Fréttablaðið - 17.10.2003, Síða 22
22 17. október 2003 FÖSTUDAGUR
■ Tilkynningar
Þennan dag árið 1961 hóf lög-reglan í París skothríð á þús-
undir alsírskra múslima sem
höfðu safnast saman á götum
borgarinnar. Meira en 200 manns
lágu í valnum.
Stríð Frakka og Alsíringa var
þá í hámarki en friðarviðræður
voru komnar af stað. Mikil spenna
ríkti einnig í Frakklandi vegna
sprengjuárása alsírskra hryðju-
verkamanna í París, sem beindust
sérstaklega gegn frönsku lögregl-
unni.
Lögreglustjóri í París var þá
Maurice Papon. Lögreglan hafði
gert dauðaleit að hryðjuverka-
mönnum í hverfum Alsíringa og
beitti þar fullri hörku. Eitthvað af
saklausu fólki týndi lífinu í þeim
aðgerðum.
Mannfjöldinn á götum Parísar
þann 17. október var bæði að lýsa
stuðningi sínum við friðarviðræð-
ur og einnig að mótmæla útgöngu-
banni, sem beindist eingöngu
gegn alsírskum múslimum í borg-
inni.
Árið 1981 var upplýst að
Maurice Papon hafði starfað með
nasistum þegar Frakkland var
hernumið í seinni heimsstyrjöld-
inni. Árið 1998 var hann síðan
dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að
hafa aðstoðað við að flytja hundr-
uð franskra gyðinga í útrýmingar-
búðir nasista. ■
Fréttablaðið býður lesendum að
senda inn tilkynningar um dánar-
fregnir, jarðarfarir, afmæli eða
aðra stórviðburði. Tekið er á móti
tilkynningum á tövupóstfangið
tilkynningar@frettabladi.is. Ef
óskað er eftir jarðarfarar- eða
andlátsauglýsingu má senda
texta í slíkar auglýsingar á
auglysingar@frettabladid.is.
Ég hlakka til að takast á viðkrefjandi og ögrandi starf,
búin háleitum markmiðum,“ segir
Anna Elísabet Ólafsdóttir,
nýráðinn forstjóri Lýðheilsu-
stöðvar. Anna Elísabet er mennt-
aður matvæla- og næringar-
fræðingur. Hún tók MBA-gráðu
frá Háskóla Íslands í viðskipta-
fræði fyrir tveimur árum og hefur
undanfarið starfað hjá Pharmaco.
„Ég hef verið í skemmtilegu
starfi sem ég á örugglega eftir að
sakna en á móti kemur að það
verður gaman að takast á við ný og
ögrandi verkefni sem lúta að því
að bæta heilsu þjóðarinnar,“ segir
hún og bætir við að allt frá því hún
kom frá námi árið 1991 og þar til
hún hóf nám í viðskiptafræði hafi
hún unnið við ráðgjöf á sviði
manneldismála. „Ég hef rekið
fyrirtæki í næringarráðgjöf sem
meðal annars átti þátt í að breyta
mataræði heillar skipshafnar. Í
leiðinni fékk ég tækifæri til að
skyggnast inn í áður óþekkt
umhverfi þegar ég sigldi með
þeim. Við breytinguna léttust
menn um samtals fjörutíu kíló auk
þess sem blóðþrýstingur og blóð-
fita lækkaði svo um munaði. Þetta
er lítið dæmi um það hverju hægt
er að áorka með því að lifa heil-
brigðu lífi, borða hollt, hreyfa sig
og gæta sín á allri ofneyslu,“ segir
hún.
Anna Elísabet er fædd á
Blönduósi. Hún bjó lengst af í
Borgarnesi en fór að heiman 16
ára til að stunda nám í
Menntaskólanum á Akureyri.
Þaðan lá leiðin til Þýskalands, þar
sem hún var við nám í 3 ár. Þá
flutti hún til Íslands og lauk B.Sc-
prófi í matvælafræði. „Ég fór
síðan í framhaldsnám til Noregs
og útskrifaðist sem Cand. Scient. í
næringarfræði 1991.“
Anna Elísabet er gift Viðari
Viðarssyni, framkvæmdastjóra
hjá EJS, og eiga þau þrjá syni.
„Það er líflegt á heimilinu meðal
allra þessara karlmanna en þannig
vil ég hafa það,“ segir Anna
Elísabet, sem hefur gaman af að
vera með karlastóðinu sínu.
Í frítímum rennir hún sér m.a.
á línuskautum um gangstíga
borgarinnar. „Svo höfum við
gaman af að ferðast, einkum á
fjöllum. Fórum í sumar í fjög-
urra daga gönguferð um hálendið
um Strútsstíg,“ segir Anna
Elísabet, sem á sér þau háleitu
markmið að bæta heilsu
þjóðarinnar þannig að Íslend-
ingar geti orðið fremstir meðal
jafninga í lýðheilsumálum. ■
Tímamót
ANNA ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
■ Hún á sér þau háleitu markmið að
bæta heilsu þjóðarinnar í starfi forstjóra
Lýðheilsustöðvar en fyrir nokkrum árum
munstraði hún sig um borð í skip og
breytti mataræði áhafnarinnar.
Breytti mataræði heillar skipshafnar
STEINUNN BIRNA RAGNARSDÓTTIR
Sannfæring hennar er að ekki sé hægt að
vera í borgarstjórn sem vinnur gegn þeim
hagsmunum sem hún berst fyrir.
??? Hver?
Ég er píanóleikari og stjórnandi Reyk-
holtshátíðar.
??? Hvar?
Niðri í bæ.
??? Hvaðan?
Víða að en aðallega úr Borgarfirði.
