Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 28
KVIKMYNDIR Söguþráður fjórðu kvikmyndar Quentins Tarantinos, Kill Bill, er ekki svo ýkja flókinn og minnir um margt á gömlu spaghettívestra ítalska leikstjór- ans Sergio Leone þar sem Clint Eastwood fór oftar en ekki með aðalhlutverkið. Kill Bill er, eins og titilinn gefur vísbendingu um, saga hefndar. Eins og í myndum Leones er aðalhetjan haldin óseðj- andi réttlætiskennd og gífurleg- um blóðþorsta. Aðalpersónan í Kill Bill hefur líka væna ástæðu til. Uma Thur- man leikur stórhættulegan laun- morðingja sem ákveður að snúa baki við starfi sínu þegar hún verður ófrísk og ástfangin. Hún hefur starfað fyrir glæpakónginn Bill (David Carradine) sem stjórnar hópi af hættulegustu launmorðingjum heims. Bill er ekkert allt of sáttur við það að missa einn besta starfskraftinn sinn og ákveður að koma henni fyrir kattarnef. Hann mætir þess vegna í brúðkaup hennar með lið sitt og skýtur alla gestina, tilvon- andi eiginmann hennar og hana sjálfa í höfuðið. Hann deyr sem og allir gestirnir en hún fellur í dauðadá í fimm ár. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað stúlkan, sem öðlast viður- nefnið Brúðurinn eftir hina blóð- ugu brúðkaupsveislu, er pirruð og reið þegar hún vaknar aftur. Hún sver þess eið að hefna sín á öllum fyrrum félögum sínum og höfuð- paurnum Bill. Í hlutverki morðingja á snærum Bills eru Lucy Liu sem leikur O-Ren Ishii, Darryl Hannah sem leikur Elle Driver, Michael Madsen sem leikur Budd og Vivica A. Fox sem leikur Vernitu Green. Hefndarvegur blóðugu brúðar- innar er það langur að það tekur tvær heilar kvikmyndir að ganga hann til enda. ■ 28 17. október 2003 FÖSTUDAGUR Pondus eftir Frode Øverli Kvikmyndir KILL BILL ■ Þá er fjórða mynd leikstjórans Quent- ins Tarantinos loksins komin í bíó. Þetta er þó aðeins fyrri hluti myndarinnar, því hún var klippt í tvennt vegna lengdar sinnar. Seinni hluti verður frumsýndur eftir áramót. Woody Allen hefur sent tilboðtil nokkurra bókaútgefanda þar sem fram kemur að hann muni láta allt uppi í væntanlegri sjálfsævisögu sinni. Hann seg- ir að margt í bókinni sé mun dramatískara en hann gæti nokkurn tímann skrifað í bíó- mynd. Kaflinn um ástarsamband hans og Miu Farrow á víst að vera mjög safa- ríkur og stór hluti af bókinni. Margir eru eflaust forvitnir að heyra hans hlið á því sambandi því það endaði með því að Allen varð ástfanginn af dóttur hennar sem hann svo giftist síðar. Til- boðsbréf Allens endar svo á þessum orðum; „Fyrir það að segja sögu mína vil ég glás af seðlum, boltinn er hjá ykkur.“ Leikarinn John Rhys-Davies,sem leikur dverginn Gimli í Lord of the Rings-myndunum hefur kært framleiðendur sjón- varpsþáttaseríu fyrir trassa- skap. Leikarinn meiddist illa við tökur í Króatíu síðasta sumar þegar veggur datt ofan á hann. Leik- arinn segist hafa orðið fyrir alvarlegum og langvarandi meiðslum og krefst skaðabóta. Nicole Kidman segist vilja leikakarlmann í bíómynd. Hún seg- ist hafa örlitla reynslu á því sviði þar sem hún var nánast alin upp sem strákur á fyrstu æviárum sínum. Faðir henn- ar á víst að hafa viljað eignast stráka en fékk bara stúlkur. Kidman sagði einnig í sama viðtali að hún vilji gleymast eftir að hún deyr. Hún ætlar t.d. að brenna dag- bækur sínar, sem hún hef- ur haldið í mörg ár, áður en hún deyr. Það er nokkuð sem Smokie-að- dándi getur ALDREI skilið! Hefnd blóðugu brúðarinnar KILL BILL Lucy Liu má fara að vara sig, blóðuga brúðurin (Uma Thurman) á harma að hefna. DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM Internet Movie Database 8.4 /10 (115 sæti yfir bestu myndir allra tíma) Rottentomatoes.com 83% = Fersk Entertainment Weekly A Los Angeles Times 2 stjörnur (af fimm) Fréttiraf fólki 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 TOPP 20 - X-IÐ977 VIKA 42 The White Stripes I JUST DON’T KNOW WHAT.. Muse STOCKHOLM SYNDROME Botnleðja BROKO Placebo SPECIAL NEEDS Limp Bizkit EAT YOU ALIVE Evanescence GOING UNDER The Strokes 12:51 Linkin Park NUMB Hot Hot Heat NO NOT NOW Black Rebel Motorcycle Club STOP Marilyn Manson THIS IS THE NEW SHIT Travis RE-OFFENDER The Thrills BIG SUR The Darkness I BELIEVE IN A THING ... Maus MY FAVOURITE EXCUSE Foo Fighters HAVE IT ALL A Perfect Circle WEAK AND POWERLESS Gísli HOW ABOUT THAT Kings of Leon RED MORNING LIGHT Mínus MY NAME IS COCAINE Vinsælustulögin THE WHITE STRIPES Hirti toppsætið af Botnleðju. Ég segi Appetite for Destruction meðGuns ‘n’ Roses,“ segir Frosti Loga- son, gítarleikari Mínus. „Þetta var annar geisladiskurinn sem ég eignaðist og þessi plata hefur alltaf verið í uppá- haldi. Þetta var eitt af fyrstu sporunum mínum í þungarokkið og þessi plata eldist alveg rosalega vel. Það er alltaf hægt að setja hana í, sama hvert tilefn- ið er.“ FROSTI Platan Gvu... tjónaðirðu bílinn? Já, ég missti bara stjórn á stýrinu og... BANG! Þú misstir stjórn á stýrinu og... BANG! Og þetta hefur auðvitað ekkert að gera með AC/DC og trommusóló á stýrinu? Trommu. ..nei... það er sko... mjaah... Stundum velti ég því fyrir mér hvað ger- ist í hausnum á þér!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.