Fréttablaðið - 09.10.2003, Page 30
30 9. október 2003 FIMMTUDAGUR
MÆTTUR TIL LEIKS
Sol Campbell varnarmaðurinn snjalli hjá
Arsenal æfir nú með enska landsliðinu.
Hann hefur ekki leikið með Arsenal í síð-
ustu leikjum þar sem faðir hans lést fyrir
skömmu.
Fótbolti
Rudi Völler um leikinn:
Leika ekki upp á jafntefli
FÓTBOLTI Rudi Völler landsliðsþjálf-
ari Þýskalands segir lið sitt eiga
góða möguleika á að tryggja sér
sæti í lokakeppni Evrópumótsins á
laugardag þegar Þjóðverjar mæta
Íslendingum á AOL-vellinum í
Hamborg. Þjóðverjar eru með
fimmtán stig í 5. riðli undankeppn-
innar og nægir jafntefli til að tryg-
gja þeim sæti. Völler varar þó við
því að leika upp á jafntefli.
„Íslendingar eiga enn mögu-
leika og vita af því. Við verðum að
eiga frumkvæðið strax frá byrj-
un,“ sagði þýski landsliðsþjálfar-
inn á blaðamannafundi í gær. „Ís-
lendingar eru mjög þéttir og spila
sterka vörn. Við þurfum að reyna
að brjóta vörn þeirra aftur án þess
að gleyma okkur í vörninni.“
Völler segir þýsku leikmennina
hafa náð að spila vel úr þeirri pres-
su sem þeir lentu í eftir marka-
laust jafntefli við Ísland í fyrri leik
þjóðanna. Þjóðverjar hefðu unnið
Skota 2-1 og hann vonast til að end-
urtaka leikinn gegn Íslendingum í
Hamborg. Þrír leikmenn Þjóð-
verja gátu ekki tekið þátt í æfingu
liðsins í gær, þeir Michael Ballack,
Carsten Ramelov og Bernd
Schneider. Þeir verða þó væntan-
lega klárir í slaginn á laugardag. ■
Langþráður
draumur
sem rættist
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stef-
ánsson skoraði tvö stig í
sínum fyrsta leik með
Dallas Mavericks sem sigr-
aði Orlando Magic 99-89 í
æfingaleik í fyrrinótt.
„Þetta var frábært og
mikil upplifun. Langþráður
draumur sem rættist - að fá
að sprikla með þessum
stjörnum,“ sagði Jón Arnór
þegar Fréttablaðið náði tali
af honum í gær. Jón Arnór
segir leikinn þó ekki hafa
verið jafn erfiðan og hann
bjóst við: „Þetta var körfu-
bolti eins og hann er - bara
betri spilarar. En þetta var
rosalega gaman.“
Jón Arnór kom inn á fyr-
ir Steve Nash þegar um
fimm mínútur voru liðnar
af þriðja leikhluta og lék í
átján mínútur, þar af allan
fjórða leikhluta. Körfu-
boltakappinn ungi skoraði
tvö stig úr átta skottilraun-
um, tók tvö fráköst og gaf
eina stoðsendingu. Hann
fékk einnig dæmdar á sig
þrjá villur.
Don Nelson, þjálfari
Dallas, var ánægður með
nýliðana í liði Dallas í lok
leiks. Spurður um Jón Arn-
ór sagði Nelson: „Hann
gerði góða hluti en er samt
ekki tilbúinn. Hann veit
það og við líka. Mér líst vel á hann.
