman í íbúð í fjórar nætur 32.900. Innifalið er flug, gisting, ferð- ir til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og flugvallaskatt- ar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.