Fréttablaðið - 17.10.2003, Síða 16

Fréttablaðið - 17.10.2003, Síða 16
16 17. október 2003 FÖSTUDAGUR GEIMSKOT Á MORGUN Rússar skjóta á morgun á loft Sojús-geim- flug sinni. Þriggja manna áhöfn verður um borð. Þetta verður annað geimskotið á fjórum dögum en Kínverjar skutu fyrsta mannaða geimfari sínu á loft á miðvikudag. Bandaríkjamenn herða leitina að stríðsglæpamönnum frá Balkanskaga: Setja fé til höfuðs foringjunum ZAGREB, AP Bandaríska sendiráðið í Króatíu hefur sett fé til höfuðs króatíska hershöfðinganum Ante Gotovina, eftirlýstum stríðsglæpamanni. Sendi- ráðið heitir hverjum þeim sem veitt getur uplýsingar sem leiða til handtöku Gotovinas jafnvirði tæp- lega 400 milljóna íslenskra króna. Jafnframt hefur verið opnuð sérstök síma- lína til að taka við upplýs- ingum um Gotovina. Gotovina er á flótta und- an stríðsglæpadómstóli Sameinuðu þjóðanna en ákæra á hendur honum var birt árið 2001. Gotovina er ákærður fyrir ódæðisverk í stríðinu á Balkanskaga en hann er sagður hafa myrt að minnsta kosti 150 manns og borið ábyrgð á brottrekstri allt að 150.000 einstaklinga. Verðlaun eru einnig sett til höfuðs fyrrum leiðtogum Bosníu-Serba, þeim Ratko Mladic og Radovan Karadzic, en báðir eru ákærðir fyrir stríðsglæpi og þjóðernis- hreinsanir í Bosníu árið 1995. ■ Tíu látnir eftir ferjuslys í New York Rannsókn er hafin á orsökum ferjuslyssins í New York. Skipstjórinn stakk af frá slysstað og reyndi að fyrirfara sér. NEW YORK, AP Rannsókn er hafin á orsökum alvarlegs ferjuslyss á Staten Island í New York á mið- vikudagskvöld. Rannsóknin bein- ist meðal annars að því hvort skip- stjóri ferjunnar, Richard Smith, hafi sofnað við stýr- ið. Að minnsta kosti 10 manns, níu karl- ar og ein kona, lét- ust og 42 slösuðust þegar ferjan skall harkalega utan í bryggjuna á Staten Island. Margir hinna slösuðu misstu útlimi. Sjónarvottar sögðu að ferjan hefði komið að bryggjunni á óvenju miklum hraða. Svo harður var áreksturinn að hluti ferjunnar rifnaði af og bryggjukanturinn skar bakborðssíðu ferjunnar eins og niðursuðudós. Um 1500 manns voru um borð í ferjunni en hún tekur allt að 6.000 farþega. Lýsingar sjónar- votta voru ófagr- ar. Fólk hljóp um allt og reyndi að forða sér undan brakinu. Margir stukku í 17 gráðu heitan sjóinn, aðr- ir stukku í land og forðuðu sér undan braki sem flaug um allt. Flestir hinna látnu voru aldrað fólk sem náði ekki að bjarga sér á hlaupum. Allmargir festust inni í ferjunni og greip mikil skelf- ing um sig. Þeir sem létust sátu við glugga á bakborðssíðu Andrew J. Barberi-ferjunnar. Eitt lík fannst í sjónum skammt frá slysstaðnum. Ferjan var á leið frá Manhattan til Staten Island. Þegar ferjan, sem er 93 metra löng og 20 metra breið, lenti á bryggjunni kom stórt gat á aðra hið hennar. Far- þegar segja að svo virðist sem ferjan hafi aukið hraðann þegar hún nálgaðist land. Eftir að hafa yfirheyrt aðra í áhöfninni hóf lögregla rannsókn á því hvort skipstjórinn kunni að hafa verið sofandi við stýrið þegar ferjan nálgaðist land. Skipstjórinn flúði af slysstað strax eftir slysið. Honum lá svo á að hann gleymdi lyklum sínum og þurfti að brjótast inn. Þar skar hann sig á púls og skaut sig í höf- uðið með loftriffli. Skipstjóranum tókst þó ekki ætlunarverk sitt og var hann fluttur á St. Vincent- sjúkrahúsið en þangað voru fórn- arlömb slyssins einnig flutt. Flest- ir þeirra sem slösuðust fengu minni háttar áverka en nokkrir misstu útlimi. Þetta er mesta slys í sögu al- menningssamgangna í borginni í rúman mannsaldur. „Þetta er hörmulegt slys. Það bendir ekkert til annars. Engar vísbendingar eru um hryðjuverk,“ sagði Michael Bloomberg, borgar- stjóri New York, en hann kom mjög fljótt á slysstað. Bloomberg sagði enn fremur að áhöfn ferjunnar yrði yfirheyrð og mundi að auki gangast undir lyfja- próf. Slysið varð um klukkan 19 að ís- lenskum tíma. Mjög hvasst var þegar slysið varð en þó var ekki talin ástæða til að hætta áætlunar- ferðum ferjanna. Reglubundnar siglingar hafa verið milli Manhattan og Staten Is- land frá árinu 1713. Borgaryfir- völd reka nú ferjurnar en alls eru sjö ferjur í förum milli Manhattan og Staten Island. Það