??? Hvað?
Ég sagði mig úr borgarstjórn vegna
óánægju með framgöngu borgarinnar í
menningarmálum og túlkun hennar á
kjarasamningi við tónlistarkennara.
??? Hvernig?
Ármann Jakobsson verður varaformaður
menningarmálanefndar í minn stað.
??? Hvers vegna?
Vegna þess að ég sá mér ekki fært að
sitja lengur í borgarstjórn sem vinnur
gegn þessum hagsmunum. Þetta snýst
um sannfæringu
??? Hvenær?
Nú þegar.
■ Persónan
Stærsta afmælispakkann er égbúinn að fá heim, hann fékk ég
29. september og því ætla ég að
fagna með samstarfsfólki, vinum
og vandamönnum í kvöld,“ segir
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða, sem heldur upp á
fertugsafmæli sitt í kvöld á Hótel
Borg.
Pakkinn sem Andra barst í fyrri
mánuði er frumburðurinn hans,
sonur sem nú er liðlega tveggja
vikna. „Það slær öllu við að eignast
barn og ég neita því ekki að þau
voru þung sporin út á flugvöll þeg-
ar ég þurfti að fara utan í fyrri
viku,“ segir nýbakaður faðir.
Í kvöld verður Andri með gleði
að hætti Kúbverja en listamenn
þaðan ætla að skemmta gestum.
„Ég á von á 150 manns í kvöld og
auk tónlistar verður ýmislegt ljúf-
meti, jafn í föstu sem fljótandi
formi. Svo verður auðvitað mikil
gleði eins og er háttur gleði-
manna,“ segir Andri Már, sem síð-
ast fagnaði afmælisdegi fyrir tíu
árum. „Þá tókst mér að troða öll-
um heim til mín en síðan hefur
bæst rækilega í hópinn og það
þýðir ekki annað en hafa rúmt um
gestina.“
Andri hefur lengi rekið eigið
fyrirtæki og einhver gæti haldið
hann eldri en fertugan. Hann sam-
sinnir því og bendir á að hann hafi
einfaldlega orðið gamall ungur.
„Það er mikið að gera um þessar
mundir. Við erum að undirbúa
beinar ferðir til Jamaíka sem
farnar verða eftir jól og nýlega
komu heim farþegar frá Sorrento
úr fyrsta flugi Íslendinga þangað.
Kanaríeyjar eru alltaf vinsælar
og áhugi á skíðaferðum er að
aukast,“ segir Andri og bætir við
að farþegum til Kanaríeyja hafi
fjölgað um fimmtíu prósent. Þær
voru vinsælar fyrir en Heims-
ferðir flytja 35 þúsund farþega í
frí á þessu ári.
Starf Andra byggist að miklu
leyti upp á ferðalögum og svo
hefur það verið allt frá því hann
hóf ungur að vinna hjá föður sín-
um. Hann neitar því að hann sé
orðinn þreyttur á eilífum ferða-
lögum. Það komi vissulega fyrir
að hann langi ekki en oftar hafi
hann gaman af að ferðast. „Það
er ýmist í ökkla eða eyra. Maður
getur orðið fullsaddur á gæðun-
um eins og þar stendur en eftir
tilkomu sonarins á þetta kannski
eftir að breytast,“ segir Andri
Már, sem á milli þess að dást að
syninum og ferðast hreyfir sig til
að ná sér í súrefni.
bergljot@frettabladid.is
Afmæli
ANDRI MÁR INGÓLFSSON
■ Hann ætlar að bjóða til kúbverskrar
gleði á Hótel Borg og fagna stærstu af-
mælisgjöfinni sem kom í heiminn fyrir
rúmum tveimur vikum.
EMINEM
Rapparinn Eminem, öðru nafni Marshall
Bruce Mathers hinn þriðji, verður 31 árs í
dag.
17. október
■ Þetta gerðist
1906 Þýski skósmiðurinn og síbrota-
maðurinn Wilhelm Voigt notfærir
sér skilyrðislausa hlýðni þýskrar
hersveitar, þykist vera herforingi
og fær hermennina til að að-
stoða sig við þjófnað í bænum
Köpenik, skammt fyrir utan
Berlín.
1931 Al Capone, glæpaforingi í
Chicago, er dæmdur í ellefu ára
fangelsi fyrir skattsvik.
1933 Albert Einstein kemur til Banda-
ríkjanna. Hann flúði þangað
undan nasistum í Þýskalandi.
1945 Juan Peron gerir stjórnarbyltingu
í Argentínu.
1973 Arabaríki tilkynna um bann á
olíusölu til Bandaríkjanna og
fleiri landa sem veittu Ísrael að-
stoð í Yom Kippur-stríðinu. Þetta
var upphaf olíukreppunnar.
MAURICE PAPON
Hann var lögreglustjóri í París árið 1961
þegar Alsírstríðið var í hámarki.
FJÖLDAMORÐ
■ Meira en tvö hundruð alsírskir
múslimar lágu í valnum eftir að lögreglan
í París hóf skothríð á mótmælendur.
17. október
1961
Kúbversk gleði á Hótel Borg
!
" #$
%
&
'
(
) '
***+,-
./(
0
1 +-$,2
, -2
-3- -2
.$-
,-
4-
) ANDRI MÁR INGÓLFSSON
Margir gætu haldið hann eldri en fertugan, svo lengi hefur hann verið í bransanum. Hann útskýrir það með því að hann hafi
orðið snemma gamall.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ANNA ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
Rennir sér á línuskautum í frítímanum
og gengur á fjöll.
Fjöldamorð framin í París
Foreldrar -
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus
unglingapartý.