Fréttablaðið - 17.10.2003, Side 26

Fréttablaðið - 17.10.2003, Side 26
Birkibrauð 3 dl volg ab mjólk 1 msk. brætt smjör 1 tsk. sítrónubörkur 1 msk. appelsínumarmelaði 2 tsk. salt 2 dl amaranthmjöl 7 dl hveiti 2 msk birkifræ 1 msk þurrger Aðferð Setjið volga mjólk í hnoðunarskálina Setjið smjör, sítrónubörk, appelsínu- marmelaði og salt út í Setjið að síðustu þurrgerið út í Veljið það kerfi á vélinni sem við á Bakað í ofni Stillið á hnoðunar- prógrammið og hnoðið deigið Takið deigið úr vélinni, hnoðið það léttilega, setjið í smurt formköku- form og látið lyfta sér í 30 mínútur. Bakið við 180 gráður á celsíus næstneðst í ofni í 40 mínútur. Kælið brauðið á bökunarrist. Ef þú sérð ekki lengur gegnumgluggann á ofnhurðinni fyrir óhreinindum sem virðast gróin föst er tilvalið að nota matarsóda til að hreinsa hana. Best er að búa til þykkt mauk úr vatni og matarsóda og smyrja á glerið. Skiljið eftir í tíu mínútur og þríf- ið svo af með vatni. Ef þú vilt ná hýðinu utan afhvítlauksrifi á fljótlegan hátt er hægt að stinga því inn í ör- bylgjuofn í 15 sekúndur. Þá flett- ist það auðveldlega af. Einnig er hægt að slá ofan á rifið með flöt- um hníf og sprengja þannig efsta hlutann í sundur. Eftir það er auðvelt að fjarlægja hýðið. Ef þú vilt reyna að láta brauðiðþitt endast lengur geturðu prófað að stinga sellerístilk í brauðpokann og loka aftur. Það geta flestir eldsteikt, eðaflamberað. Samt er langt í frá sama hvernig það er gert,“ segir Hendrik Hermannsson, veitinga- stjóri í Grillinu á Radisson SAS, eða Hótel Sögu eins og hótelið er oftast kallað. Hendrik segir eldsteikingar alltaf eiga vel við, en ekki síst þegar dimmt er úti og fólk vill eiga rómantíska stund. Hann segir að gott sé að flambera nautasteikur en áður en það sé gert verði samt að bregða steik- inni á pönnu og matreiða hana að mestu þar. Til dæmis verður steikin að lokast við venjulega steikingu. „Auk þess að steikin er flamberuð gerum við sósuna við borð gestanna og það er mikið atriði. Í hana notum við alltaf soðið af steikingunni, koníak og rjóma. Auðvitað þarf að leggja alúð í matargerðina en flestir geta þetta, þó það kannski takist ekki fullkomlega í fyrstu tilraunum.“ Hendrik segir einnig gott að flambera eftirrétti. Hann mælir með nánast hvers kyns ávöxtum. „Þá er gott að flambera í líkjörum. Flestir góðir líkjörar koma til greina.“ „Það er virkilega gaman að flambera mat. Við framreiðslu- menn sjáum strax á andlitum gesta okkar hvernig þeim líkar það sem við erum að gera. Í raun eigum við aðeins eitt takmark. Það er að gestum okkar líði vel og þess vegna er gaman að sjá viðbrögðin. Við fáum í raun einkunnina strax. Ég hef enn ekki fallið,“ segir Hendrik brosandi. Hendrik hefur verið fram- reiðslumaður í um áratug og þar af veitingastjóri í Grillinu í fimm ár. „Við erum eini veitinga- staðurinn á landinu sem býður eldsteikingu og fyrirskurð við borð gesta.“ ■ ■ Húsráð matur o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Eldsteikingar: Ljós í myrkri Dagur Kári Pétursson ogTómas Lemarquis hafa verið tilnefndir til Evrópsku kvik- myndaverðlaunanna árið 2003. Al- menningur kýs um verðlaunin á Netinu, á heimasíðu Jameson- vískífyrirtækisins sem er helsti stuðningsaðili verðlaunana. Við skorum á alla velunnara íslenskra kvikmynda að kjósa strákana fyr- ir þá fínu mynd Nóa Albínóa. Slóð- in er www.jameson.ie/peoples- choice/ en einnig má komast inn á síðuna á mbl.is. Íslendingar hafa verið dugleg- ir að kjósa á Netinu og kemur það forsvarsmönnum Jameson varla mikið á óvart enda Ísland einn sterkasti markaður Jameson og viskíið það vinsælasta hér á landi um árabil. Viskí frænda okkar Íra virð- ist falla Íslend- ingum afar vel, það er hreint, þægilegt og milt með létt sætum vanillu- keim. ■ Kjósum Ísland á Jameson.ie! Bakstur í brauðvél: Girnilegt brauð og meðlæti Komin er út ný íslensk bók meðuppskriftum að brauðum og kökum sem bökuð eru í brauðvél. Höfundurinn er Fríða Sophia Böðvarsdóttir, sem einnig hefur skrifað bókina Bakað úr spelti sem notið hefur mikilla vinsælda á Íslandi, í Noregi og í Danmörku. Uppskriftirnar eru tvískiptar þannig að þær má nota þó að brauðvél sé ekki fyrir hendi. Í bókinni er einnig að finna upp- skrifir að sultum, súpum og græn- metiskæfum sem tilvalið er að bera fram með nýbökuðu brauði. Í formála bókarinnar gefur Fríða Sophia hollráð varðandi brauðvélar og bakstur. HENDRIK FLAMBERAR Hann segir flesta geta eldsteikt en samt sé langt í frá sama hvernig það er gert. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ET Mangó Mangótréð er ættað frá Malasíu. Ávöxturinn er egglaga og yfirleitt grænleitur en fer yfir í gult, rautt og jafn- vel fjólublátt. Kjötið er sterkappelsínugult, mjög sætt en með súru eftirbragði. Í miðju ávaxtarins er stór steinn. Mangó er járnríkt. Það inni- heldur mikið A-vítamín og einnig nokkuð af B- og C-vítamíni. Mangó má nota með ýmsum hætti. Flestir hafa bragðað mangó-chutney en ferskt mangó má bæði nota á margan hátt í matargerð, svo sem meðlæti bæði með kjöti og fiski. Villibráðarkvöld Villibráðarkvöld verður þann 25. október á Hótel Stykkishólmi og dansleikur með Milljónamæringunum, Bjarna Ara og Páli Óskari. Verð með gistingu í tveggja manna herbergi kr. 8.500 á mann. Pantanir í síma 430 2100

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.