Fréttablaðið - 17.10.2003, Síða 10
w w w . p a r k e t . i s
Krókhálsi 4 • 11 Reykjavík
Sími 567 1 1
H A R Ð V I Ð A R V A L
Gengið inn að ofanverðu
Parket, plastparket, listar,
hurðir og flísar
hæð2.
9 %
ALLT AÐ
AFSLÁTTUR
ei
n
n
t
v
ei
r
o
g
r
ír
2
8
7.
0
18
AFGANGASALA
Í HARÐVIÐARVALI
!
10 17. október 2003 FÖSTUDAGUR
Þingmenn úr öllum flokkum sameinast um frumvarp:
Áfengiskaupaaldur rýmkaður
STJÓRNMÁL 18 og 19 ára einstak-
lingar geta keypt léttvín og bjór
ef lagabreytingartillaga 16 þing-
manna úr öllum flokkum nær
fram að ganga.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingar og fyrsti
flutningsmaður frumvarpsins,
segir tilganginn með frumvarpinu
fyrst og fremst þann að samræma
réttindi og skyldur ungmenna.
„Þau hafa fengið öll réttindi nema
þessi við 18 ára aldurinn. Þau ráða
sjálf öllum sínum persónulegu
högum. Þau hafa sjálfræði og
fjárræði, þau geta tekið bankalán
og orðið ábyrgðarmenn að skuld-
bindingum. Þeim er treyst fyrir
greiðslukortum og þeirri ábyrgð
sem fylgir giftingu og uppeldi
barna. Unga fólkið má fara inn á
staði sem selja áfengi, má af-
greiða áfengi á slíkum stöðum en
það má ekki neyta þess sjálft eða
kaupa það.“
„Það er sérkennilegt að áfeng-
isvandamál eru óvíða meiri en hér
þó það sé miðað við áfengiskaupa-
aldur 20 ára,“ segir Jóhanna og
telur að breytingin hafi ekki nei-
kvæð áhrif. „Við erum að beina
neyslunni frá sterku áfengi að
veikara, sem getur átt þátt í því að
breyta neysluvenjum unga fólks-
ins.“
Meðal þeirra sem flytja frum-
varpið með Jóhönnu eru tveir
yngstu þingmennirnir, Birkir J.
Jónsson og Ágúst Ólafur Ágústs-
son. ■
STÓRIÐJA Efasemdir eru uppi meðal
Bílddælinga um frammistöðu At-
vinnuþróunarfélags Vestfjarða í
kalkþörungamálinu, sem nú er aft-
ur komið á byrjunarreit fimm
árum eftir að rannsóknir hófust.
Helsta gagnrýnin
felst í því að for-
svarsmenn At-
vinnuþróunarfé-
lagsins skyldu
ákveða að halda sig
eingöngu við írska
fyrirtækið Celtic í stað þess að
hleypa öðrum að verkefninu. Þá
segja heimildarmenn Fréttablaðs-
ins vafa leika á því hvort Atvinnu-
þróunarfélagið hafi haft umboð frá
Fjórðungsþingi Vestfirðinga til
þess að ganga til samninga við ein-
staka aðila. Atvinnuþróunarfélagið
hafi eingöngu átt að hafa forgöngu
um að láta rannsaka hafsbotninn á
Arnarfirði en ekki ákveða hverjir
fengju að vinna auðlindina. Tekið
er fram í þessu samhengi að At-
vinnuþróunarfélagið hafi staðið að
rannsóknum á kalkþörungunum
með miklum sóma.
Rúmlega fimm ár eru síðan
Atvinnuþróunarfélaginu var
falið málið. Fljótlega eftir það
fór sendinefnd fulltrúa þess til
Írlands til að skoða kalkþör-
ungaverksmiðju Celtic Sea
Minerals. Í þeirri ferð gerðu
forsvarsmenn Atvinnuþróunar-
félagsins samkomulag við Írana
um að þeir fengju að sitja að
kalknámi á botni Arnarfjarðar.
Stofnað var Íslenska kalkþör-
ungafélagið með aðild Björgun-
ar ehf. og Celtic til að vinna að
stofnun kalkþörungaverksmiðju
á Bíldudal. Verksmiðjan átti að
gefa um 15 störf á staðnum en
alls var talið að íbúum á Bíldu-
dal gæti fjölgað um rúmlega 30
manns vegna kalkþörunga-
vinnslunnar.
Á þeim rúmu fimm árum sem
liðin eru hafa engar fram-
kvæmdir orðið á Bíldudal vegna
kalkþörungaverksmiðju Íranna.
