Fréttablaðið - 17.10.2003, Side 11
■ Leiðrétting
11FÖSTUDAGUR 17. október 2003
Lífræn helgi á Græna torginu
í Sigtúni
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
25
34
1
/2
3
haustlaukaútsala
kynningar og tilb
oð
1.999 kr.
2 rósir,
ca. 5 sm
Pottaplöntur með 5 % afslættiRýmum!
Nóvemberkaktus
Tilboð
499 kr.
699 kr.
1.499 kr.
2 -5 % afsláttur
af haustlaukum
STJÓRNSÝSLA Um 85% íslenskra
ríkisstofnana hafa engar
siðareglur, að því er fram kemur í
nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar
um siðareglur í opinberri stjórn-
sýslu.
Skýrslan er unnin vegna mik-
illar umræðu um siðferði í opin-
berri stjórnsýslu á síðustu árum,
ekki síst í tengslum við ýmiss
konar siðferðisleg álitamál eða
spillingu.
Í könnun Ríkisendurskoðunar
frá því í sumar kemur fram að
15% ríkisstofnana hafi sett sér
siðareglur og að forstöðumenn
40% annarra stofnana séu að
íhuga að setja slíkar reglur. Hins
vegar hafa um 45% forstöðu-
manna ekki í hyggju að setja
siðareglur.
Af þeim sem hafa siðareglur
telur um 41% að vinnulag hafi
breyst eftir að reglurnar hafi
verið settar, en 46% segja ekkert
hafa breyst.
Í könnuninni var spurt
hvernig brugðist væri við ef
brotið væri gegn settum siðar-
reglum. Um 63% þeirra sem hafa
siðareglur bregðast við með því
að tala við viðkomandi starfs-
mann. Enginn af þeim hefur hins
vegar þurft að áminna starfs-
mann formlega eða beita brott-
rekstri.
Þeir sem ekki ætla að setja
siðareglur voru spurðir um
ástæðu þess og svöruðu um 55%
þeirri spurningu. Um 59% nefna
tímaskort og um 28% telja enga
þörf fyrir slíkar reglur. ■
Vegna fréttar á miðvikudagum þróun í umfangi í Öræ-
fum skal tekið fram að rangt er
að Skaftárjökull hafi hopað um
82 metra frá í fyrra. Það var
Skaftafellsjökull sem það gerði.
Skaftafellsjökull er í Skaftafelli.
Skaftárjökull gengur hins vegar
vestur úr Vatnajökli og er á milli
Tungnárjökuls og Síðujökuls.
Sjálfstæðismenn í ÍTR:
Vilja aukna
samvinnu
ÍÞRÓTTIR Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks í Íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur hafa lagt fram
tillögu þess efnis að ÍTR hefji
viðræður við íþróttafélögin
Ármann, Þrótt og Íþróttabandalag
Reykjavíkur um aukið samstarf
félaganna, samnýtingu íþrótta-
mannvirkja og flutnings Ármanns
í Laugardal.
Í greinargerð með tillögu sjálf-
stæðismanna kemur fram að nú
þegar sé mikið samstarf á milli
Ármanns og Þróttar og að vilji sé
til aukins samstarfs meðal for-
ystumanna félaganna. Stjórn ÍTR
frestaði umræðu um tillöguna á
fundi sínum á miðvikudag. ■
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Hinn dæmdi ógnaði starfsfólki lyfjaverslun-
arinnar með járnstöng.
Lyfjaræningi:
Dæmdur
í fangelsi
DÓMUR Maður var dæmdur í
fimmtán mánaða fangelsi, þar af
tólf skilorðsbundna, í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær fyrir rán í
lyfjaverslun.
Maðurinn ógnaði starfsfólki
lyfjaverslunarinnar með járn-
stöng og hrifsaði með sér nokkra
lyfjapakka áður en hann hvarf á
brott. Hann var einnig dæmdur
fyrir þjófnað. Áður hefur hann
hlotið skilorðsbundna dóma fyrir
þjófnað, umferðarlagbrot og
nytjastuldir. Við ákvörðun
refsingar leit dómurinn til þess að
rán væri hættulegt brot þó svo að
bareflinu hafi ekki verið beitt.
Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um siðareglur í opinberri stjórnsýslu:
Um 85% stofnana
hafa engar reglur
STJÓRNARRÁÐIÐ
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram
að enginn af forstöðumönnum þeirra
stofnana ríkisins sem hafa siðareglur hefur
þurft að áminna starfsmann formlega eða
beita brottrekstri vegna brots á reglum.
Fjármálaráðuneytið:
Segir aðhald
nægjanlegt
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðuneytið
telur gagnrýni um að ónógs aðhalds
sé gætt í ríkisfjármálum ekki eiga
við rök að styðjast. Þetta kemur
fram í vefriti fjármálaráðuneytis-
ins frá í gær.
Í vefritinu segir að mikilvægt
sé að líta til þess að nú hafi í fyrsta
sinn verið lögð fram sundurliðuð
áætlun ríkisstjórnarinnar um
aðgerðir í ríkisfjármálum til
nokkurra ára í senn. Þá er bent á
að misjafnt sé hvort matsaðilar
telji peningamálastefnuna, sem er
á valdi Seðlabankans, eða rík-
isfjármálin vega þyngra í
hagstjórninni. ■