tekur um 25 mínútur að sigla þessa 8 kílómetra leið. Ferjurnar flytja um 70 þúsund manns á dag í rúmlega 100 ferðum. Leiðin er vinsæl meðal ferða- manna en ferjurnar sigla meðal annars framhjá Frelsisstyttunni og Ellis-eyju. Ferjusiglingum milli Manhatt- an og Staten Island var aflýst strax í kjölfar slyssins og neyddust þús- undir borgarbúa til að nota stræt- isvagna og leigubíla. Ferjusigling- arnar hófust að nýju í gærmorgun en farþegar voru mjög óttaslegnir. „Vitskuld hugsar maður að fyrst þetta gat á annað borð gerst einu sinni, þá geti það gerst aftur,“ sagði Greg Ellis, 48 ára, en hann var einn þeirra sem tóku sér far með fyrstu ferjunni yfir til Man- hattan í gærmorgun. the@frettabladid.is Ársskýrsla KHÍ: Konur yfir 83% nemenda MENNTAMÁL Í ársskýrslu Kennara- háskóla Íslands kemur fram að 84% nemenda í grunndeild skólans og 83% nemenda í framhaldsdeild eru konur. Þó er jafnræði meðal kynj- anna í doktorsnámi. Tæpur helmingur nemenda í grunnnámi er í fjarnámi en flestir af þeim eru búsettir á höfuðborgar- svæðinu. Í skýrslunni kemur einnig fram að meðalaldur nemenda á síð- asta ári var 34,2 ár en hann er nokk- uð hærri í framhaldsdeild en í grunndeildinni. ■ ■ Þetta er mesta slys í sögu al- menningssam- gangna í borg- inni í rúman mannsaldur. HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Maður neytti veitinga án þess að eiga fyrir þeim. Sjö mánaða fangelsi fyrir mörg brot: Beit í kótilettu DÓMUR Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í sjö mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir mörg brot. Auk þess var hann sviptur ökuréttindum ævi- langt. Maðurinn var dæmdur fyrir að panta veitingar tvisvar á matsölu- stöðum án þess að eiga fyrir þeim. Maturinn og það sem við átti kost- aði samtals um tíu þúsund krón- urf. Hann var einnig dæmdur fyr- ir að stela mat fyrir tvö þúsund krónur úr matvöruverslun, fyrir að stela bol að verðmæti tvö þús- und krónur og fyrir að hafa bitið í kótilettu í hitaborði matvöru- verslunar og sett hana aftur á sinn stað. Hann var einnig dæmdur fyrir að keyra fullur og að hafa eignað sér peningaveski sem hann fann á götuhorni. Ákærði játaði brot sín skil- merkilega en hann á nokkurn sakaferil að baki. ■ Nefndakóngur: Situr í 18 nefndum SVEITARSTJÓRNIR Sá einstaklingur sem situr í flestum nefndum á vegum sveitarstjórna á Akureyri, í Reykjavík, Kópavogi og Hafnar- firði situr í 18 nefndum. Sá býr og starfar á Akureyri. Þar er líka einn sem á sæti í 13 nefndum, annar í tólf og sá þriðji í ellefu nefndum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í rannsóknum Bryndísar Ís- foldar Hlöðversdóttur á setu manna í nefndum á vegum ríkis og borga auk stjórna fyrirtækja. Hún rannsakaði líka nefndaskip- an í Reykjavík aftur til ársins 1974. Þar kom fram að sá sem hef- ur setið í flestum nefndum sem aðalmaður hefur verið skipaður í 49 nefndir. Sú kona sem skipuð hefur verið í flestar nefndir hefur setið í 22 nefndum sem aðalmað- ur. ■ EFTIRLÝSTIR Radovan Karadzic og Ratko Mladic eru meðal eftirlýstra stríðs- glæpamanna. Bandarísk stjórnvöld hafa sett fé til höfuðs þeim og Ante Gotovina. Allir eru ákærðir fyrir glæpi í stríðinu á Balkanskaga. FJÖLDI NEFNDA Akureyri 82 Hafnarfjörður 35 Kópavogur 23 Reykjavík 63 SKEMMDIRNAR SKOÐAÐAR Björgunarmenn skoða vegsummerki eftir áreksturinn. Ferjan skall mjög harkalega á bryggjunni og segja sjónarvottar að útlimir nokkurra fórnarlamba hafi hreinlega rifnað af við áreksturinn. FARÞEGASALURINN Gífurlegar skemdir urðu á ferjunni og er brak um allt skip, gler, timbur og stál. TUGA METRA RIFA Á SÍÐUNNI Að minnsta kosti 10 létust og 42 slösuðust, þar af nokkrir alvarlega, þegar farþegaferja skall á bryggjunni við Stat- en Island á miðvikudagskvöld. Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins og beinist hún meðal annars að því hvort skipstjóri ferjunnar hafi verið sofandi þegar slysið varð. BRYGGJUSPORÐURINN Stórt stykki brotnaði úr bryggjunni þegar 90 metra löng ferjan með rúmlega 1.500 manns innanborðs skall á bryggjusporðin- um og risti upp bakborðssíðu ferjunnar. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.