Hann er duglegur, sterkur og á
eftir að verða góður leikstjórn-
andi.“
Jón Arnór er sáttur við sinn
hlut í leiknum gegn Orlando. „Ég
var hrikalega stressaður þegar
ég kom inn á en kom vel frá
þessu. Áhorfendur tóku mér líka
vel þannig ég er ánægður.“
Næsti leikur Dallas verður
gegn New Orleans Hornett á
laugardag. Jón Arnór býst við að
fá að spreyta sig á ný. „Fyrir
fyrsta leikinn sagði Don að við
nýliðarnir myndum ekki fá að
spreyta okkur heldur ættum að
fylgjast með. Við áttum að fá
séns í næsta leik sem við fengum
og stóðum okkur vel þannig að
við fáum að spila næstu leiki.“
Sextán leikmenn eru eftir í
æfingabúðum hjá Dallas en að-
eins fimmtán leika með liðinu í
vetur. „Það þarf einn að fjúka í
viðbót,“ sagði Jón Arnór hlæj-
andi og telur möguleika sína á
áframhaldandi samningi við
Dallas góða. „Ég er jákvæður á
framhaldið og þarf að halda
áfram að gera það sem ég er að
gera og ætla mér að komast í lið-
ið.“
kristjan@frettabladid.is
Hermann og Rúnar:
Tóku ekki
þátt í æfingu
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson og
Hermann Hreiðarsson tóku ekki
þátt í æfingu íslenska landsliðsins
í gær. Pétur Hafliði Marteinsson
var hins vegar með og komst
klakklaust í gegnum æfinguna.
„Við ákváðum að hvíla Rúnar
og Hermann en þeir taka væntan-
lega þátt í næstu æfingu,“ sagði
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum í gær en næsta æfing verð-
ur í dag.
Logi segir mikinn hug í íslenska
landsliðshópnum enda leikurinn
við Þjóðverja einstakt tækifæri
fyrir íslensku leikmennina. ■
Jón Arnór Stefánsson fékk eldskírn sína með
Dallas Mavericks í fyrri nótt. Skoraði tvö stig
og þótti standa sig vel. Draumur sem rættist
segir Jón Arnór og er bjartsýnn á framhaldið.
HART BARIST
Tyronne Lue leikmaður Orlando Magic reyn-
ir hér að komast að körfu Dallas Mavericks
en Dirk Nowitzki reynir að stöðva hann
JÓN ARNÓR
STEFÁNSSON
Skoraði tvö stig
fyrir Dallas úr
átta skottilraun-
um í fyrsta leik
sínum með
Dallas Mavericks.
Gæti endað í
NBA-deildinni.
FÓTBOLTI Bryan Robson, fyrrum
fyrirliði enska landsliðsins, hefur
tekið við þjálfun nígeríska lands-
liðsins í knattspyrnu. Robson
samdi til sex mánaða og mun
stjórna Nígeríu fram yfir Afríku
keppnina sem fram fer í Túnis í
janúar. Samningurinn verður end-
urskoðaður eftir keppnina .
Robson hefur átt í viðræðum
við nígeríska knattspyrnusam-
bandið frá því í ágúst. Hann þjálf-
aði Middlesbrough í ensku úrvals-
deildinni með slökum árangri og
var sagt upp störfum í júní árið
2001. Hann hefur verið atvinnu-
laus síðan.
Robson tók þátt í þremur
heimsmeistaramótum, árin 1982,
1986 og 1990. ■
Bryan Robson:
Þjálfar Nígeríu
hvað?hvar?hvenær?
6 7 8 9 10 11 12
OKTÓBER
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 KFÍ og Haukar leika á Ísafirði
í INTERSPORT-deildinni í körfubolta.
19.15 KR mætir Breiðabliki í DHL-
höllinni í INTERSPORT-deildinni í körfu-
bolta.
19.15 Tindastóll og Snæfell keppa
á Sauðárkróki í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 Þór fær ÍR í heimsókn til Þor-
lákshafnar í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 Keflavík og Grindavík keppa
í Keflavík í 1. deild kvenna í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
16.45 Handboltakvöld á RÚV.
18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
18.30 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West World) á Sýn.
16-LIÐA ÚRSLIT
BIKARKEPPNI KVENNA:
Úrslit:
FH - Valur 19-18
Grótta/KR - Víkingur 27-21
Fylkir/íR - KA/Þór 31-28
RUDI VÖLLER
Ætlar ekki að leika upp á jafntefli gegn Ís-
lendingum á laugardag.