Forseti bæjarstjórnar Vestur-
byggðar, Jón B. G. Jónsson, taldi
sig hafa yfirlýsingar Íranna fyr-
ir því að verksmiðjan yrði risin
um þetta leyti. En nú er staðan
sú að Írarnir og íslenska fyrir-
tækið Björgun hafa frestað
áformum um ótiltekinn tíma og
bera við markaðsástæðum.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að síðasta vor hafi ís-
lenskir fjárfestar farið fram á það
við Atvinnuþróunarfélag Vest-
fjarða að fá upplýsingar um stöðu
kalkþörunganna á botni Arnar-
fjarðar. Fjárfestunum var neitað
um þær upplýsingar vegna þess
að Írarnir væru að undirbúa
kalkverksmiðjuna.
rt@frettabladid.is
ÞINGIÐ MEÐ RÁÐGJÖF Þingmenn
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs hafa flutt þingsályktun-
artillögu þess efnis að Alþingi
kjósi nefnd, skipaða fulltrúum
allra þingflokka, sem verði
stjórnvöldum og Bændasamtök-
unum til samstarfs og ráðuneytis
við mótun nýs grundvallar fyrir
búvöruframleiðslu og treystingu
byggðar í sveitum.
EKKERT SVAR Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, Samfylkingu, kvað sér
hljóðs við upphaf þingfundar í
gær og gagnrýndi að svar utan-
ríkisráðherra við spurningu sinni
um hvers vegna kostnaður við
friðargæslu væri felldur undir
friðargæslu væri rýrt og illa rök-
stutt. Sagðist hún ætla að endur-
taka spurninguna.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Flutti frumvarp um lægri áfengiskaupaald-
ur 1995. Þá náði það ekki fram að ganga
en hún er bjartsýn nú.
■ Alþingi
BÍLDUDALUR
Vonir um kalkþörungaverksmiðju fara dvínandi.
■
Rúmlega fimm
ár eru síðan At-
vinnuþróunar-
félaginu var
falið málið.
Svonaerum við
VINNUTÍMI Í
ÞRIÐJA ÁRSFJÓRÐUNGI
Vinnutímar á viku
Höfuðborgarsvæðið
Karlar 45,7
Konur 37,3
Landsbyggðin
Karlar 50,5
Konur 38,0
Heimild: Hagstofan
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Fjárfestum
haldið frá
Kalkþörungavinnsla í Arnarfirði er á byrjunar-
reit eftir fimm ára vinnu. Efasemdir eru um
frammistöðu Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.
Forstöðumaður Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða:
Írarnir koma
í nóvember
IÐNAÐUR „Írarnir eru enn inni í
myndinni,“ segir Aðalsteinn Ósk-
arsson, forstöðumaður Atvinnu-
þróunarfélags Vestfjarða, vegna
þeirrar frestunar sem orðið hef-
ur á áformum um að reisa kalk-
þörungaverksmiðju á Bíldudal
sem ætlað er að framleiða kalk
sem meðal annars á að nota í hús-
dýrafóður.
Aðalsteinn segist vissulega
hafa heyrt gagnrýni vegna þess
að eingöngu var samið við Írana.
Hann segir að á þeim tíma sem
undirrituð var viljayfirlýsing um
samstarf hafi menn talið að slíkt
myndi flýta framgangi málsins.
Hann segir að einungis fjórir að-
ilar í Evrópu vinni að vinnslu á
kalkþörungum af sjávarbotni og
því ekki um marga að velja en
auðvitað sé auðvelt að vera vitur
eftir á. Aðalsteinn staðfestir að
íslenskir fjárfestar hafi viljað
skoða möguleika á að koma að
kalkþörungunum en á grundvelli
viljayfirlýsingarinnar verði
samstarfið að halda áfram.
„Írarnir koma í nóvember og
þá munum við fara yfir allt mál-
ið og taka stöðumat,“ segir hann.
Aðalsteinn segir að þótt svo
fari að Írarnir hverfi frá áform-
um sínum um að reisa verk-
smiðjuna hafi þegar fengist dýr-
mæt þekking sem nýtast muni
öðrum sem vilji fara í þessa
framleiðslu. ■
Hellisgerði í Hafnarfirði:
Dvergtré
eru í vetrar-
dvala
SÝNINGAR Dvergtrjánum í Bonsai-
garðinum í Hellisgerði í Hafnar-
firði hefur verið komið fyrir í
vetrargeymslu.
Að því er kemur fram á hafn-
arfjordur.is er Bonsai-garðurinn
sá eini sinnar tegundar á Íslandi.
Garðurinn er sagður njóta mik-
illa og vaxandi vinsælda eftir
fimm starfsár.
Í sumar var bætt við plöntum
og fjölbreytni í uppsetningu
þeirra aukin með því að nota
hraunið í Hellisgerði meira.
Gestir í sumar voru 2.796 talsins
og er garðyrkjustjóri bæjarins,
Björn Bögeskov Hilmarsson,
sagður mjög ánægður með að-
sóknina. ■